Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neitað að hleypa þeim inn. Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
„Þeir töldu sig eiga eitthvað vantalað við hann,“ segir Heimir.
Mennirnir hafi komið að heimili mannsins í Bríetartúni í Reykjavík og klifrað upp á svalir við íbúð mannsins þegar hann neitaði að hleypa þeim inn. Þaðan komust þeir inn í íbúðina í gegnum glugga og hentu manninum svo fram af svölunum.
Heimir segir manninn hafa hlotið ýmsa áverka, þar á meðal beinbrot. Hann hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi.
Ósætti ungmenna leiddi til ryskinga
Lögregla hafði einnig afskipti af samkomu ungmenna við Rafstöðvarveg í Reykjavík vegna tilkynningar um líkamsárás. Að sögn Heimis voru þetta ósætti meðal ungmenna sem leiddu til ryskinga. Ungmennin hafi verið á aldrinum 16 til 17 ára.