Hafrún Rakel Halldórsdóttir leikmaður Bröndby í Danmörku er meidd og þarf að draga sig úr landsliðshópi íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Í hennar stað kemur inn Jelena Tinna Kujundzic leikmaður Þróttar.
Jelena Tinna nær ekki leik íslenska liðsins gegn Úkraínu á föstudag en mun koma til móts við hópinn á Íslandi í undirbúningi liðsins fyrir heimaleikinn gegn Spáni.
Jelena Tinna, sem er 23 ára miðvörður, er nýliði og hefur ekki verið áður í landsliðshópi Íslands en á 10 leiki fyrir yngri landslið.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari valdi 23 manna hóp 21. maí.
Sveindís Jane Jónsdóttir þurfti síðan að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla og kom Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir leikmaður Breiðabliks inn í hennar stað.
Íslenska liðið mætir eins og áður segir Úkraínu í Póllandi á föstudag og síðan heimsmeisturum Spánverja á Laugardalsvelli á þriðjudag.