Það er fátt sem segir meira um „mid-life“ krísu en þegar ný garðslanga verður tilefni að einlægri öfund. En það er nákvæmlega það sem gerðist í nýjasta þætti Menn eins og við, þar sem þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið eins og það blasir við körlum sem eru komnir á þann aldur að kunna að meta bæði gott gróðurhús og enn betri garðslöngu.
„Ég er bara kominn með garðslönguöfund“