Dæmdur fyrir nauðgun á nýársmorgun: Lögreglan vopnaðist - MBL.IS

Dæmdur fyrir nauðgun á nýársmorgun: Lögreglan vopnaðist - MBL.IS

Dæmdur fyrir nauðgun á nýársmorgun: Lögreglan vopnaðist - MBL.IS

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Wenwei Zhang í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun.

Hann var enn fremur dæmdur til að greiða konu tvær milljónir króna í miskabætur. Zhang og konan væru bæði ferðamenn á Íslandi.

Héraðssaksóknari gaf út ákæru á hendur Zhang í desember. Þar kom fram að hann væri ákærður fyrir nauðgun með því að hafa að morgni 1. janúar 2024 í svefnherbergi í íbúð í
Reykjavík, án samþykkis, haft samræði og önnur kynferðismök við konuna. Fram kom að hann hefði beitt hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Hann hefði endurtekið beðið hana um samræði, ýtt henni á rúmið, afklætt hana og haldið henni niðri og komið fram vilja sínum.

„Ákærði skeytti því engu þótt A ítrekaði með orðum og athöfnum að hún vildi þetta ekki og bæði hann um að láta af háttseminni og klóraði og klipi ákærða,“ segir í ákærunni.

Var vopnaður eggvopni

Fram kemur í dómi héraðsdóms, sem féll 2. júlí en var birtur í dag, að á nýársdagsmorgun 2024 hafi lögreglumenn verið sendir að íbúð í Reykjavík vegna manns sem væri vopnaður eggvopni og hefði veitt sér áverka.

Lögreglumenn vopnuðust og fengu liðsinni sérsveitar ríkislögreglustjóra vegna aðstæðna. Er inn var komið var maðurinn, sem reyndist vera Zhang, færður inn í herbergi innst í íbúðinni. Hann hafði skorið sig í handlegg með flökunarhníf og voru áverkar yfirborðskenndir. Auk hans var kona inni í íbúðinni sem sat á rúmi og reyndist þar vera um konuna að ræða.

Íbúðin mjög óþrifaleg

Íbúðin var mjög óþrifaleg og áfengisumbúðir lágu á víð og dreif. Í stofunni voru hjón
sem kváðust vera eigendur íbúðarinnar og sögðust þau hafa leigt hana út í skammtímaleigu í
gegnum AirBnb.

Lögreglumenn ræddu við viðstadda til að segja frá því hvað hefði átt sér stað í íbúðinni.
Konan kvaðst þekkja Zhang lítið en þau hefðu kynnst viku áður þegar hann hefði
verið fenginn til að aka fyrir hana og vinahóp hennar í ferð þeirra hingað til lands. Hópurinn hefði dvalið í íbúðinni.

Höfðu vinir konunnar farið af stað til Keflavíkurflugvallar um kl. 3 aðfaranótt nýársdags til að ná flugi og Zhang ekið þeim þangað. Hann hefði snúið aftur um tveimur tímum síðar og haft meðferðis áfengisflöskur. Hann hefði boðið henni áfengi og þau drukkið saman.

Skömmu síðar hefði hún ákveðið að fara að sofa en Zhang þá falast eftir kynlífi. Hún hefði hafnað því en hann þá ýtt henni á rúmið, afklætt hana gegn vilja hennar og nauðgað henni, að því er segir í dómi héraðsdóms. 

Tók tvo hnífa þar sem hún óttaðist manninn

Konan kvaðst hafa reynt að fá Zhang til að hafa samband við lögreglu með sér. Hún hefði rætt við hann en tekið með sér tvo hnífa úr eldhúsinu þar sem hún hefði óttast hann.

Hún sagði að hann hefði ekki viljað samband við lögreglu og reynt að fá hana til að leysa málið með öðrum hætti. Hann hefði síðan tekið beitta hnífa úr eldhúsinu og farið að skaða sig með þeim. Konan hefði þá sent beiðni um aðstoð í gegnum leigusala íbúðarinnar sem komu á vettvang og hringdu í lögreglu.

Fram kemur í dómi héraðsdóms að Zhang hafi neitað sök. Hann hélt því fram að samræði hefði átt sér stað að frumkvæði konunnar og með fullu samþykki hennar.

Ótrúverðugar skýringar

Það er aftur á móti mat héraðsdóms að skýringar Zhang hafi verið ótrúverðugar og ekki í samræmi við gögn málsins. Lýsingar hans á atvikum í kjölfar brotsins og háttsemi hans bendi til þess að honum hafi verið fullljóst hvaða ásakanir konan bar á hann. Framburður hans verði því talinn ótrúverðugur og niðurstaða málsins verði ekki byggð á honum.

