Laugardaginn 29. ágúst næstkomandi fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
DV hefur fengið könnunarfyrirtækið Maskínu til að spyrja sömu spurningar, niðurstöðurnar munu liggja fyrir og verða birtar á morgun, laugardaginn 13. júní, kl. 9:00.
Fyrir liggja ýmsar kannanir þar sem spurt er um hvort landsmenn séu hlynntir eða andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu, þar á meðal ný könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið, þar var spurt hvort fólk væri hlynnt eða andvígt því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Samkvæmt þeim niðurstöðum eru 54 prósent andvíg inngöngu og 46 prósent hlynnt, þegar þeir sem svöruðu Hvorki né voru teknir með í reikninginn voru 39 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið, 16 prósent hvorki né og 46 prósent andvíg.
Frá því að þingsályktunartillagan um þjóðaratkvæðagreiðsluna var samþykkt á Alþingi hefur ekki komið könnun um hvernig Íslendingar ætla að kjósa, verður því spennandi að sjá niðurstöðurnar á morgun.