Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu konu, sem sætir ákæru fyrir fjölda afbrota gegn þremur mönnum og aðstandendum þeirra, um að réttarhöld yrðu lokuð. Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir eru á sjöunda tug.
Þetta staðfestir Helga Vala Helgadóttir Bachmann, lögmaður konunnar, í samtali við fréttastofu.
Konan var ákærð fyrir umsáturseinelti, rangar sakagiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. Brotin beindust gegn þremur mönnum og dætrum tveggja þeirra en hún birti einnig falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu í apríl.
Við uppkvaðningu úrskurðarins í dag kom fram að málið yrði ekki flutt fyrir dómstólum fyrr en í haust. Gert er ráð fyrir því að aðalmeðferð þess fari fram í september eða október.