„Ég sé engin rök fyrir því“ - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

„Ég sé engin rök fyrir því“ - Vísir

„Ég sé engin rök fyrir því“ - Vísir

Þetta segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi verkefnastjóri Evrópuvefs HÍ. Deilt hefur verið um það hvort Ísland myndi eiga í aðildarviðræðum eða aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið ef meirihluti kýs að ganga til viðræðna í þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Það má í rauninni segja almennt að þá eru þessar viðræður bæði aðildarviðræður og aðlögunarviðræður,“ sagði Vilborg við Kristján Kristjánsson í Sprengisandi á Bylgjunni. Á sama tíma hafi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fengið það í gegn að fresta aðlögunarhlutanum þangað til að innganga í ESB væri samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Klippa: Viðræður við ESB í senn aðildar- og aðlögunarviðræður

Það sem skeri Ísland úr frá öðrum umsóknarríkjum sé að það er hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og hefur verið það í þrjátíu ár.

„Þannig að við erum í allt annarri stöðu heldur en umsóknarríki almennt hafa verið síðustu tuttugu árin. Þar liggur munurinn. Við erum þegar búin að vera að aðlagast regluverki ESB síðastliðin þrjátíu ár.“

Vissulega eigi annað við á sviðum sem falli ekki undir EES-samninginn á borð við sjávarútveg, landbúnað og menntamál.

„Þá byrjum við að breyta og aðlagast regluverki Evrópusambandsins á þessum sviðum meðan á viðræðunum stendur, áður en þjóðin hefur ákveðið hvort hún vilji gerast aðili að Evrópusambandinu eða ekki. Þetta er það sem er gagnrýnt.

Í aðildarviðræðunum á kjörtímabilinu 2009 til 2013 þá komust stjórnvöld hjá þess konar aðlögun. Í rauninni sömdum við við Evrópusambandið um að breyta ekki reglum á Íslandi meðan á ferlinu stæði en vinna annars konar undirbúning. Þetta snýst sem sagt um að aðildarríki séu klár ef það verður samþykkt að ganga í sambandið.“

Ísland sótti um aðild að ESB árið 2009 og hófust viðræður um ári síðar.Getty

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi komist hjá þessum reglubreytingum á sínum tíma með því að gera nákvæmar áætlanir um hvernig það yrði gert ef aðild yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

„En það reyndi kannski ekki almennilega á það vegna þess að erfiðustu málaflokkarnir og stærstu voru náttúrulega eftir þegar viðræðum var slitið,“ segir Vilborg.

Hún á von á því að ef einhverjar breytingar yrðu gerðar í aðildarviðræðuferlinu og inngöngu síðar hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu þá væri hægt að bakka með þær ef vilji væri til þess.

„Ég sé ekki hvernig við getum ekki tekið til baka breytingar sem við gerum á lögum í gegnum þingið.“

Ekki eitthvað óafturkræft

Vilborg leggur aftur áherslu á að staða Íslands sé óhefðbundin.

„Við erum ekki eins og umsóknarríkin hafa verið síðustu áratugi sem raunverulega vilja mjög ákveðið fara inn og hafa ekkert á móti því að aðlaga sig smám saman að regluverkinu því auðvitað markmiðið er innganga. Við erum svona frekar í þessari „kíki í pakkann“ nálgun svolítið. Nú eru andstæðingar að setja það fram eins og það geti verið í rauninni eitthvað óafturkræft og eitthvað hættulegt en ég þarf bara miklu frekari rök fyrir því. Ég sé ekki að það geti verið raunin.“

Hún telur það aukaatriði hvort talað sé um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið eða halda þeim fyrri áfram.

„Við sjáum að það er ekki meirihluti fyrir því meðal þjóðarinnar og ekki heldur í þinginu að ganga inn. En ég held að margir séu forvitnir um hvað myndi felast í því.“

Sjávarútvegskaflinn var ekki opnaður í aðildarviðræðum við ESB sem hófust árið 2010.Vísir/SIgurjón

Fólk vilji mögulega fá svör við því hvað Ísland myndi græða á því að ganga inn í sambandið.

„Það einhvern veginn ber meira á umræðunni á móti og þá er það kannski komið frekar út í ákveðinn hræðsluáróður. Við stöndum vel efnahagslega, fólk hefur það nokkuð gott. Ég held að í mörgum ríkjunum auðvitað er það ekki raunin og fólk bara þráir að fá betri efnahag, betri umgjörð og svo framvegis.

