Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti varar bandarísk stjórnvöld við að allar atlögur að eyríkinu komi af stað blóðbaði með óhugnanlegum afleiðingum.
Forsetinn sagði þetta í færslu á samfélagsmiðlinum X og áréttaði jafnframt að Bandaríkjunum eða hvaða öðru ríki sem er stafaði engin hætta af Kúbu.
Diaz-Canel birti færsluna í kjölfar þess að vefritið Axios sagði Rússa og Írana hafa sent kúbverskum yfirvöldum á fjórða hundrað árásardróna og að þau hygðust beita vopnunum gegn bandarískum skotmörkum. Þar voru sérstaklega nefnd herstöð Bandaríkjanna við Guantanamoflóa, bandarísk herskip og jafnvel Key West á Flórída.