Bræður berast á banaspjót: Stórsókn Úkraínuhers hófst hljóðlega og rann út í sandinn
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Bræður berast á banaspjót: Stórsókn Úkraínuhers hófst hljóðlega og rann út í sandinn

Bræður berast á banaspjót: Stórsókn Úkraínuhers hófst hljóðlega og rann út í sandinn

Bræður berast á banaspjót: Stórsókn Úkraínuhers hófst hljóðlega og rann út í sandinn

FréttinErna Ýr Öldudóttir, Pistlar, Úkraínustríðið, Utanríkismál10 Comments

Sá sorglegi atburður á sér stað að Úkraína er notuð af NATO og Bandaríkjunum til að heyja styrjöld við Rússland. Fyrir því eru tvær ástæður helst. Það er meginregla í heimi kjarnorkuvopna að kjarnorkustórveldi mega ekki eigast við í beinum átökum. (Annað ágætt dæmi er hvernig Bandaríkin virðast vilja nota Tævan gegn Kína til að komast hjá beinum átökum). Hin ástæðan er sú að NATO ríkin eru ekki í stakk búin til að eigast við Rússland á vígvellinum, nema með miklum hörmungum og tvísýnni niðurstöðu. Nú skortir ekki sófahershöfðingja sem hafa á þessu sterkar skoðanir, en fáir væru þó tilbúnir að mæta sjálfir í skotgrafirnar.

Annars vegar liggur fyrir að Evrópuríkin eru dvergar í varnarmálum gagnvart Rússlandi. Hins vegar hafa Bandaríkin ekki unnið eitt einasta stríð frá Seinni heimsstyrjöld, þó þeim hafi tekist að kremja minni máttar hér og þar með vopnavaldi, „viljugum þjóðum“ og peningum. Fyrir þeim eru Úkraínumenn einnota tindátar sem nota má til að ná fram alþjóðapólitískum metnaði og efnahagslegum markmiðum án þess að leggja of mikið undir. Þeir þurfa bara að láta peningaprentvélina ganga allan sólarhringinn og skeyta lítið um verðbólgudrauginn sem étur sig inn að beini heima fyrir. Ástæðan fyrir því að tilefni er til að veita þessu feigðarflani athygli er sú að lítið má útaf bera til að Evrópa sogist inn í vopnuð átök og verði, þrátt fyrir fögur fyrirheit, enn eina ferðina lögð í rúst. Brjálæðið er komið inn á hlað.

Óhætt er að segja að bærinn Marynka í útjaðri Donetsk-borgar hafi verið jafnaður við jörðu.

Stríðið er selt af áróðursfjölmiðlum leyniþjónustanna og RÚV-spekingum sem „ástæðulaus innrás Rússlands í Úkraínu“. Það væri hægt að ætlast til þess að menn með að minnsta kosti tvær heilasellur nái að nudda þeim saman nógu lengi til að átta sig á að ekkert gerist án ástæðu og mikið var á sig lagt yfir langan tíma til að koma í veg fyrir að illa færi. Í samhengi sögunnar má sjá að Vesturveldin hafa lengi girnst víðáttur Rússlands, sem er eitt af fáum ríkjum heims sem er sjálfu sér nógt um flest það sem fólki gæti vantað - og meira til. Auðveldast er að nefna Napóleonsstríðin og Þýskaland nazistanna, sem sóttu þangað austur í von um að brauðfæða herinn og sækja eldsneyti á vígvélarnar. Markmiðið nú sem þá var að leysa Rússneska ríkið upp og komast í verðmætin sem þar eru. Óhófleg græðgi stórbokka vestrænnar valdaelítu og metnaður truflar dómgreindina.

Hvenær hófst margboðuð sókn Úkraínu

Alveg frá áramótum hafa Kænugarðsstjórnin og yfirmenn hennar í NATO ríkjunum margboðað stórsókn Úkraínuhers gegn Rússlandi. Eins og aðrir bardagar fram að þessu fer sóknin fer fram á þeim svæðum sem nú þegar hafa lýst yfir sjálfstæði og formlega yfirgefið Úkraínu með inngöngu í Rússneska ríkjasambandið, með kosningu og á grundvelli Sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hin margfrestaða stórsókn virðist loksins hafin og reyndar hófst hún 4. júní sl. svo að lítið bar á. Hljótt er um þessa mestu orrustu í Evrópu frá Seinni heimsstyrjöldinni, einfaldlega vegna þess að Úkraínski herinn hefur verið leiddur til slátrunar. Á þessum fáeinu dögum hafa þúsundir úkraínskra hermanna fallið og vestræn ofurvopn liggja brunnin á vígvellinum. Of snemmt er að spá um málalok en árangurinn lætur enn á sér standa á meðan spítalar, líkhús og kirkjugarðar í Úkraínu fyllast.

