Vilborg Hjaltested, dóttir Vatnsendaerfingjans Magnúsar Hjaltested, segir að umdeild erfðaskrá um Vatnsenda sé kýrskýr og eigi að fá að standa óbreytt. Erfðaskráin lýsi eindregnum vilja þess sem hana ritaði fyrir 90 árum. Tilfinningar fólks í dag eigi ekki að fá að breyta því.
Í hlaðvarpsþáttunum Álögin á Vatnsenda er fjallað um hatrammar deilur sem staðið hafa yfir í áratugi um jörðina Vatnsenda í Kópavogi. Deilurnar eiga rætur sínar að rekja til erfðaskrár sem eigandi Vatnsendajarðarinnar gerði 1938. Eigandinn gaf frænda sínum, Sigurði K. Hjaltested, jörðina og fyrirskipaði að jörðin ætti að ganga í erfðir frá elsta syni til elsta sonar.
Hér má heyra fyrsta þáttinn.
Allt frá því Magnús Hjaltested, elsti sonur Sigurðar, tók við jörðinni 1969 hefur Hjaltested-ættin tekist á um réttmæti erfðaskrárinnar. Aðrir afkomendur Sigurðar hafa viljað fá henni hnekkt og benda á að hún stangist á við erfðalög og stjórnarskrá Íslands sem kveður á um að ekki megi mismuna fólki eftir kyni.
Eftir að erfðaskráin var rituð hefur Vatnsendajörðin gengið milli fjögurra ættliða. Sá sem nú ræður ríkjum á Vatnsenda erfði jörðina aðeins 16 ára gamall.
Andstæðingar erfingjanna mótað fjölmiðlaumfjöllunina
Vilborg Hjaltested lýsir því í þáttunum hvernig fjölmiðlaumfjöllun um Vatnendamálin hafi litast af skoðunum þeirra sem vildu fá sinn skerf af arfinum en áttu ekki rétt á honum. Hún segir frá því að Magnús faðir hennar hafi aldrei viljað gefa sig á tal við fjölmiðla. Andstæðingar erfingjanna í hinum heiftarlegu deilum hafi því setið einir að því að lýsa atburðarásinni í fjölmiðlum. Sagan sé því að mati Vilborgar verulega langt frá raunveruleikanum.
Dómstólar samþykkja erfðaskrána
Á annan tug dóma hafa fallið í ýmsum deilumálum um Vatnsendajörðina á undanförnum áratugum. Dómstólar hafa ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að erfðaskráin sé gild og eigi að ráða för á þessu stóra landi. Enn eru þó nokkrir angar Vatnsendamála óútkljáðir fyrir dómstólum, þar með talið hjá Mannréttindadómstóli Evrópu.
Hlutar Vatnsendajarðarinnar eru álitnir framtíðarbyggingarland höfuðborgarinnar og þar stendur til að reisa nokkur þúsund manna byggð á næstu árum.
Í þriðja og síðasta þættinum um álögin á Vatnsenda má meðal annars heyra viðtalið við Vilborgu Hjaltested.