Deila um transkonu í karlafangelsi

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Karlkyns fangi sem skilgreinir sig konu á ekki sjálfkrafa rétt á því að vera vistaður í kvennafangelsi samkvæmt lögum í Vestur-Ástralíu. Þetta hefur dómsmálaráðuneyti ríkisins haldið fram, þar sem það berst nú fyrir því að halda sjálfsskilgreinandi karlföngum áfram í karlafangelsi.
Þetta skítur skökku við að reynt sé að halda karlfanga frá kvennafangelsi. Þeir eiga ekki að koma þar inn. Konur eiga rétt á að afplána dóma sína án þess að karlmaður sé í návist þeirra, þó hann skilgreinir sig sjálfur sem konu. Verið er að tala um viðkæmasta hóp kvenna, þær sem eru í fangelsi.
Skilgreindi sig seint
Fanginn, sem af lagalegum ástæðum er aðeins nefndur með upphafsstöfunum SD, hefur skilgreint sig sem konu síðan hann var sendur í fangelsi. Hann hefur farið fram á dómsúrskurð um að verða fluttur í sérstakt kvennafangelsi.
Stjórnsýsludómstóll ríkisins (State Appeal Tribunal) úrskurðaði upphaflega SD í hag, en ríkið fékk bráðabirgðalögbann áður en áfrýjunarmálið hófst.
Áfrýjunin var tekin fyrir í Hæstarétti Vestur-Ástralíu á miðvikudag. Lögmenn dómsmálaráðuneytisins héldu því fram að opinber kynskráning SD og formleg breyting á fæðingarvottorði veittu honum ekki sjálfkrafa rétt til að vera fluttur úr karlafangelsinu.
Rökrétt, þessi breyting á kynskráningu er til friðþægja fólk sem líður illa í eigin skinni, ekki til að hafa af konum réttindi eins og þessi karlmaður og lögmenn hans vilja.
Adam Sharpe, lögfræðingur dómsmálaráðuneytisins, sagði við þinghaldið að ekkert í löggjöf Vestur-Ástralíu kveði á um að fangar skyldu vistaðir í fangelsum eftir kyni.
„Það er enginn réttur fyrir kvenkyns fanga til að vera vistaður í kvennafangelsi,“ sagði hann.
Hugsið ykkur þá niðurlægingu, og brot á réttindum, sem konur verða fyrir þegar karlmenn sem segjast konur eru vistaðir með þeim í fangelsi. Hvar er öryggið? Hvar er réttur kvennanna?
Barristerinn Rachael Young, sem starfar fyrir SD, sagði að dómstóllinn þyrfti ekki að finna sérstakt lagaákvæði til að komast að þeirri niðurstöðu að skjólstæðingur hennar hefði orðið fyrir mismunun vegna kyns með því að vera ekki fluttur í kvennafangelsi.
Hún sagði að ríkið hefði, með því að gefa SD nýtt fæðingarvottorð þar sem kyn hans væri skráð sem kvenkyns, veitt honum réttinn til að segja við umheiminn: „Ég er kona.“
Í staðinn, sagði Young, væri framkvæmdastjóri dómsmálaráðuneytisins að grípa inn í rétt SD til þess að vera viðurkennd sem kona.
Þetta dæmi sýnir hve vitlaus lögin um kynrænt sjálfræði eru og byggja á transhugmyndafræðinni. Ríki um allan heim eiga snúa hjólinu við og afnema lög sem leyfa breytingar á kyni, því engin breyting hefur átt sér stað. Enginn er kona við það eitt að segja það. Líffræðina þarf til.
Fangelsið berst fyrir réttindum kvenna
„Forstjórinn heldur áfram að neita að viðurkenna afgerandi gögn um að SD sé kona,“ sagði Young.„ Hann heldur áfram að skrá hann sem karlkyns í gögnum ráðuneytisins og heldur áfram að vista hann í fangelsi þar sem allir aðrir fangar skilgreina sig sem karlmenn.“
Auðvitað eru karlmenn í fangelsinu, þeir eru fæddir karlmenn og skilgreina sig ekki nokkurn skapaðan hlut.
Hugarleikfimi trans-hugmyndafræðinnar er að menn fæðist ekki sem ákveðið kyn, heldur að þeir skilgreinir sig eitthvað.
Lögmenn SD segja að skjólstæðingur þeirra hafi orðið fyrir mörgum kynferðislegum og líkamlegum árásum í fangelsinu frá því hann hóf ,,kynleiðréttingarferlið.”
Talið er að hann hafi hafið kynleiðréttingarferlið skömmu eftir að hann var fangelsaður og hafi gengist undir hormónameðferð og sálfræðimeðferð. Hann hefur einnig höfðað mál gegn ríkinu vegna mismununar á grundvelli kyns.
Vonandi verður þetta dómsmál til að ríki breyti þessum kjánalegum lögum sem þeir bjuggu til, aðallega til að mæta draumórum og óskum fárra einstaklinga, sem þó hafa af konum réttindi eins og þetta dæmi sínir glögglega.
Lögmenn dómsmálaráðuneytisins höfðu áður varað við því að SD myndi líklega þurfa að eyða mestum hluta tímans lokaður inni í klefa sínum ef hann yrði fluttur í kvennafangelsi.
Áfrýjunin var tekin fyrir af Craig Bydder dómara, sem hafði áður fellt úrskurð í málinu.
Málið er sagt vera fyrsta þekkta dæmið í Vestur-Ástralíu þar sem fangelsiskerfið stendur frammi fyrir slíkri áskorun, sem hefur reynst stjórnvöldum í Ástralíu flókin.
Fyrir venjulegan mann er málið ekki flókið, karlmaður hefur ekkert í kvennafangelsi að gera, réttur og öryggi kvenna til að afplána án karlfanga á að vera rétthærri en draumur, upplifun og óskir karlmanns um að vera kona og komast af þeim sökum í kvennafangelsi.
Búið að banna karla sem skilgreina sig sem konur
Í október síðastliðnum varð Norður-Ástralía fyrsta fylkið/svæðið í Ástralíu til að banna að karlmenn sem segjast kona séu vistaðir í kvennafangelsum. Bannið kom í kjölfar upplýsinga um að kvenkyns fangi í Suður-Ástralíu hefði orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu karlmannsins sem skilgreinir sig konu og var vistaður í sama klefa.
Slíkt ofbeldi sætta ríki sig við með þeirri heimskulegu löggjöf að karlmaður geti verið kona og öfugt, allt til að þóknast trans hugmyndafræðinni, sem byggist á skoðunum manna, ekki vísindum né sannleika.
Og, í febrúar kom í ljós að stjórnvöld í Viktoríu greiddu kvenkyns fanga bætur sem hafði orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu karlfanga, morðingja, sem skilgreindi sig konu.
Morðingja, hvað er þá kynferðilegt ofbeldi í samanburði við það. Er í lagi að taka áhættu með konur í fangelsum?
Á meðan brotið er á konum, má spyrja:
Hver er réttur kvenfanga?
Hvar eru kvenréttindasamtök?
Hvar er Amnesty?
Hvar eru þingmenn?
Kjarni transmálsins: enginn karlmaður ætti að eiga rétt á að vera löglega viðurkenndur sem kona. Engin. Núll. Ekkert.
Heimild: Department of Justice fights trans prisoner’s right be placed in a female WA jail | The Australian