„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“ - Vísir

„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“ - Vísir
Herjólfur var sex klukkustundir á leið sinni frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gærkvöldi. Annar mótor ferjunnar bilaði fyrir tveimur vikum og verður í viðgerð í Hollandi næstu vikurnar. Það veldur því að í ólgusjó ferðast skipið aðeins á um fimm sjómílna hraða.Aðstæður í Landeyjahöfn séu óvenjuslæmar að sögn framkvæmdastjóra Herjólfs og því hefur nánast ekkert verið siglt þaðan síðan í janúar.
Þórunn Pálsdóttir, íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega í sautján daga til að mótmæla ástandinu, segir nóg komið.„Hljóðið er bara hrikalega þungt í fólki hérna. Það er mikil reiði og okkur finnst bara ekki verið að hlusta á það sem við erum að reyna að segja. Það er alltaf verið að bíða eftir því að höfnin verði löguð betur, að það sé byggt meira í kringum höfnina, öflugri brimgarða og annað. Þetta ástand er búið að vera núna í sextán ár, frá því hún var fyrst tekin í notkun.“ 

Númer 31 á biðlista

Hún segist hafa sent erindi á innviðaráðuneytið og forsætisráðuneytið fyrir sextán dögum og fengið viðbrögð í gær þegar að aðstoðarmenn ráðherra höfðu samband. Hún bíði nú eftir frekari svörum frá þeim.Hún gagnrýnir viðbrögð Vegagerðarinnar harðlega.
„Upplýsingagjöfin hefur ekki verið nein. Hún hefur verið hrikaleg og við þurfum að kalla eftir öllum upplýsingum um hvernig staðan er í Landeyjahöfn. Álfsnesið hefur verið að dýpka í höfninni núna síðustu ár og það hefur gengið illa. Skipið er bara ekki með burði til þess að ráða við þessar aðstæður. Af hverju í ósköpunum er ekki búið að rifta þeim samningi fyrir löngu síðan og fengið annað skip til að dýpka? Það er til öflugra skip sem hefur komið hingað frá Belgíu og það skip mun byrja hérna, sem betur fer, í haust. Af hverju er ekki löngu búið að fá það hingað?“Hún tekur fram að hún hafi fengið þær upplýsingar í gær að Vegagerðin ætli að bæta úr upplýsingagjöf við íbúa. 
Eiginmaður Þórunnar og sonur þurfa að ferðast til Reykjavíkur á morgun til að sækja tannréttingar fyrir drenginn.„Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim. Þeir eru númer 31 á biðlista á föstudagsmorguninn fyrir Herjólf og númer 22 á biðlista föstudagskvöldið. Það er náttúrulega bara vandræði að koma bílum hérna á milli. Þeir komast kannski heim á laugardaginn, hver veit. Fólk er bara í vandræðum með að koma og fara. Svo er fólk að fresta læknisferðum og öðru vegna þess að það treystir sér ekki í þessar löngu siglingar hérna á milli.“
Sextán ár af Landeyjahöfn í rugli og aldrei verið verriVinsælasta utanvegahlaup landsins, Puffin run, fer fram um helgina í Eyjum og hafa 1.800 hlauparar skráð sig til leiks. Katrín Laufey Rúnarsdóttir, einn skipuleggjanda hlaupsins, segir að hlaupið muni fara fram sama hvað og bindur vonir við að Landeyjahöfn verði opnuð fyrir umferð um helgina.„Þetta er alveg grautfúlt. Maður er eiginlega með mest illt í hjartanu út af öllum fyrirtækjunum hér í Eyjum. Það er ekki bara hlaupið okkar, það er líka gistingin, það eru veitingastaðirnir, allt, þetta er samfélagið. Þetta er alveg gríðarlega mikið tap fyrir alla. Eins og ég segi, þetta er í níunda sinn sem við höldum hlaupið og við höfum hingað til alltaf haldið hlaup sama hvað hefur gengið á í heiminum. Það var faraldur og ég veit ekki hvað og hvað. Við höfum alltaf einhvern veginn sloppið við vesen og við ætlum að trúa því að við séum áfram að fara sleppa við það.“
Hún kveðst vongóð um að góðar aðstæður verði fyrir siglingu í Landeyjahöfn á laugardaginn.„Það er stórstreymt einu sinni í hverjum mánuði og það er á laugardaginn. Það þýðir að ef það væri einhvern tímann möguleiki að fara inn í höfnina þá er það þá. Við erum vongóð um það að ef veðurspáin og ölduspá ganga eftir náum við að sigla eitthvað inn í höfnina föstudagskvöldið og laugardag. Við bara trúum því.“Ribsafari ætlaði að hlaupa í skarðið og bjóða upp á ferðir til og frá Landeyjahöfn fyrir keppendur um helgina en neyddist til að aflýsa ferðum vegna ófullnægjandi viðgerða.
„Það er ekki bara eitthvað eitt heldur alveg slatti,“ segir Katrín.
Katrín gagnrýnir viðbrögð stjórnvalda.„Maður er eiginlega alveg orðlaus og ég verð sjaldan orðlaus yfir svona hlutum. Að það skuli ekki vera löngu búið að grípa inn í og gera eitthvað. Við skiljum þetta ekki. Ég held að við þyrftum að fá ráðamenn og alla í Herjólf í sjö tíma siglingu og bara ekki með koju í alvöru. Það held ég að myndi virka. Takið börnin ykkar líka með og komið í dagsferð. Sonur minn tók ferju til að keppa á fimmtudaginn. Hann var kominn um borð klukkan sjö og þurfti að sigla til baka seint um kvöldið. Hann er mjög sjóveikur en lætur sig samt hafa það,“ segir hún og bætir við:„Það er að koma sumar og árið er 2026. Maður trúir ekki að þetta sé bara málið. Það er ótrúlegt að þessi staða sé uppi eftir sextán ár af Landeyjahöfn í rugli og aldrei verið verri. Manni fallast hendur.“
#ekkert #hvenær #komast #aftur #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262875651d/-eg-veit-ekkert-hvenaer-their-komast-aftur-heim-