Við erum öðruvísi hvað það varðar. En það er þar með ekki sagt að það sé ekki hægt að semja um ákveðnar lausnir og það er ekki þar með sagt að Evrópusambandið skilji ekki að við erum öðruvísi. Þau átta sig alveg á því. Við erum ríkt ríki, þetta er annars eðlis. Þannig að það er ekki alveg hægt að bera það heldur saman við ríki sem hafa sótt um áður úr Austur-Evrópu til dæmis og á Balkanskaga. Þetta er annað.“

Sjávarútvegurinn spili stórt hlutverk

Vilborg telur að stór hluti Íslendinga sé óákveðinn þegar kemur að inngöngu í ESB og sjávarútvegurinn spili þar stórt hlutverk.

Aðlögunin snúist að hluta til að því að stjórnsýslukerfið sé tilbúið að uppfylla skuldbindingar aðildar ef af henni verður. Það varði til að mynda stofnanastrúktúr og að ákveðin kerfi séu til staðar sem séu virk sem fyrst eftir að aðildarsamningur gengur í gegn.

Gagnlegt væri ef ríkisstjórnin gæfi út að hún myndi nálgast hugsanlegar viðræður líkt og fyrri stjórnvöld, að sögn Vilborgar, þar sem því var lýst yfir að aðlögun yrði frestað.

Vilborg á von á því að viðræðurnar um sjávarútvegsmál verði flóknastar en sá kafli var ekki opnaður í síðustu aðildarviðræðum. Hún á von á því að heildartími viðræðna verði lengri en ríkisstjórnin hafi gert ráð fyrir.

Liggi ekki fyrir hvort samþykkja þurfi aðildarumsókn aftur

Vilborgu finnst óljóst hvort aðildarríki ESB muni aftur þurfa að samþykkja að hefja aðildarviðræður við Ísland ef sú niðurstaða verður ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

„Þetta er ákveðið frumkvöðlastarf hjá okkur Íslendingum að vera með tvær þjóðaratkvæðagreiðslur. Það hefur ekki verið gert áður þannig að það er ekki fordæmi fyrir því.“

Ursula Von Der Leyen er forseti framkvæmdastjórnar ESB.Vísir/EPA

Almennt sé nálgunin hjá Evrópusambandinu sú að næsta skref feli í sér aðildar- og aðlögunarviðræður en Ísland sé frekar sérstakt tilfelli líkt og áður segir.

„Það er þessi spurning, getum við samið af okkur þessa aðlögun, það er að segja með því að gera nákvæmar áætlanir, innleiðingaráætlanir og annað um hvernig við munum taka upp löggjöfina ef við segjum já í síðari atkvæðagreiðslu.“

Vilborg bendir á að mikið af gagnlegu efni sé að finna á Evrópuvefnum. Unnið sé að því að uppfæra efni á vefnum en mikið af svörum frá tíma síðustu aðildarviðræðna eigi enn við.

#engin #fyrir #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262871368d/-eg-se-engin-rok-fyrir-thvi-

📰 Aðrar fréttir

Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 1
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 1
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 1
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 2
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 1
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 2
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 2
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 1
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 2
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 2
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
📅 25.10.2026 👁️ 1
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
📅 25.10.2026 👁️ 2
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
Serbia is heading to the polls as a student movement attempts to oust longtime populist leader Aleksandar Vučić.
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 3
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 4
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um v...
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
📅 25.10.2026 👁️ 3
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
📅 25.10.2026 👁️ 2
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
The International Weightlifting Federation becomes the first Olympic federation to choose Russia to host a world championships since its invasion of U...
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála e...
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá...
Laxveiði jókst um 35% milli ára
📅 25.10.2026 👁️ 3
Laxveiði jókst um 35% milli ára
12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta ke...
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð...
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
📅 25.10.2026 👁️ 3
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
Leanne Gregory, from Stapleford in Nottinghamshire, died trying to save her sons swept out to sea.
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
📅 25.10.2026 👁️ 3
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju Fréttin25. október 2026Eldur Smári, Innlent, ÍþróttirLeave a Comment Emin Kadri. Eldur Smári...
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frum...
LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 3
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 4
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 4
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs, spyr Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfus...