Þetta segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, í samtali við Vísi. Tveir dælubílar hafi verið sendir á vettvang eftir að útkall barst klukkan 11:30. Þegar Vísir ræddi við hann tíu mínútum síðar hafði eldurinn þegar verið slökktur.
„Þetta gekk eins og í lygasögu,“ segir Stefán en bætir við að slökkvilið sé enn að störfum við að ganga úr skugga um að enga glæður logi enn.