📰 Aðrar fréttir

Starmer sees off Mandelson inquiry call - but he doesn't escape unscathed
📅 28.04.2026 21:54:08 👁️ 0

Starmer sees off Mandelson inquiry call - but he doesn't escape unscathed

#mandelson#unscathed#starmer#inquiry#escape
Reform challenges parties to publish costings in Senedd election debate
📅 28.04.2026 21:42:45 👁️ 1

Reform challenges parties to publish costings in Senedd election debate

#challenges#costings#election#parties#publish
Horfir til betri vegar eftir „ófremdarástand“ í samgöngum til Vestmannaeyja
📅 28.04.2026 21:40:49 👁️ 1

Horfir til betri vegar eftir „ófremdarástand“ í samgöngum til Vestmannaeyja

#ófremdarástand#vestmannaeyja#samgöngum#horfir#betri
Vilja að vændiskaupendur séu nafngreindir og fái bréf heim
📅 28.04.2026 21:27:25 👁️ 1

Vilja að vændiskaupendur séu nafngreindir og fái bréf heim

#vændiskaupendur#nafngreindir#vilja#bréf#heim
Hita­veitur gætu orðið veru­leiki á Græn­landi - Vísir
📅 28.04.2026 21:20:48 👁️ 0

Hita­veitur gætu orðið veru­leiki á Græn­landi - Vísir

#hitaveitur#veruleiki#grænlandi#orðið#vísir
Five takeaways from the King's historic address to US Congress
📅 28.04.2026 21:17:18 👁️ 1

Five takeaways from the King's historic address to US Congress

#takeaways#historic#congress#address#five
Oddvitaumræður í Garðabæ
📅 28.04.2026 21:10:10 👁️ 1

Oddvitaumræður í Garðabæ

#oddvitaumræður#garðabæ
Önnur ákæra gefin út á hendur James Comey
📅 28.04.2026 21:03:19 👁️ 1

Önnur ákæra gefin út á hendur James Comey

#hendur#önnur#ákæra#gefin#james
Mikilvægt að tryggja framboð af húsnæði með viðráðanlega leigu
📅 28.04.2026 20:46:09 👁️ 1

Mikilvægt að tryggja framboð af húsnæði með viðráðanlega leigu

#viðráðanlega#mikilvægt#tryggja#framboð#húsnæði
Bó kvaddur í hinsta sinn - Vísir
📅 28.04.2026 20:38:43 👁️ 1

Bó kvaddur í hinsta sinn - Vísir

#kvaddur#hinsta#vísir#sinn
Tjaldapar með hreiður við hverinn á Laugarvatni
📅 28.04.2026 20:15:17 👁️ 1

Tjaldapar með hreiður við hverinn á Laugarvatni

#laugarvatni#tjaldapar#hreiður#hverinn
Rauða hverfi Reykjavíkur
📅 28.04.2026 20:15:10 👁️ 1

Rauða hverfi Reykjavíkur

#reykjavíkur#hverfi#rauða
Verðlagseftirlitið afturhvarf til fortíðar
📅 28.04.2026 19:34:18 👁️ 1

