Lagið Lyse nætter með söngkonunni Alberte Winding var valið besta danska lag allra tíma í sérstakri kosningu danska ríkisútvarpsins.
Þessi ljúfa ballaða sló í gegn þegar hún kom fyrst út árið 1991 en varð svo aftur vinsæl í heimsfaraldrinum árið 2020. Þá var það mikið sungið fyrir framan sjónvarpsskjái og úr háaloftum og svölum þegar Danir sameinuðust í söng til að gera lífið bærilegra í þeirri einangrun sem heimsfaraldurinn skapaði.
Alberte sagði sjálf eftir að úrslitin voru kynnt að ástæðan fyrir því að lagið hreppti hnossið væri líklega að lagið hentaði vel í samsöng í skírnarathöfnum, brúðkaupum, jarðarförum og öðrum sambærilegum athöfnum. Lagið samdi hún sem saknaðarljóð, bæði til bróður síns sem hafði búið lengi í Bandaríkjunum og til móður sinnar sem svipti sig lífi þegar Alberte var átta ára gömul.
DR segir að sigur lagsins hafi verið afgerandi. Allir aldurshópar yfir þrítugt hafi sett lagið í efsta sætið sem segir talsvert um þann sess sem þetta lag hefur í danskri þjóðarsál.
Þó að Kim Larsen, sá danski tónlistarmaður sem hefur líklega verið þekktastur meðal Íslendinga undanfarna áratugi, hafi ekki náð toppsætinu, var hann áberandi í þessu vali. Hann átti lögin í sætum 2-4 en það eru kannski ekki þau sem hafa náð mestu flugi hér á landi. Kvinde min með hljómsveit hans Gasolin' var númer tvö en það er af mörgum talið besta ástarlag danskrar tónlistar. Það lag kom út árið 1975.
Í þriðja sæti var lagið Pianomand, sem kom út árið 1989. Það lag samdi Larsen til vinar síns Niels Pallesen, sem dó úr krabbameini árið áður. Lagið er mikið notað í jarðarförum í Danmörku.
Larsen átti líka lögin í 4. sæti (Om lidt), 7. sæti (De smukke unge mennesker) og 19. sæti (Midt om natten), auk tveggja laga til viðbótar neðar á listanum.
Meðal fleiri þekktra laga á listanum má nefna Tusind stykker með Anne Linnet sem hafnaði í 20. sæti, Danmark með Shu-Bi-Dua sem hafnaði í 24. sæti og Barbie Girl með Aqua sem varð í 39. sæti.
Nokkur af dönsku Eurovision-lögunum komust líka inn á listann. Það sem komst hæst var Smuk som et stjerneskud með Olsenbræðrum, sem sigraði í keppninni árið 2000 undir nafninu Fly on the wings of love. Það hafnaði í 10. sæti.