Fullorðin kona syrgir fallna í kirkjugarði í Lvov, Úkraínu.

Nú vil ég ekki gera of lítið úr frammistöðu Úkraínska hersins, margir hermenn þeirra hafa barist hetjulega. Reyndar er, eða var, um stærsta og reyndasta her Evrópu, jafnvel heimsins í heild að ræða. En honum var stefnt beint á vegg, án teljandi loftvarna, með bland í poka af flóknum vopnum sem mörg hafa verið smíðuð fyrir aðrar aðstæður en finnast í Úkraínu. Fram að þessu er talið að mannfallið hafi verið Rússlandi í hag, um það bil einn á móti sjö. Nú er hlutfallið talið vera að minnsta kosti einn á móti tíu - bæði varlega áætlað. NATO ríkin gera sér það að leik að fórna Úkraínumönnum fyrir óljós markmið sem aldrei munu nást.

Hafi NATO viljað valda Rússlandi tjóni, þá hefur það sannarlega tekist með því einu að etja saman bræðraþjóðum sem deila sögu, tungumáli, menningu, trú og uppruna að miklu og stundum öllu leyti. Það hefur ekki verið sársaukalaust. Að öðru leyti kveinka Rússar sér ekki, enda eru þeir sjálfum sér nógir og vinina vantar þeim ekki á alþjóðasviðinu þó að lítið sé greint frá því í íslenskum fréttum. Mörg lönd komu þeim til aðstoðar með auknum viðskiptum, en Ísland sveik þá eins og síðast. Eiga Rússar þó ófáan greiðann inni hjá Íslendingum. Mörg ríki stórjuku viðskipti sín við Rússland í ljósi viðskiptaþvingana frá þeim sem áður keyptu glaðir rússneska orku á sanngjörnu verði. Evrópa heldur skömmustuleg áfram að kaupa rússneska olíu og gas í stórum stíl, þó hljóðlega fari.

Hversvegna var haldið í heljarför

Bandaríkin og NATO vilja sjá árangur fyrir trilljónirnar sem kastað hefur verið í bröltið í Úkraínu. Náist hann ekki fljótlega gæti gólfið fallið undan stjórnvöldum í Kænugarði, en ekki síður stjórnvöldum sjálfum á Vesturlöndum, í næstu kosningum. Þau eru örvæntingarfull og líf þúsunda bændastráka í Úkraínu er þeim mun minna virði en að reyna að bjarga eigin skinni. Jafnframt er augljóst að Úkraína er ekkert annað en sandkassi til að láta reyna á stríðsleikföng vopnaframleiðenda og afla þeim stjarnfræðilegra tekna úr vasa skattgreiðenda. Niðurstaðan virðist ætla að verða sú að meiri áhersla virðist hafa verið lögð á að selja vopnin heldur en að huga að því að þau séu nothæf í bardaga við aðra en geitabændur og aðra almenna borgara í Mið-Austurlöndum.

Í annan stað vilja Vesturveldin ekki viðurkenna ósigur. Hrokinn er slíkur að menn sem vilja láta taka mark á sér, sbr. Breska varnarmálaráðuneytið og framkvæmdastjóri Evrópusambandins leyfðu sér að vanmeta Rússneska herinn með orðum eins og að Rússar berjist með skóflum og vopnum búnum örflögum úr uppþvottavélum.

Það yrði þá að teljast þeim mun meiri niðurlæging fyrir Vesturveldin, að Rússar leggi besta herinn þeirra og fullkomnustu vopnin að velli svo illa útbúnir. Sannleikurinn er sá að Rússland er á heimavelli við þær aðstæður sem þarna finnast. Sovétvopnin auk nýrri vopna, hafa þeir þróað og safnað í troðfullar vopnageymslur í 75 ár. Í miðjum bardaga úti í mýri á stórum víðáttum getur verið betra að vera búinn einföldum vopnum sem þola hnjask og þurfa ekki milljarðaútgjöld, þriggja ára námskeið, 2000 blaðsíðna handbók og 30 manna viðhaldsteymi. Í annan stað eiga Rússar hátæknivopn sem notuð eru úr öruggri fjarlægð og ekki er vitað til þess að NATO ríkjunum hafi enn tekist að þróa með góðum árangri, eins og til dæmis hinar hljóðfráu sprengjuflaugar.

