Þeir sem eru óákveðnir fyrir 29. ágúst geta verið óhræddir við að segja já, því þeir geta sagt nei síðar þegar samningur liggur fyrir. Ákvörðun um að hefja viðræður að nýju er auðvitað ekki sú sama og að samþykkja aðild.Samt hefur stór hluti málflutnings gegn viðræðunum gengið út á að með því einu að hefja viðræður sé niðurstaðan nánast gefin; við missum fullveldið, tökum samstundis upp allar reglur ESB, gefum eftir yfirráð yfir auðlindum og Ísland sé á einhvern undarlegan hátt bara komið í ESB án þess að fatta það. Allt er þetta rangt eða villandi, þegar best lætur.
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Við erum ekki að kjósa um aðild 29. ágúst!