Bolsonaro yngri fer fram gegn núverandi forseta Brasilíu, Luiz Inacio Lula da Silva, með framboði sínu en forsetakosningar fara fram í október, segir í umfjöllun Reuters.
Faðir Flavio Bolsonaro, Jair Bolsonaro fyrrverandi forseti, afplánar 27 ára fangelsisdóm fyrir tilraun til valdaráns í forsetakosningum árið 2022, þar sem Lula da Silva bar sigur úr býtum.
Sjá einnig: Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun
Bolsanaro yngri njóti stuðnings Javier Milei, forseta Argentínu, en báðir eru á hægri væng stjórnmálanna. Milei hafi ávarpað samkomu Bolsinaro og hafi sagt að hann gæti „bjargað Brasilíu frá sósíalisma.“ Einnig hafi forsetaframbjóðandinn spilað myndband af Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, þar sem hann lýsti yfir stuðningi sínum við framboðið.
Þingmaðurinn hafi átt í erfiðleikum með að mynda pólitísk bandalög. Mið-hægriflokkar hafi hingað til tekið hlutlausa afstöðu gagnvart framboði hans en ekki stutt það með beinum hætti.