Alls hafa 17 Norðmenn drukknað í tengslum við siglingar á skemmtibátum á fyrsta helmingi þessa árs, samkvæmt norsku siglingamálastofnunni.
Norska ríkisútvarpið segir að þetta sé mesti fjöldi sem drukknað hefur með þessum hætti yfir sama tímabil í 10 ár. Allir hinna látnu voru karlmenn og flestir yfir 40 ára aldri. Ellefu þeirra voru ekki í björgunarvesti eða flotgalla þegar slysið átti sér stað. Flest slysin áttu sér stað í litlum opnum skemmtibátum.