Framburður konunnar hafi hins vegar verið stöðugur og trúverðugur um þau atriði sem máli skipti. Framburður hennar hafi einnig fengið stoð í skýrslu neyðarmóttöku og framburði læknis og hjúkrunarfræðings sem sinntu konunni þar, þar sem greint sé frá andlegu ástandi hennar og marbletti sem læknirinn taldi geta samræmst frásögn hennar.

Þá kom fram í framburði leigusala íbúðarinnar að konan hefði verið í miklu uppnámi, neitað því að allt væri í lagi og óskað eftir aðkomu lögreglu. Þetta samræmist einnig hljóðupptöku af samtali hennar við neyðarlínuna, þar sem hún leitaði eftir aðstoð.

Gat ekki dulist að hann væri að þvinga konuna til samræðis

„Í samræmi við framangreint verður niðurstaða málsins byggð á trúverðugum framburði brotaþola sem fær stoð í gögnum málsins og framburði vitna. Er sannað að ákærði hafi viðhaft þá háttsemi sem greinir í ákæru, að undanskildu því að hafa endurtekið beðið brotaþola um samræði. Ekkert hefur komið fram sem styður framburð ákærða um að samþykki brotaþola hafi legið fyrir.

Samkvæmt framburði brotaþola greindi hún honum ítrekað frá því að hún vildi ekki stunda kynmök og reyndi að fá hann til að hætta með því að meiða hann. Staðfesta áverkar á ákærða þessa frásögn. Þá bendir marblettur á læri hennar til þess að ákærði hafi tekið fast á brotaþola. Með hliðsjón af framangreindu gat ákærða ekki dulist að hann var að þvinga brotaþola til samræðis,“ segir í niðurstöðukafla dómsins.

Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/07/07/daemdur_fyrir_naudgun_logreglan_vopnadist/

