Brúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun hefur verið opnuð á ný. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni kom fjöldi fólks að viðgerð brúarinnar og verkið gekk vel.
Brúnni var lokað í gærkvöld eftir að steypubíll ók af henni. Ökumanni bílsins var bjargað upp af hlið hans af þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.
Bíllinn var dreginn úr ánni síðdegis.