Ríkið hefur aðeins samþykkt að greiða fyrir þjónustu við fimm reykvísk börn með fjölþættar stuðningsþarfir þrátt fyrir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um að kostnaður við slíka þjónustu yrði greiddur af ríkinu.
57 börn sem hljóta þjónustu hjá Reykjavíkurborg falla utan nýrrar skilgreiningar ríkisins á börnum með fjölþættar stuðningsþarfir, og mun ríkið því ekki greiða fyrir úrræðin. Þjónustan kostar borgina milljarð á ári.
Samtök íslenskra sveitarfélaga sendu frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem ríkið var sakað um að brjóta samkomulagið, sem undirritað var í mars í fyrra.
Í minnisblaði velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem lagt var fyrir borgarráð í gær er kostnaður vegna þessarar þjónustu sundurliðaður. Áætlaður kostnaður ríkisins vegna þeirra fimm barna sem ríkið hefur samþykkt að taka þátt í kostnaði fyrir er 794 milljónir króna, en kostnaður vegna 57 barna sem nú falla utan skilgreiningar ríkisins er milljarður.
„Með vísan til alls framangreinds er ljóst að hlutdeild ríkisins í kostnaði vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem njóta þjónustu hjá miðstöðvum og Barnavernd Reykjavíkur er langt frá því sem búist var við þegar títtnefnt samkomulag var undirritað í mars 2025. Verði ekkert að gert mun Reykjavíkurborg frá og með árinu 2026 bera að minnsta kosti 1 milljarð árlega í kostnað vegna barna með fjölþættan vanda sem ætti samkvæmt samkomulaginu að falla undir ríkið,“ segir í minnisblaði Velferðarsviðs.
Á fundi borgarráðs lögðu allir fulltrúar, auk áheyrnarfulltrúa, fram bókun þar sem þungum áhyggjum er lýst af nýrri reglugerð ríkisins.
„Breytingin er óásættanleg, án fullnægjandi faglegra raka og felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um,“ segir meðal annars í bókuninni.