Orðræða um fólk á flótta fer harðnandi og byggir oft á rangfærslum. Þetta segir Íslandsdeild Amnesty International og hrindir í dag af stað herferðinni Mannúðin mun sigra – Virðum réttindi fólks á flótta.
Í tilkynningu frá félaginu segir að herferðinni sé ætlað að bregðast við sífellt harðari orðræðu sem beinist að hópi sem sé þegar í viðkvæmri stöðu.
Í könnun Maskínu sem gerð var fyrir Íslandsdeild Amnesty International kemur fram að 87% aðspurðra landsmanna telji að fólk sem flýr stríð og ofsóknir eigi að geta leitað hælis í öðrum löndum. Á sama tíma telja 62% að of margir fái vernd á Íslandi.
Árið 2025 sóttu 1.748 um alþjóðlega vernd á Íslandi sem samsvarar 0,0015% af þeim rúmlega 117 milljónum sem eru á flótta á heimsvísu, samkvæmt tilkynningu Amnesty. Í heildina var 1.151 umsókn afgreidd árið 2025, þar sem veitt var alþjóðleg vernd, viðbótarvernd eða mannúðarleyfi. Þar af voru 85% frá Úkraínu, 8% frá Palestínu og 3% frá Venesúela.
Herferðin, sem er hluti af stærri alþjóðlegri herferð, bregst einnig við tillögum að lagabreytingum um útlendinga hérlendis. Slíkar breytingar geti aukið heimildir til frelsisskerðingar, lengt tímabil óvissu um réttarstöðu og veikt réttláta málsmeðferð fólks sem leitar hér verndar.
Markmið herferðarinnar er að mæta ótta með staðreyndum, efla málefnalega umræðu og minna á að á bak við hverja tölu er manneskja sem hefur neyðst til að flýja heimili sitt.
Amnesty hefur hrint af stað undirskriftasöfnun þar sem almenningur er hvattur til að skora á stjórnvöld að gera bragarbót í málefnum flóttafólks hér á landi, maðal annars með því að forðast úrræði sem fela í sér frelsisskerðingu, tryggja skilvirka og réttláta málsmeðferð og standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.