Þýsku Hlébarðarnir brunnu eins og annar búnaður á vígvellinum. Gárungar sáu sér leik á borði.

Ísland glatar sérstöðu sinni og tækifærum til framtíðar

Ísland er örríki, sjálfstætt (amk. að nafninu til) en á allt sitt undir öðrum á ögurstundu. Fram að þessu höfum við getað nýtt vogaraflið sem fékkst með vinskap við stórveldið Rússland, þegar hinir svokölluðu vinir okkar Bretar og jafnvel Bandaríkin hafa viljað fara sínu fram á kostnað hagsmuna Íslendinga. Þessum ás sem Ísland átti upp í erminni hafa utanríkisráðherrar okkar nýlega fleygt frá sér án haldbærs rökstuðnings. Undanfarin ár hefur staðan tvisvar verið skipuð fólki sem hvorki virðist veraldarvant né hyggja að langtímahagsmunum Íslands.

Fundur utanríkisráðherra Úkraínu og Íslands. Óljóst er hví heilsast var svo innilega.

Tækifæri Íslands á alþjóðasviðinu liggja í því að ganga til góðs, eiga í vinsamlegum samskiptum og stunda viðskipti. Þannig væri vert að skora á íslensk stjórnvöld að slíðra sverðin og styðja friðarumleitanir í deilunni, þó ekki væri nema til að bjarga mannslífum og eiga áframhaldandi góð samskipti við trausta vinaþjóð Íslands til margra alda. Annað eins hefur nú áður gerst, að vinaþjóðir Íslendinga stundi skylmingar hér og þar í heiminum án þess að það hafi orðið tilefni til stórkarlalegra yfirlýsinga og varanlegra vinslita - með ófyrirsjáanlegum afleiðingum til lengri og skemmri tíma.

Því fyrr sem vestræni heimurinn vaknar og áttar sig á þessari vitleysu því meiri líkur eru á því að koma í veg fyrir kjarnorkustríð og endalok mannkyns!

Hér er 100% sönn lýsing á þessum atburðum og hverji standa að baki þessu ásamt því hver er líklegastur til að beita kjarnorkuvopnum.

https://www.youtube.com/watch?v=ImjpzrsvLeM

Ísland á tafarlaust að segja sig úr NATO og koma sér út úr þessari vitleysu!
NATO er EKKI varnarbandalag NATO er ÁRÁSARBANDALAG, verkfæri Bandaríkjanna til að ráðast á þeirra ímynduðu óvini, það kominn tími til að Evrópa vakni og átti sig á því!

Alda Ýr og Ari Óskarsson haldið þið að ef þið væruð Rúzzneskir þegnar , búandi í Rúzzlandi að þið mundu fá að tjá ykkur jafn frjálslega og þið fáið hér á vesturlöndum? Pútín er búinn að normalisera morð og mannrán. Það er búið að fara mjög illa með
Rússnesku þjóðina í gegnum aldirnar.

Júlíus Einarsson, ég get allavega svarað játandi fyrir mig, ég gæti allveg hugsað mér að búa í Rússlandi ef ég kynni málið þeirra, það er örugglega ekki verra enn að búa á Íslandi í kerfismjalta og áróðurs spillingar samfélaginu þar!

Ég veit ekki á hvaða fóðri þú Júlíus Einarsson er alinn upp á, þú allavega lest allt sem vestrænar fréttaveitur skrifa í gegnum hálftommu rörið sem þú set upp í augun á þér. Þú hefur greinilega lítið lesið þig til um hvað Vladimir Putin náði að rétta við Rússnest samfélag eftir öreygðina sem Boris Yeltsin skildi eftir sig þegar hann seldi sig spillingar öflum Bandaríkjanna á Bill Clinton tímanum. Þú talar um morð og mannrán, ekkert af þessu bulli hefur fengið staðfestingu allt er þetta skipulagður áróður úr vestrænum fréttaveitum. Ef pútin er svona slæmur hvernig stendur á því að hann er með um 80% fylgi í Rússlandi meðan vinur þinn Joe Biden er góður ef hann nær að klifra upp fyrir 20% í vestræna lýðræðissamfélaginu sem þú virðist ekki halda vatni yfir. Í Rússlandi búa hundruðir þjóðarbrota sem eru jafn mismunandi þegar kemur að trúarmálum ég get nú ekki séð að Bandaríkin hafi höndlað þá hluti vel í gegnum aldirnar með sínum yfirgangs og útrýmingar tilburðum.

