„Ég viður­kenni al­veg að ég mun sakna Tenerife“ - Vísir

„Ég viður­kenni al­veg að ég mun sakna Tenerife“ - Vísir

„Ég viður­kenni al­veg að ég mun sakna Tenerife“ - Vísir

Anna Kristjánsdóttir er mörgum Íslendingum kunn, allavega þeim sem eldri eru, en hún er mikill brautryðjandi í málefnum hinsegin fólks og var fyrsta íslenska trans konan sem birtist þjóðinni opinberlega. 

Síðustu ár hefur Anna vakið athygli fyrir pistlaskrif sín en hún flutti til Tenerife árið 2019, hefur verið búsett þar síðan og haldið Facebook-vinum sínum upplýstum með reglulegum skemmtipistlum. Hún stendur á tímamótum í dag, flýgur frá Tenerife og er að flytja í Bryggjuhverfið.

„Í dag er dagur brottfarar. Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife og reikna fastlega með að ég eigi eftir að koma hingað aftur og aftur áður en yfir lýkur enda er Tenerife eins og Paradís á jörðu. En það er margt sem ég þarf að gera áður en yfir lýkur og því er þetta nóg að sinni,“ skrifaði Anna í pistlinum „Dagur 2473 – Kveðjustund“ í  morgun.

Hún segir ekki neins pistils að vænta á morgun sökum anna og flutninga en hún muni kannski láta pistil flakka á laugardagsmorgni hvítasunnuhelgar um lífið í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. 

Notið dvalarinnar í botn

Blaðamaður heyrði hljóðið í Önnu, sem var enn stödd úti, til að ræða við hana um þessi tímamót og dvölina ytra síðustu ár. Þá var ekki úr vegi að byrja á því hvað dró hana til Tenerife til að byrja með

„Mig langaði til að breyta til, komast úr kuldanum. Reyna að njóta lífsins í einhver ár á meðan maður hefði heilsu til þess. Ég var búin að prófa nokkra staði árið á undan og niðurstaðan varð sú að mig langaði til að byrja hér,“ segir Anna um Tenerife.

Anna keypti sér Benz á Tenerife fyrir fimm árum en er nú búin að selja hann og kaupa sér nýjan bíl á Íslandi.

„Hingað fór ég 2019, hefur líkað vel og ég hef alveg notið þess í botn, má segja,“ segir hún en skömmu eftir komuna til landsins reið hins vegar Covid-faraldurinn yfir.

„Covid-ævintýrið þjappaði okkur sem bjuggu hérna á þeim tíma vel saman. Í heilt ár eftir það vorum við mjög fá hérna en gátum haldið hópinn töluvert og það þjappaði okkur vel saman. Síðan er þetta búið að vera alveg dásamlegt,“ segir Anna.

„Ég ætla að sofa í mínu rúmi á Íslandi í nótt“

Nú 2.473 dögum síðar, tæplega sjö árum, er komið að kveðjustund en Anna segir fyrst og fremst tvær ástæður fyrir heimkomunni til Íslands.

„Það er annars vegar heilsufarslegt og hins vegar félagslegt. Ég fór að finna fyrir einkennum í vetur sem eru ekkert of skemmtileg og ég vil frekar vera nálægt læknum sem þekkja mig og mína sögu en að vera hér,“ segir hún.

Sömuleiðis vill hún vera nær fjölskyldu og vinum og rifja upp gömlu félagsmálin sem hún var virk í áður.

Anna á eftir sakna margra á Tenerife, einna helst hundsins Texas sem hún hefur átt margar gæðastundir með.

„Það er ýmislegt sem maður kemur til með að sakna héðan þannig ég kem til með að vera með annan fótinn hér næstu árin,“ segir hún.

Ýmislegt vesen fylgir því að flytja milli landa, „fyrst og fremst að koma dótinu sína á milli,“ að sögn Önnu.

„Þannig ég ákvað að selja það sem ég átti hér, seldi bílinn og keypti annan heima,“ segir Anna sem er spennt að koma aftur heim. „Ég ætla að sofa í mínu rúmi á Íslandi í nótt.“

Framundan sé að koma sér fyrir í Bryggjuhverfinu í rólegheitum

„Kannski prófa ég ný ævintýri næsta vetur, hvað sem það verður. Maður lætur sig dreyma um eitt og annað en nóg að segja um það núna,“ segir hún að lokum.

Brynjar bíður spenntur

Fjölmargir bíða heimkomu Önnu spenntir, þar á meðal Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og nýkjörinn borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem skrifaði pistil um heimkomuna eins og honum einum er lagið.

„Nú í dag er vinkona mín, Anna Kristjáns, að flýja góða veðrið á Tene og ætlar að hírast með okkur hinum á sama tíma og Golfstraumurinn er að yfirgefa okkur og ríkisstjórnin að gera sitt besta til að hækka vexti og verðbólgu. Eina haldgóða skýringin á því að Anna er að koma heim á klakann er sú að hún reiknar með að Sjálfstæðisflokkurinn sé að taka við stjórn borgarinnar,“ skrifar Brynjar í færslu sem hann birti fyrr í dag.

Anna á góðri stundu með Brynjari Níelssyni og Eiríki Haukssyni.

Hann segist búinn að skipuleggja með Önnu ýmiss konar félagsstarf fyrir landann næsta vetur. 

„Við ætlum að halda vínsmökkunarnámskeið, bæði fyrir lengra komna og nýgræðinga. Til að byrja með leggjum við áherslu að kynna Vodka-drykkinn, en þar er fjölbreytileikinn mikill. Vodki er ekki bara vodki. Skiptir máli hvernig þeir eru blandaðir og sumar tegundir verður að drekka óblandaða, eða „dry“ eins þeir segja í útlöndum. Lögð verður áhersla á að kenna fólkinu að njóta þegar drykkurinn rennur um æðarnar og finna hvernig geðslagið verður betra. Rétt er taka það fram að þessi námskeið henta illa þeim sem kunna ekki með drykki af þessu tagi að fara,“ skrifar hann.

Þá hafi komið til umræðu hjá honum og Önnu að stofna ný hinsegin samtök þar sem aðaláherslan verði ekki að berjast gegn auðvaldinu og styðja þá sérstaklega sem hata okkur.

Anna með Oddnýju Harðardóttur og Brynjari Níelssyni.

„Nokkur ágreiningur er á milli okkar hvort við eigum að leyfa startkapla- og svipuliðinu að vera með í þessum nýju samtökum en jafnframt erum við Anna ekki sammála um hvað kynin eru mörg. Hún heldur því fram að þau séu bara þrjú en ég hef náð að telja upp í 75 kyn. En við munum örugglega leysa þennan ágreining með því að fara einhvern milliveg,“ skrifar hann jafnframt.

„Einnig ætlum við Anna að stofna hjálparsamtök fyrir móðgunargjarna en sá hópur hefur farið ört vaxandi undanfarin ár án þess að við sem samfélag höfum brugðist við. Ég reikna með ný borgarstjórn leggi okkur Önnu lið og fjármagni nú allt þetta góða starf sem er framundan.“

#alveg #mun #sakna #tenerife #viðurkenni


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262887155d/-eg-vidur-kenni-al-veg-ad-eg-mun-sakna-tenerife-

📰 Aðrar fréttir

Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 0
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 0
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 0
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 0
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 0
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 0
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 2
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán man...
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sp...
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum m...
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
📅 07.10.2026 👁️ 4
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís...
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
📅 07.10.2026 👁️ 2
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
Officials were recorded by undercover journalists discussing a potential way to secure foreign donations to the party.