Verðlagseftirlitið afturhvarf til fortíðar

#verðlagseftirlitið#afturhvarf#fortíðar
Boða fjölgun flug­ferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður - Vísir
📅 28.04.2026 19:29:13 👁️ 1

Boða fjölgun flug­ferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður - Vísir

#bátsferðir#flugferða#fjölgun#felldar#niður
Fella niður bátsferðir en fjölga flug­ferðum - Vísir
📅 28.04.2026 19:29:13 👁️ 1

Fella niður bátsferðir en fjölga flug­ferðum - Vísir

#bátsferðir#flugferðum#fjölga#fella#niður
Gervigreind hjálpar en kemur ekki í staðinn fyrir starfsmenn sem eru látnir fara
📅 28.04.2026 19:13:20 👁️ 1

Gervigreind hjálpar en kemur ekki í staðinn fyrir starfsmenn sem eru látnir fara

#gervigreind#starfsmenn#hjálpar#staðinn#látnir
Vændi á Íslandi — „Teljum að þetta sé meirihlutinn skipulögð starfsemi“
📅 28.04.2026 19:00:18 👁️ 1

Vændi á Íslandi — „Teljum að þetta sé meirihlutinn skipulögð starfsemi“

#meirihlutinn#skipulögð#starfsemi#íslandi#teljum
Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum - DV
📅 28.04.2026 19:00:04 👁️ 1

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum - DV

#barnaníðsteiknimyndum#almannafæri#lostugt#vörslur#athæfi
Telur orkukrísuna undirstrika nauðsyn þess að hætta notkun jarðefnaeldsneytis
📅 28.04.2026 18:49:18 👁️ 1

Telur orkukrísuna undirstrika nauðsyn þess að hætta notkun jarðefnaeldsneytis

#jarðefnaeldsneytis#orkukrísuna#undirstrika#nauðsyn#notkun
FCC to review Disney broadcast licenses after Jimmy Kimmel joke about Melania Trump
📅 28.04.2026 18:49:15 👁️ 1

FCC to review Disney broadcast licenses after Jimmy Kimmel joke about Melania Trump

#broadcast#licenses#melania#review#disney
MPs vote against inquiry into Starmer's claims on Mandelson vetting
📅 28.04.2026 18:48:48 👁️ 2

MPs vote against inquiry into Starmer's claims on Mandelson vetting

#mandelson#against#inquiry#starmer#vetting
Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir á­tök - Vísir
📅 28.04.2026 18:48:34 👁️ 1

Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir á­tök - Vísir

#pílagrímaflug#atlanta#fullri#þrátt#fyrir
US soldier accused of betting on Maduro's removal pleads not guilty
📅 28.04.2026 18:35:10 👁️ 1

US soldier accused of betting on Maduro's removal pleads not guilty

#soldier#accused#betting#removal#maduro
Urðu fyrir von­brigðum með húsnæðispakka tvö - Vísir
📅 28.04.2026 18:31:52 👁️ 1

Urðu fyrir von­brigðum með húsnæðispakka tvö - Vísir

#húsnæðispakka#vonbrigðum#fyrir#vísir#urðu
Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag
📅 28.04.2026 18:28:04 👁️ 1

Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag

#reykjavíkur#flugferðum#fjölgað#milli#eyja
Helstu augna­blikin úr út­för Björg­vins Hall­dórs­sonar - Vísir
📅 28.04.2026 18:23:08 👁️ 1

Helstu augna­blikin úr út­för Björg­vins Hall­dórs­sonar - Vísir

#halldórssonar#augnablikin#björgvins#helstu#útför
Hnífstunga í heima­húsi í Ár­bæ - Vísir
📅 28.04.2026 18:20:38 👁️ 1

Hnífstunga í heima­húsi í Ár­bæ - Vísir

#hnífstunga#heimahúsi#vísir#árbæ
Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng - Vísir
📅 28.04.2026 18:19:44 👁️ 1

Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng - Vísir

#þjóðargersemi#kvöddu#sögum#vísir#söng
In pictures: King Charles and Queen Camilla on US state visit
📅 28.04.2026 18:10:58 👁️ 1

In pictures: King Charles and Queen Camilla on US state visit

#pictures#charles#camilla#queen#state
ESB-aðild sögð jákvæð fyrir stóru útgerðirnar
📅 28.04.2026 17:56:47 👁️ 1

ESB-aðild sögð jákvæð fyrir stóru útgerðirnar

#útgerðirnar#jákvæð#aðild#fyrir#stóru
Hlaut alvarlega áverka eftir hnífsstungu í Árbæ
📅 28.04.2026 17:42:36 👁️ 1

