Búist er við að Kanadamaðurinn Kenneth Law lýsi sig sekan um fjórtán glæpi þegar hann kemur fyrir rétt í dag. Law, sem er sextugur fyrrverandi matreiðslumaður, var handtekinn fyrir þremur árum og ákærður í Kanada fyrir fjórtán morð og jafnmargt liðsinni við sjálfsvíg með ráðleggingum á spjallsíðum.
Hann er einnig talinn hafa sent hundruðum manna í tugum landa löglega rotvarnarefnið natríumnítrít sem í hreinu formi og miklu magni er bráðeitrað mönnum. Yfirvöld á Nýja-Sjálandi segja að þrír nemar á aldrinum 18 til 21 árs og fertugur maður hafi beðið bana eftir að hafa neytt efna sem Law seldi þeim.
Fólkið sem lést eftir að hafa notað vörur sem Law seldi í Kanada var á aldrinum 16 til 36 ára, að sögn þarlendra lögregluyfirvalda. Einnig eru tugir dauðsfalla í fleiri löndum rakin beint til athæfis Laws, meðal annars á Bretlandi og Ítalíu.
Saksóknarar voru efins um að geta tryggt sakfellingu fyrir morð og hafa því dregið morðákærurnar til baka gegn því að Law viðurkenni sök í hinum málunum, samkvæmt upplýsingum verjanda hans og ættingja fórnarlamba hans.
Ákvörðunin var mörgum þeirra vonbrigði að sögn AFP-fréttaveitunnar. Lögspekingar benda á að ráðgjöf við sjálfsvíg sé alvarlegur glæpur og að Law kunni að bíða tíu til tólf ára fangelsi.
Hvert er hægt að leita? Rauði krossinn í síma 1717 og á vefsíðunni 1717.is veitir fólki í sjálfsvígshugleiðingum og aðstandendum ráðgjöf og liðsinni. Það gera líka Píeta-samtökin og heilsugæslan.