Vel gekk að ná steypubíl úr Þjórsá við Sultartangavirkjun í dag en bíllinn valt af trébrú yfir ána í gærkvöld.
Steypubíllinn, sem er frá Steypustöð Selfoss, fór út af brú yfir Þjórsá í gærkvöldi við Sultartangavirkjun en ekki er vitað hvað gerðist sem varð til þess að bíllinn fór í ána. Ökumaður bílsins náði að komast upp á hlið bílsins og var svo hífður þaðan upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti hann á sjúkrahús en maðurinn ofkældist. Brúin hefur verið lokuð síðan atvikið varð því handrið brotnaði af brúnni að hluta til við óhappið.
Nú standa yfir viðgerðir á brúnni. Ekki er víst hvort viðgerðir klárist í kvöld en stefnt er á opnun brúarinnar í síðasta lagi á morgun. Það gekk vel að ná steypubílnum úr ánni en stór beltagrafa dró hann á þurrt land.
„Já, þetta gekk ótrúlega vel og það eru byrjaðar viðgerðir á brúnni og það eru komnir vinnuflokkar hérna frá Vegagerðinni og verða að störfum fram á nótt og við vonum að hleypa einhverri umferð á vonandi á morgun og jafnvel eitthvað í kvöld. Við sjáum til hvernig gengur,” segir Jón Heiðar Gestsson, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdadeild Vegagerðarinnar.
Er brúin mikið skemmd?
„Hún er náttúrulega töluvert skemmd en við erum tilbúin með efni, eigum það á lager og það er komið hérna á staðinn og það verður unnið að þessu sleitulaust þar til það verður búið,” segir Jón Heiðar.
Starfsmenn Búrfellsvirkjunar lokuðu fyrir vatnsstreymi í ána á meðan verið var að ná steypubílnum upp á land.
„Jú, það er rétt. Þetta hefur gengið mjög vel miðað við aðstæður og bara gott að ekki fór verr varðandi mannskap. Það slasaðist enginn eftir því sem ég best veit,” segir Jón Heiðar.