Hlaut alvarlega áverka eftir hnífsstungu í Árbæ

#hnífsstungu#alvarlega#áverka#hlaut#eftir
Icelandair tapaði 5,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi
📅 28.04.2026 17:36:15 👁️ 1

Icelandair tapaði 5,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi

#ársfjórðungi#icelandair#milljörðum#tapaði#fyrsta
Útvarpsstjarna í framboð - DV
📅 28.04.2026 17:30:13 👁️ 1

Útvarpsstjarna í framboð - DV

#útvarpsstjarna#framboð
More UK deaths than births expected every year from now on
📅 28.04.2026 17:22:29 👁️ 1

More UK deaths than births expected every year from now on

#expected#deaths#births#every#more
More UK deaths than births expected every year from now on, ONS projects
📅 28.04.2026 17:22:29 👁️ 0

More UK deaths than births expected every year from now on, ONS projects

#expected#projects#deaths#births#every
Upphafið að endalokum OPEC?
📅 28.04.2026 17:12:45 👁️ 1

Upphafið að endalokum OPEC?

#endalokum#upphafið#opec
Path cleared for Everest climbers after huge glacier blockage
📅 28.04.2026 16:59:47 👁️ 1

Path cleared for Everest climbers after huge glacier blockage

#climbers#blockage#cleared#everest#glacier
Einn skæðasti glæpa­maður Mexíkó gómaður í fráveituröri - Vísir
📅 28.04.2026 16:58:27 👁️ 1

Einn skæðasti glæpa­maður Mexíkó gómaður í fráveituröri - Vísir

#fráveituröri#glæpamaður#skæðasti#gómaður#mexíkó
Játaði að hafa skipu­lagt hryðju­verk á tón­leikum Swift - Vísir
📅 28.04.2026 16:47:32 👁️ 1

Játaði að hafa skipu­lagt hryðju­verk á tón­leikum Swift - Vísir

#hryðjuverk#skipulagt#tónleikum#játaði#swift
Björgvin Halldórsson jarðsunginn
📅 28.04.2026 16:45:30 👁️ 1

Björgvin Halldórsson jarðsunginn

#halldórsson#jarðsunginn#björgvin
The most remote and unspoilt beach in Spain is in the Canary Islands
📅 28.04.2026 16:44:00 👁️ 1

The most remote and unspoilt beach in Spain is in the Canary Islands

#unspoilt#islands#remote#canary#beach
„Það er bara klöppin og stórgrýtið eftir“
📅 28.04.2026 16:39:27 👁️ 1

„Það er bara klöppin og stórgrýtið eftir“

#stórgrýtið#klöppin#eftir#bara
US special relationship is 'probably Israel', says UK ambassador
📅 28.04.2026 16:33:24 👁️ 1

US special relationship is 'probably Israel', says UK ambassador

#relationship#ambassador#probably#special#israel
Fagnar áformaðri íbúðauppbyggingu
📅 28.04.2026 16:31:32 👁️ 1

Fagnar áformaðri íbúðauppbyggingu

#íbúðauppbyggingu#áformaðri#fagnar
Sandra segir rangt að heimgreiðslur séu betri fyrir börn – „Engin haldbær vísindi“ - DV
📅 28.04.2026 16:28:32 👁️ 1

Sandra segir rangt að heimgreiðslur séu betri fyrir börn – „Engin haldbær vísindi“ - DV

#heimgreiðslur#haldbær#vísindi#sandra#segir
Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni - Vísir
📅 28.04.2026 16:22:29 👁️ 1

Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni - Vísir

#barnaníðsefni#gripinn#teiknað#fróaði#vísir
Tæplega 360 milljóna viðsnúningur hjá Símanum
📅 28.04.2026 16:20:15 👁️ 1

Tæplega 360 milljóna viðsnúningur hjá Símanum

#viðsnúningur#milljóna#tæplega#símanum
Áframhaldandi landris og þrýstingur eykst
📅 28.04.2026 15:59:05 👁️ 1

Áframhaldandi landris og þrýstingur eykst

#áframhaldandi#þrýstingur#landris#eykst
Faisal Islam: Why the UAE's exit from Opec is a big deal
📅 28.04.2026 15:55:46 👁️ 1

Faisal Islam: Why the UAE's exit from Opec is a big deal

#faisal#islam#exit#from#opec
Aftökum fjölgað frá 2020
📅 28.04.2026 15:54:17 👁️ 1

Aftökum fjölgað frá 2020

#aftökum#fjölgað