Úkraínuher gerði í nótt drónaárásir á olíuinnviði í nágrenni við næststærstu borg Rússlands, Sankti Pétursborg. Úkraínuforseti segir árásirnar gerðar til að aftra Rússum frá því að afla sér tekna til stríðsrekstursins með olíuviðskiptum.
Úkraínumenn hafa hert árásir á olíuinnviði Rússa síðustu mánuði og farið er að bera á skorti á eldsneyti. Sums staðar hefur verið gripið til þess ráðs að skammta bensín og dísilolíu. Fregnir hafa borist af því að fólk hafi beðið löngum stundum í röð á bensínstöðvum.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að Úkraínuher hefði gert árásir á olíuhöfn sem Rússar nýti til að afla tekna til að knýja stríðsrekstur sinn áfram. Þá sagði Zelensky að gerðar hefðu verið árásir á Kronstadt, mikilvæga flotastöð nálægt Sankti Pétursborg.
Úkraínumenn gerðu árásir víðar á olíuinnviði í og við Pétursborg í nótt. Borgin er sú næststærsta í Rússlandi og þar búa um sex milljónir manna. Borgarstjórinn Alexander Beglov sagði í morgun að árásirnar hafi verið stórfelldar en að ekkert manntjón hafi orðið. Stjórnvöld segja að tugir dróna hafi verið skotnir niður. Einn hafi lent í Peterhof. Það er sögufrægur staður, höll og garðar frá átjándu öld, utan við borgina. Ekki hafi orðið skemmdir þar.
Stjórnvöld í héraðinu Bryansk og á Krímskaga, sem Rússar innlimuðu 2014, hafa greint frá drónaárásum í morgun og að einn hafi verið drepinn í hvoru héraði.
Mikill þungi hefur verið í árásum Rússlandshers á Úkraínu síðustu daga. Borgarstjóri Kyiv lýsti árásum á borgina aðfaranótt fimmtudags sem þeim mestu hingað til. Þrjátíu voru drepnir og yfir níutíu særðir. Meðal skotmarka Rússlandshers voru íbúablokkir.