📰 Aðrar fréttir

Ævisögumynd um Britney í bí­gerð - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 0
Ævisögumynd um Britney í bí­gerð - Vísir
Bransamiðillinn Page Six Hollywood greindi frá fregnum af ráðningu Meriwether í morgun og hafa aðrir Hollywood-miðlar síðan fjallað um málið. Sjálfsæv...
Refurinn Stjarna getspakur á HM
📅 07.07.2026 👁️ 0
Refurinn Stjarna getspakur á HM
Margir hafa orðið varir við ýmsa getraunaleiki í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem stendur sem hæst þessa dagana. Mannfólkinu finnst o...
Ólafur Ragnar sagði að EB aðild hefði upp á meira að bjóða en EES – „Það sé einfaldlega betra að fara á EB höfuðbólið og hafa eitthvað að segja“
📅 07.07.2026 👁️ 0
Ólafur Ragnar sagði að EB aðild hefði upp á meira að bjóða en EES – „Það sé einfaldlega betra að fara á EB höfuðbólið og hafa eitthvað að segja“
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti og einn af talsmönnum Áfram Ísland, sagði á sínum tíma að aðild að EB hefði upp á meira að bjóða en EES. U...
Hamid Wali ákærður fyrir nauðgun á 16 ára stúlku – Skotar eru brjálaðir eftir að lögregla leitaði að „sólbrúnum Evrópubúa“
📅 07.07.2026 👁️ 0
Hamid Wali ákærður fyrir nauðgun á 16 ára stúlku – Skotar eru brjálaðir eftir að lögregla leitaði að „sólbrúnum Evrópubúa“
Hamid Wali, 36 ára, hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað 16 ára stúlku í Springburn Park í Glasgow í Skotlandi. Ákæran hefur vakið sérstaka athyg...
„Fyrst og fremst stjórnskipuleg spurning“
📅 07.07.2026 👁️ 0
„Fyrst og fremst stjórnskipuleg spurning“
Hreyfingin Áfram Ísland, vettvangur fólks sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan ESB, var formlega stofnuð í gær á fjölmennum fundi í miðborg Re...
Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi - MBL.IS
Nokkur ökutæki, sem virðast annaðhvort vera númeralaus eða á einhvern annan hátt ekki í aksturshæfu ástandi, hafa staðið um nokkurt skeið á bílastæðum...
Brúin yfir Þjórsá lokuð - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
Brúin yfir Þjórsá lokuð - MBL.IS
Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi við Sultartanga er lokuð vegna skemmda á brúarhandriði en steypubíll fór út af á brúnni í gærkvöld. Fram kemur í t...
Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi - MBL.IS
Gangi veðurspáin eftir verður steikjandi hiti og sólskin á Austurlandi um næstu helgi.Veðurstofa Íslands spáir að hitinn geti náð allt að 24 stigum á ...
Úkraínsk kona grunuð um sprengjutilræði í Mónakó fannst myrt
📅 07.07.2026 👁️ 0
Úkraínsk kona grunuð um sprengjutilræði í Mónakó fannst myrt
Úkraínsk kona, sem er grunuð um sprengjuárás gegn samlanda sínum, auðkýfingnum Vadym Yermolaiev, í síðasta mánuði, er látin. Tveir menn hafa verið han...
Steypubíllinn dreginn á þurrt
📅 07.07.2026 👁️ 0
Steypubíllinn dreginn á þurrt
Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöld var dreginn upp úr ánni í dag.Töluvert hafði lækkað í ánni en lokað hafði v...
Yngstu fara flestar ferðir - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 0
Yngstu fara flestar ferðir - Vísir
Þetta kemur fram í könnun á ferðavenjum Íslendinga sem var framkvæmd haustið 2025. Daglegar ferðir á mann eru 3,3 að meðaltali, samanborið við 3,2 fer...
Chris Mason: Farage attempts to seize back the agenda after finance row
📅 07.07.2026 👁️ 0
Chris Mason: Farage attempts to seize back the agenda after finance row
His aim throughout the forthcoming campaign is to clearly frame this by-election as "the people versus the establishment".
Clacton's mixed views on Nigel Farage's resignation
📅 07.07.2026 👁️ 0
Clacton's mixed views on Nigel Farage's resignation
Nigel Farage announced he is resigning as an MP, triggering a by-election he will stand in.
Neighbours save baby from alleged murder attempt in Gran Canaria
📅 07.07.2026 👁️ 0
Neighbours save baby from alleged murder attempt in Gran Canaria
A five-month-old baby was saved from an alleged murder attempt by his father after neighbours forced their way into a home in Vecindario, Gran Canaria...
Steypubíllinn kominn úr ánni - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 0
Steypubíllinn kominn úr ánni - Vísir
Ökumaður bílsins var fluttur á Landspítala með þyrlu Landhelgisgæslunnar upp úr klukkan átta í gærkvöldi vegna ofkælingar og var talinn hafa sloppið v...
Fyrirtæki leitar að „fljótandi gulli hafsins“ á Íslandi – segir ambur hafa fundist hér við land
📅 07.07.2026 👁️ 0
Fyrirtæki leitar að „fljótandi gulli hafsins“ á Íslandi – segir ambur hafa fundist hér við land
Íslenska fyrirtækið Kaupumgull.is hefur vakið athygli á Facebook með auglýsingu þar sem það óskar eftir því að fólk hafi samband ef það telur sig hafa...
Lawyer says detained Gaza doctor was severely beaten in Israeli jail
📅 07.07.2026 👁️ 0
Lawyer says detained Gaza doctor was severely beaten in Israeli jail
The lawyer for Dr Hussam Abu Safiya tells the BBC his client was so badly beaten he could not recognise him during a visit last week.
Zendaya lenti í miklu basli á Íslandi – „Munnurinn á mér hreyfðist ekki“
📅 07.07.2026 👁️ 1
Zendaya lenti í miklu basli á Íslandi – „Munnurinn á mér hreyfðist ekki“
Leikkonan Zendaya lýsir því að hafa lent í basli með að leika í atriði fyrir kvikmyndina The Odyssey sem tekið var upp á Íslandi. Það var svo kalt að ...
Orðið á götunni: Undarlegt bandalag – aðalræðumaðurinn alltaf haft rangt fyrir sér
📅 07.07.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Undarlegt bandalag – aðalræðumaðurinn alltaf haft rangt fyrir sér
Stofnfundur Áfram Ísland, nýrra samtaka þeirra sem vilja ekki að þjóðin fái að sjá hverju hægt er að ná fram í samningaviðræðum við ESB, var haldinn í...
Myndband: Ragnar Erling hvetur fólk til að stela úr verslunum
📅 07.07.2026 👁️ 1
Myndband: Ragnar Erling hvetur fólk til að stela úr verslunum
Ragnar Erling Hermannsson, sem hefur verið áberandi málsvari heimilislauss fólks og barist fyrir hagsmunum þess, meðal annars í viðtölum við fjölmiðla...
Hundur sem fannst við Langjökul gæti þekkst af ólinni
📅 07.07.2026 👁️ 1
Hundur sem fannst við Langjökul gæti þekkst af ólinni
Dýrfinna, samtök sjálfboðaliða sem aðstoða týnd dýr við að komast aftur heim, auglýstu á dögunum eftir eiganda hunds sem fannst dauður við Langjökul. ...
Frumvarp um hert viðurlög við vændiskaupum lagt fram strax í haust
📅 07.07.2026 👁️ 1
Frumvarp um hert viðurlög við vændiskaupum lagt fram strax í haust
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, leggur fram frumvarp í haust um hert viðurlög við vændiskaupum. Girt verður fyrir að hægt sé að l...
„Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
„Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ - Vísir
Myndlistarmaðurinn Jón Óskar er ekki vanur að fara sem köttur í kringum heitan grautinn og segir á Facebook-síðu sinni: „Svo er hann bara farinn og mi...
Sautján ára norsk stúlka fannst látin á Spáni – Var að fagna sigri Norðmanna með vinum sínum
📅 07.07.2026 👁️ 1
Sautján ára norsk stúlka fannst látin á Spáni – Var að fagna sigri Norðmanna með vinum sínum
Sautján ára norsk stúlka sem lýst var eftir í Marbella aðfaranótt mánudags fannst látin eftir að hafa orðið fyrir vörubíl á A-7 hraðbrautinni við La C...
What do Farage's Clacton constituents think of his resignation?
📅 07.07.2026 👁️ 1
What do Farage's Clacton constituents think of his resignation?
People living in Clacton share contrasting feelings of frustration and support towards Nigel Farage.
Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Banda­ríkin ekki Græn­land - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Banda­ríkin ekki Græn­land - Vísir
„Það er það sem særði samband mitt við NATÓ, vegna þess að Grænland hjálpar ekki Danmörku. Danmörk eyðir varla pening til að hjálpa Grænlandi. En þett...
Tók lamba­lærið, steikurnar og flat­kökurnar til skoðunar - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
Tók lamba­lærið, steikurnar og flat­kökurnar til skoðunar - Vísir
Ásrún Magnúsdóttir hefur undanfarin ár lagt leið sína upp að Hafravatni oft á viku til að skokka. Síðasta laugardag, þann 4. júlí, sneri hún heim úr h...
„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lamba­læri“ - Vísir

