Þingmaðurinn Diljá Mist Einarsdóttir er búin að stofna nýjan Facebook-hóp fyrir þjáningarsystur sínar, konur sem eiga í vandræðum með að finna sér skó því þær eru með svo smáa fætur. Hópurinn heitir Litlir kvenmannsfætur og þar geta smáfættar auglýst skó til sölu og gefið góð ráð varðandi skókaup. Diljá greinir frá þessu á Facebook:
„Ég átti samtal í morgun við konu með litlar fætur sem á eins og ég oft í vandræðum með að finna skó (st. 35/36). Búðir bjóða sjaldnast upp á númer undir 36 nema þá barna, og hringrásarverslanir skilst mér að sitji oft uppi með minnstu númerin. Ég tók mig þvi til og stofnaði facebook-hóp þar sem hægt er að auglýsa litla kvenmannsskó til sölu og gefa góð ráð varðandi sölustaði.“