Eignar Bandaríkjunum hluta af Íran
Misvísandi skilaboð berast frá Donald Trump Bandaríkjaforseta og tengdasyni hans um viðræður við Íran.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að engar viðræður við Íran væru í gangi eða á dagskrá, um leið og hann birti kort sem sýndi Hormússund sem nýtt bandarískt yfirráðasvæði í nýju háði og ögrun í garð stjórnvalda í Teheran.
Trump hefur ítrekað hótanir sínar um að gera tilkall til yfirráða yfir þessari mikilvægu flutningsleið á meðan stríðið við Íran, sem staðið hefur í tæpa sex mánuði, heldur áfram án þess að lausn sé í sjónmáli.
Sendifulltrúi Trumps og tengdasonur, Jared Kushner, hafði sagt í gær að Bandaríkin og Íran ættu í „mjög jákvæðum og virkum samræðum“, en forsetinn neitaði því að svo væri.
„Engar viðræður eða samræður eru í gangi, eða á dagskrá, við Íslamska lýðveldið Íran. Hafnbannið er enn í fullu gildi,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social í dag.
„Hormússund er opið og starfsemi þar er í gangi. Öll tundurdufl hafa verið fjarlægð eða sprengd.“ …