Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Drögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að reglugerðin nái einnig til frístundaheimila og tómstunda- og félagsstarfs.
Markmið hennar sé að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum, ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina.
Í drögunum er meðal annars lagt til að notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla verði óheimil á skólatíma. Þá skuli slík tæki geymd á fyrir fram ákveðnum stað á skólatíma sem ekki er aðgengilegur nemendum, í þar til gerðum skápum, hólfum eða geymslukössum.
Fram kemur í drögum reglugerðarinnar að nemendur fái tækifæri til að taka þátt í innleiðingu og framkvæmd hennar. Þannig verði nemendum gert kleift að meta áhrif innleiðingarinnar og hvernig megi koma til móts við þá, til dæmis með afþreyingu í frímínútum.