Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal hefur þurft að stöðva alla framleiðslu vegna orkuskerðingar. Forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins segir skerðinguna mikið áfall, tekjutap nemi rúmlega 6 milljónum króna á dag.
Tilkynnt um skerðinguna í gær
Landsnet hefur skert orku til ákveðinna fyrirtækja á Suðurlandi, Vesturlandi og á Vestfjörðum vegna alvarlegrar bilunar í vélum orkuframleiðenda. Meðal annars bilun í einum spenni Búrfellsvirkjunar.
Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, segir að tilkynning frá Landsneti hafi borist í gær um að slökkva ætti á verksmiðjunni vegna orkuskerðingar.
Kalkþörungafélagið framleiðir meðal annars hráefni í frekari matvæla- og bætiefnavinnslu, áburð og dýrafóður.
Tekjutapið hlaupi á milljónum daglega
Halldór segir þá stöðu sem uppi sé grafalvarlega.
„Við erum vissulega með samning um ótrygga afhendingu á orku en þetta er bara orðið svo rosalega mikið að við erum bara stopp bara dag eftir og núna er ljóst að við verðum líka stopp þriðja daginn í röð á morgun.“
Tekjutapið telur Halldór að hlaupi á um 5-6 milljónum á dag. Starfólk verksmiðjunnar sitji nú eftir aðgerðarlaust vegna skjóts fyrirvara lokunarinnar.
„Bull og vitleysa“ að nægt rafmagn sé til staðar á Íslandi
Í haust fer fram reglubundið viðhald hjá Landsneti og Orkubúi Vestfjarða, viðhaldið gæti staðið yfir í allt að 20 daga og á meðan verður verksmiðjan án rafmagns. Félagið hefur gert ráðstafanir fyrir þann tíma en segir Halldór það vera sína upplifun að Vestfirðir gleymist í umræðunni. Hann segir ljóst að endurskoða þurfi virkjunarmöguleika á Vestfjörðum og ráðast í bæði Hvalárvirkjun og Vatnsdalsvirkjun. Ekki sé ásættanlegt að starfsemi fyrirtækja lamist í lengri tíma vegna orkuskorts. Ekki þurfi nema eina virkjun til að orkubúskapur Vestfjarða sé úti.
„Það er bara algjört bull það í umræðunni um að það sé nóg rafmagn á Íslandi. Það er meira en bull, það er bara kjaftæði vegna þess að við erum bara í stórkostlegum vandræðum með raforkukerfið á Íslandi.“
Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti ganga viðgerðir vel en ekki er vitað nákvæmlega hversu lengi skerðingin varir. Verið er að gera við spenninn í Búrfellsvirkjun og verður hann aftur kominn í gagnið á næstu dögum.