Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmar 69 milljónir króna en aðeins eitt tilboð barst, frá fyrirtækinu Vörðufelli, upp á tæpar 110 milljónir króna.
Verkið verður boðið út að nýju í haust.
Endurbæturnar hafa verið til umræðu í nokkur ár en verið slegið á frest, meðal annars vegna fjárskorts. Uppfærð hönnun og útlit á tröppunum var kynnt á fundi Eigna- og veitunefndar þann 27. janúar síðastliðinn og verkið boðið út í byrjun sumars.
Til stóð að verkinu yrði lokið 1. október næstkomandi.