Harmageddon | Evrópusambandið ekki lýðræðislegt
📅 07.07.2026 👁️ 1
Harmageddon | Evrópusambandið ekki lýðræðislegt
HarmageddonLýðræðishalli Evrópusambandsins er gríðarlegur. Í Evrópuþinginu, þar sem Ísland fengi 6 þingmenn af 720, er engin löggjöf samin. Hún er sam...
Fannst lítið til „brúðkaups ársins“ koma - Gestir lýsa óreiðu, flokkadrætti, biðröðum og smekkleysi
📅 07.07.2026 👁️ 1
Fannst lítið til „brúðkaups ársins“ koma - Gestir lýsa óreiðu, flokkadrætti, biðröðum og smekkleysi
Brúðkaup tónlistarkonunnar Taylor Swift og NFL-kappans Travis Kelce, fór fram á föstudaginn og höfðu margir beðið þess með eftirvæntingu enda hefur tó...
Hægt að tækla stjórmálaumræðuna með gríni - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
Hægt að tækla stjórmálaumræðuna með gríni - MBL.IS
„Pólitískt grín, eins og Spaugstofan gerði í hverri viku, er nauðsynlegt,“ segir grínistinn Kjartan Logi Sigurjónsson í Dagmálum Morgunblaðsins í dag ...
Franskur skólaliði sýknaður af ákæru um kynferðisofbeldi
📅 07.07.2026 👁️ 1
Franskur skólaliði sýknaður af ákæru um kynferðisofbeldi
Dómstóll í París hefur sýknað franskan skólaliða af ákæru um kynferðislegt ofbeldi gegn leikskólanemendum. Hann var hins vegar dæmdur í átta mánaða sk...
Vill af­nema sektir við vændiskaup - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
Vill af­nema sektir við vændiskaup - Vísir
Líkt og lögin eru í dag getur sá sem greiðir, heitir greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi fengið sekt eða fangelsisvist allt að einu ári....
Vill af­nema sektir við vændiskaupum - Vísir