Er fólk frjálst á vesturlöndum?
besta dæmið eru réttarhöldin yfir Julian Assange sem nánast engin af þessum sóðamiðlum á Íslandi vill segja frá þar sést vel hvernig vestrænt lýðræðissamfélag virkar.

Æ æ menn vita ekki hvað þeir hafa það gott en þú mátt hafa og tjá hverjar þær skoðanir sem þú hefur og kýst að hafa mín vegna. Og vonandi vilja sem flestir leifa þér það. Það er eitthvað mikið að hjá Rússum, Þjóðin upp til hópa heldu að hún sé útvalin. Saman ber Solsinitzin sem var rekinn að heima eftir að hafa verið píndur og kvalinn í áratugi þá gekk hann enþá með þessar grillur.

Júlíus, það er nú sennilega aðal meinið að vesturlöndin þola ekki þá sem eru ekki undirgefnir þeim og hafa ekki algjörlega sömu skoðanir og þeir, það hefur ekkert með Rússa að gera eða Rússnesku þjóðina, það má vel vera að einhverjir menn eins og þessi Solsinitzin have lent í einhverju slæmu?
Ég þarf ekki að benda þér á Guantanamo pintingabúðirnar sem Bandaríkin pintuðu hundruði manna, er ekki einn einstaklingur sem var í þeim búðum staddur á Íslandi akkurat núna?

Hva ætli það séu mörg Gvantanamo í Rússlandi, og mikið vær nú gaman ef Solsinitzin væri sá eini sem hefði verið pintaður. Þau vor fleirri milljónir. Það skrítna er að þetta er búið að vera í gangi í Rússlandi í margar aldir.

Örugglega ekki fleiri enn í Bandaríkjunum eða Bretlandi og maður tali nú ekki um fyrirheitna landið Úkraínu.
Eins og ég sagði hér að ofan þá útrýmdi hvíti maðurinn, hin hreini Bandaríkjamaður megninu af Indjánunum á sínum tíma
og ekki hafa þeir verið vingjarnlegir heldur við svarta manninn á undanförnum öldum.

Heimurinn er ekki svona svartur og hvítur eins og þú sér hann Júlíus.

Ertu til í að fórna lífinu fyrir skoðanir þínar?

það gæti verið að ég myndi vera í lífshættu fyrir mínar skoðanir ef marka má dauðalistan hjá Volodymyr Zelenskyy og félögum, listinn hjá honum er víst ansi langur og inniheldur menn eins og Scott Ritter og Douglas Mcgregor.

Júlíus munurinn á okkur tveimur liggur í því að ég hef sjáfstæða hugsun sem þú hefur ekki, þú kokgleypir allann vestrænan áróður sem heilagan sannleika og ert greinilega alinn upp á Rússahatri frá blautu barnsbeini.

Heimurinn er ekki eins og hann hefur verið matreiddur ofan í þig í Hollywood myndunum.

Margur heldur sig mig eða margur heldur mig sig.

#banaspjót #hljóðlega #sandinn #stórsókn #úkraínuhers


Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2023/06/23/braedur-berast-a-banaspjot-storsokn-ukrainuhers-hofst-hljodlega-og-rann-ut-i-sandinn/

📰 Aðrar fréttir

Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
📅 25.07.2026 👁️ 0
Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
A 62-year-old motorcyclist has died after losing control of his bike and leaving the road on the TF-1 motorway in Costa Adeje, south Tenerife, earlier...
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vindkort fyrir kl. 2...
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
📅 25.07.2026 👁️ 0
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
The CJP protest has been the most visible expression of public anger against PM Narendra Modi's government in recent years.
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi...
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
📅 25.07.2026 👁️ 0
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið va...
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
📅 25.07.2026 👁️ 0
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
Spain's PM warns of "complex hours" ahead as authorities in France say they are far from bringing blazes burning near Bordeaux under control.
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 0
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 1
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 1
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara Bono fannst laus í hverfinuHvetur hundaeigendur til fyllstu varkárni eftir alvarlegt atvik í gær Mynd:...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...