Íslensk stjórnvöld hafa hingað til ekki látið framkvæma DNA-rannsóknir til að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi hefur verið veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar. Nú á það að breytast.
Dómsmálaráðuneytið hefur undirritað samning við Alþjóðafólksflutningastofnunina (IOM) um framkvæmd DNA-sýnatöku og aðstoð við afhendingu ferðaskilríkja vegna fjölskyldusameiningarmála. Markmiðið er að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi er veitt og umsækjendur ferðast til Íslands.
„Íslensk stjórnvöld hafa hingað til ekki látið framkvæma DNA rannsókn til að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með samningnum verður hægt að ganga úr skugga um að þau fjölskyldutengsl sem umsókn byggist á séu raunveruleg og við færum okkur nær þeirri framkvæmd sem tíðkast á Norðurlöndunum,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu ráðuneytisins.
Kom í ljós að fjölskyldutengsl stóðust ekki
Samkvæmt ráðuneytinu hafa komið upp mál þar sem DNA-rannsóknir, sem framkvæmdar voru eftir komu til Íslands, leiddu í ljós að börn voru ekki líffræðilega skyld þeim sem sögðust vera foreldrar þeirra. Slík mál hafa skapað flókna stöðu þar sem stjórnvöld hafa þurft að meta hvað væri barninu fyrir bestu eftir að það var komið til landsins.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að þegar umsóknir hafa komið frá ríkjum þar sem opinber gögn eru talin óáreiðanleg eða fölsun skjala algeng hafi dvalarleyfi stundum verið veitt með þeim fyrirvara að DNA-rannsókn færi fram eftir komu til landsins. Með nýja samningnum verður hægt að framkvæma rannsóknina áður en ferðalagið hefst.
Gildir ekki afturvirkt samkvæmt fyrirliggjandi gögnum
Margir hafa spurt hvort nýja fyrirkomulagið þýði að þeir sem þegar hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar verði kallaðir inn í DNA-rannsókn.
Hvorki í fréttatilkynningu dómsmálaráðuneytisins né í samningnum við IOM er kveðið á um slíkt. Þvert á móti bendir allt til þess að um sé að ræða nýtt verklag fyrir umsóknir sem eru til meðferðar eða verða afgreiddar framvegis, en ekki endurskoðun eldri mála.
Það þýðir að fjölmörg dvalarleyfi sem þegar hafa verið veitt án DNA-staðfestingar virðast ekki verða tekin til endurskoðunar á grundvelli þessa samnings. Að minnsta kosti hafa stjórnvöld ekki kynnt neina áætlun um afturvirkar DNA-rannsóknir.
Samningur til ársloka 2028
Samningurinn gildir til 31. desember 2028. Samkvæmt upplýsingum dómsmálaráðuneytisins nemur heildarkostnaður hans um 505 þúsund evrum, eða rúmlega 72 milljónum króna á núverandi gengi. Með samningnum segja stjórnvöld að Ísland færist nær þeirri framkvæmd sem þegar er við lýði á öðrum Norðurlöndum.