Prince Harry loses High Court privacy case against Daily Mail publisher
📅 07.07.2026 👁️ 1
Prince Harry loses High Court privacy case against Daily Mail publisher
Judge Mr Justice Nicklin says the claimants had failed to prove the allegations.
Rauði krossinn á Íslandi sendir fulltrúa til Venesúela
📅 07.07.2026 👁️ 1
Rauði krossinn á Íslandi sendir fulltrúa til Venesúela
Karla Johnson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er komin til Venesúela þar sem hún mun stýra verkefnum á sviði áætlanagerðar og vöktunar á aðge...
Draga steypubílinn upp í dag – brúin lokuð næstu daga
📅 07.07.2026 👁️ 1
Draga steypubílinn upp í dag – brúin lokuð næstu daga
Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöld verður dreginn upp úr ánni í dag. Þetta staðfestir Bryndís Jóhannesdóttir a...
Trump enn fúll út í NATO-ríkin – situr fast við sinn keip varðandi Grænland
📅 07.07.2026 👁️ 1
Trump enn fúll út í NATO-ríkin – situr fast við sinn keip varðandi Grænland
Donald Trump Bandaríkjaforseti mætti til Ankara í Tyrklandi í morgun þar sem hann tekur þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins (NATO). Á blaðama...
Telja gervi­greind hafa verið beitt í þróaðri netárás - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
Telja gervi­greind hafa verið beitt í þróaðri netárás - Vísir
„Það sem vekur sérstaka athygli sérfræðinga er að árásirnar byggja á veikleika sem hefur CVSS-einkunnina 7,5. Þótt sá veikleiki falli í flokkinn „High...
„NATO er að breytast“ - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
„NATO er að breytast“ - MBL.IS
Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum, segir ljóst að áherslan á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem fram fer í Ankara. höfuð...
Daily Mail hafði betur gegn Harry - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
Daily Mail hafði betur gegn Harry - Vísir
Málið var höfðað árið 2023 og fóru réttarhöldin fram í janúar 2026. Harry Bretaprins, Elton John tónlistarmaður og eiginmaður hans David Furnish auk S...
Stór­brotinn stíll Zendayu - Vísir
📅 07.07.2026 👁️ 1
Stór­brotinn stíll Zendayu - Vísir
Zendaya er fædd árið 1996 og á að baki sér glæsilegan feril sem hófst snemma hjá Disney. Hún fór með aðalhlutverkið í vinsælu þáttunum Euphoria og hef...
Fjallalamb vildi að Byggðastofnun afskrifaði lán
📅 07.07.2026 👁️ 1
Fjallalamb vildi að Byggðastofnun afskrifaði lán
Fjallalamb hefur um árabil verið einn af stærstu atvinnurekendunum á Kópaskeri og í Öxarfirði. Frá 2015 hefur byggð í Öxarfirði verið skilgreind broth...
Rannsaka netárás þar sem líklega var stuðst við gervigreind
📅 07.07.2026 👁️ 1
Rannsaka netárás þar sem líklega var stuðst við gervigreind
Sérfræðingar hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis hafa undanfarna daga glímt við flókna netárás þar sem sterkar vísbendingar benda til þess að árásaraðfer...
Farage segir af sér og býður sig aftur fram
📅 07.07.2026 👁️ 1
Farage segir af sér og býður sig aftur fram
Farage segir af sér og býður sig aftur fram Nig­el Fara­ge, leið­togi breska Um­bóta­flokks­ins, hef­ur sagt af sér. Ný­lega komst upp um margra millj...
Marine Le Pen found guilty, but court clears way for presidential run if she wears tag
📅 07.07.2026 👁️ 1
Marine Le Pen found guilty, but court clears way for presidential run if she wears tag
The National Rally leader now has to decide whether she will run with an electronic tag and will speak on TV later.
Kemur ekki til greina að refsa seljendum - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
Kemur ekki til greina að refsa seljendum - MBL.IS
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að ekki eigi að sætta sig við að hér á landi spretti upp svokölluð „rauð hverfi“ og að Reykja...
Relocating to the Canary Islands: Navigating European Digital Access
📅 07.07.2026 👁️ 1
Relocating to the Canary Islands: Navigating European Digital Access
Dreaming of packing your bags for a sun-drenched life in Tenerife, only to find your favourite online accounts locked, restricted, or completely inacc...
Karla komin til Venesúela - MBL.IS
📅 07.07.2026 👁️ 1
Karla komin til Venesúela - MBL.IS
Karla Johnson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er komin til Venesúela þar sem hún mun stýra verkefnum á sviði áætlanagerðar og vöktunar á aðge...
Nigel Farage segir af sér en sækist eftir endurkjöri
📅 07.07.2026 👁️ 1
Nigel Farage segir af sér en sækist eftir endurkjöri
Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins í Bretlandi, ætlar að segja af sér sem þingmaður fyrir Clacton. Hann hyggst þó bjóða sig aftur fram og sækjast ...