Bæjarráð á Akureyri samþykkti á dögunum að koma að verkefni lögreglunnar á Norðurlandi eystra að taka í notkun löggæsludróna í Hrísey og Grímsey. Þegar eru tveir löggæsludrónar á Akureyri. Bergur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi eystra, segir þetta mikilvægt landsbyggðarmál fyrir lögreglu í stærri umdæmum þar sem ekki er mönnuð löggæsla allan sólarhringinn.
„Þetta hefur bara sýnt sig nú þegar að vera gott viðbótartæki fyrir lögregluna. Fyrir öryggi lögreglumanna, fyrir öryggi almennings þá líka. Ég get ekki betur séð en þetta verkefni muni skila fallegri niðurstöðu,“ segir Bergur.
Oft sneggri en mannaðir lögreglubílar
Drægni lögregludrónanna er um sex kílómetrar og þeir hafa þegar komið að góðum notum við ýmis verkefni á Akureyri. Þeir eru oft sneggri að bregðast við en mannaðir lögreglubílar, þegar tilkynnt er um afbrot eða ef leita þarf að týndu fólki. Bergur vonar að uppsetningin í Hrísey og Grímsey hefjist strax - sér í lagi þar sem fjölgar í eyjunum yfir sumartímann.
Við eigum eftir að sjá meiri útbreiðslu hef ég trú á á næstunni. Þegar við förum að sjá hvernig þetta nýtist í þessum dreifðari byggðum. Við horfum á þetta bara sem landsbyggðarmál.
Bergur sér fyrir sér að þegar net drónanna stækki verði einn lögreglumaður á vakt sem sjái alfarið um að stýra drónunum - og gæti þeim verið stýrt miðlægt fyrir allt landið, ef vilji er til þess: „Uppbygging á svona kerfi þarf ekkert að fara fram í Reykjavík. Það er hægt að sinna öðrum embættum ef því er að skipta,“ segir Bergur Jónsson.