Um 350 manns mættu í Sambíóin í Egilshöll til að sjá söngvamyndina Hvar er draumurinn?, sem byggir á lögum hljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns.
Verkefnið á rætur að rekja til söngleiks sem Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setti upp fyrir þremur árum. Eftir góðar viðtökur var ákveðið að ráðast í gerð bíómyndar.
Myndin fjallar um ungt fólk sem stendur á tímamótum eftir menntaskóla og reynir að finna út úr því hvað það vill gera í lífinu, á meðan ástin og vináttan flækja málin.
Leikstjórinn Höskuldur Þór segir taugarnar vera þandar fyrir forsýninguna. „Já, þær eru í botni, eigum við ekki bara að segja það.“
„Það er alveg magnað þegar hlutirnir eru gerðir af svona blóði á tönnunum og bara ástríðu,“ segir Mikael Kaaber, sem fer með aðalhlutverkið.