Dönsk stjórnvöld greindu í kvöld frá því að Rússar hefðu lagt á ráðin um að vinna skemmdarverk sem beinast gegn dönskum fyrirtækjum. Meðal skotmarka Rússa eru fyrirtæki í varnariðnaði sem veita Úkraínu hernaðaraðstoð. Það segir Emil Græsholm, yfirmaður gagnnjósna hjá dönsku leyniþjónustunni, PET, í samtali við Berlingske.
„Þetta er ekki aðeins viðvörun um að svona nokkuð geti gerst í Danmörku einn daginn. Við sjáum að undirbúningur er hafinn. Af alvöru,“ segir Græsholm.
Það er óalgengt að starfsmenn PET veiti fjölmiðlum viðtöl. Græsholm segir að í ljósi alvarleikans telji PET það nauðsynlegt að greina frá þessari ógn því hana þurfi að taka alvarlega.
Í svari leyniþjónustunnar við fyrirspurn danska ríkisútvarpsins, DR, segir að Rússar hafi reynt að ráða Dani til þess að sinna njósnum. Það hafi meðal annars verið gert á samfélagsmiðlum. Leitast hafi verið eftir því að fólk taki ljósmyndir af fyrirtækjum eða mannvirkjum.
„Það væri grafalvarlegt ef almenningur í Danmörku aðstoðaði rússnesku leyniþjónustuna, hvort sem það væri gert af ásetningi eða óvart,“ segir Græsholm við DR.