Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í 12 ára fangelsi. Hún var ákærð fyrir að bana dóttur sinni Catherine Mancel á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025.
Hún var ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns.
Mancel ætlar að áfrýja dómnum að sögn verjanda hennar, Ómars Arnar Bjarnþórssonar.
Fjölskyldan var á ferðalagi um Ísland en þau eru ættuð frá Frakklandi og voru búsett á Írlandi. Mancel hefur sagt að fjölskyldan hafi ákveðið að koma til Íslands til að deyja saman.
Hugmyndin hafi kviknað því eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.
Fréttin verður uppfærð.