Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ - Vísir

Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ - Vísir

Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ - Vísir

Einvala lið tónlistarfólks syngur við athöfnina: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Mugison, Páll Rósinkranz, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius auk barna Björgvins, þeirra Svölu og Krumma. Þá munu Fóstbræður einnig syngja. Tónlistarstjóri og píanóleikari er Óskar Einarsson en Guðmundur Pétursson leikur á gítar.

Fylgjast má með útförinni í fréttinni að neðan.

Björgvin Helgi Halldórsson var Gaflari af innlifun. Þaðan virðist hráslaginn kominn, hin leyftursnöggu tilsvör, en hann sagði oft að Hafnarfjörður væri Memphis Íslands, þá með vísan til þess að hann sjálfur væri þá Elvis Íslands.

Björgvin fæddist í Hafnarfirði 16. apríl 1951 og lést að heimili sínu 9. apríl 2026. Björgvin ólst upp í fæðingarbæ sínum og snemma vaknaði áhugi hans á tónlist. Hann söng lög sem náðu miklum vinsældum á Íslandi og þann 1. október 1969 varð sá viðburður að hann var valinn „poppstjarna ársins“ á popphátíð í Laugardalshöll. Þar var leiðin mörkuð fyrir lífstíð og hann hefur æ síðan verið einn ástsælasti tónlistarmaður landsins; flytjandi og lagahöfundur á Íslandi auk þess sem hann sinnti ýmsum öðrum störfum á vettvangi íslensks tónlistar- og skemmtanalífs.

Hljómsveitir sem hann starfaði með voru auk tilkomumikils sólóferils meðal annars þær Bendix, Flowers, Ævintýri, Brimkló, Hljómar, Change, Ðe Lónlí Blú Bojs, HLH og Sléttuúlfarnir auk hljómsveitar Björgvins Halldórssonar. Sagt er að hann hafi hljóðritað yfir 900 lög. Þá starfaði hann sem framkvæmdastjóri hljóðvera, við dagskrárstjórn í útvarpi auk þess sem hann var áratugum saman „rödd Stöðvar 2“.

Björgvin var einstakur og svo þekktur fyrir sín tilsvör að Gísli Rúnar Jónsson heitinn, rithöfundur og leikari, skrifaði um það fyrirbæri bók sem kom út 2001 og bar titilinn „Bó & co … með íslenskum texta“. Þar má finna aragrúa af skemmtisögum af Bó og hans samferðarmönnum en þó bara brot af því sem er til. Þó að Björgvin sé í dag kvaddur með tárum glittir ætíð í húmorinn sem var svo einkennandi fyrir manninn. Menn finna nú huggun í sígildum sögum af Bó.

Mr. Bo Hall vill hitta þig á svítu hótelsins

Í Morgunblaðinu er að finna fjölda minningargreina í dag og þar bætist í sarpinn. Til að mynda segir Egill Ólafsson tónlistarmaður frá þeirra fyrsta fundi í skondinni frásögn en þeir höfðu verið fengnir til að syngja með hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar á Íslendingaskemmtun sem haldin var á Flórída. Egill, sem segist hafa verið í annarri deild en Björgvin, kom seinna en hinir en fékk boð um að Mr. Bo Hall vilji hitta sig um kvöldið á svítu hótelsins:

„Ég hafði ætlað mér að hvíla mig eftir langt flug, en þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta. Ég gerði mig því kláran, en þegar ég mæti í svítuna taka aðeins tveir þjónar á móti mér. Ég hinkra, sé að það er búið að stilla upp tveimur matarborðum, annað dúkað upp fyrir tvo, með tilheyrandi glösum, en hitt aðeins fjær og allt með einfaldara sniði. 

Egill Ólafsson segir óborganlega sögu af því þegar þeir Bó urðu vinir á svítu hótels í Flórída.aðsend

Svo heyri ég Björgvin nálgast svítuna í hrókasamræðum við einhvern um Bourbon-viskí og þegar inn er komið kastar hann aðeins lauslega á mig kveðju. Hann var að taka út vínið með vínþjóninum. Loks snýr Björgvin sér að mér og mælir mig út frá toppi til táar og staðnæmist við skóna, svarta skó með táhettu, og ég sé að það fer bylgja vandlætingar um andlit hans. „Egill, hvernig geturðu verið á svona „Frankenstein shoes“?“

Egill vissi ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið og í því gengur tryggðartröllið Gústi rót inn í svítuna og Bo tilkynnir Agli að hann ætli að bjóða honum dús í votta viðurvist.

„Nú drekkum við amerískt viskí í seven-up. „When in Rome, do as the Romans do!““ Því næst bauð hann mér að setjast gegnt sér við borðið og inn var borinn hver rétturinn á fætur öðrum með tilheyrandi víni – meðan Gústi gæddi sér á hamborgara á hinu borðinu,“ skrifar Egill.

Menn segja að það hafi komist hross inn í ættina

Á daginn kom að Björgvin reyndist manna skemmtilegastur, sagði sögur og lék á als oddi og það var mikið hlegið. „Hann fullyrti sem dæmi að við tveir værum venslaðir í gegnum Bergsætt: „Menn segja að það hafi komist hross inn í ættina og það sé skýringin á því hvers vegna meirihluti karla í ættinni lítur út eins og afturendi á hrossi en minnihlutinn hefur útlit framendans – og það er álitamál hvort er skárra!“ 

Björgvin naut þess heiðurs að Hamborgarafabrikkan skírði einn borgara í höfðuð á honum - Stóri Bó!aðsend

Eftir þessa kvöldstund vorum við Björgvin vinir og samherjar – ég hafði verið samþykktur. Það var aðeins eitt skilyrði sem hann setti: ég yrði að parkera „Frankenstein“-skótauinu. Ég lofaði því – ég á þá að vísu enn, en gætti þess ævinlega að nota skóna ekki ef þess var von að við Björgvin stæðum á sama sviði. Mikill persónuleiki og meistari hefur kvatt – hvíli hann í friði.“

Annar sem ritar minningarorð um Bó er veitinga- og útvarpsmaðurinn Jóhannes Ásbjörnsson sem segir meðal annars:

„Björgvin var risastór. Áran hans og stjörnuljóminn, en ekki síður hjarta hans og hlýja. Og þannig vil ég minnast hans í fáeinum orðum. Þegar Hamborgarafabrikkan varð til árið 2010 var ákveðið að fara þess á leit við valda íslenska listamenn að skíra hamborgara í höfuðið á þeim. Hjá Björgvini var það auðsótt mál, með því eina skilyrði að hann fengi að ráða uppskriftinni og að hunangs-sinnepssósan hans víðfræga fengi að njóta sín. Þegar hann var svo spurður um nafn á borgarann þá stóð ekki á svari: Stóri Bó.“

Herbergi Björgvins flottara en Cockers

Þannig eiga menn, mitt í sorginni, erfitt með að minnast skondinna tilsvara og atvika. Stefán Hilmarsson tónlistarmaður segir að í sínum huga hafi Björgvin verið nánast helgimynd: „Það tók tíma að komast undir skelina hjá Bo, sem virtist framan af hrjúfur og hafði um sig nokkurs konar varnarhjúp. En þegar maður kynntist honum var hann opinn og ljúfur, þótt alltaf væri stutt í svolitla kaldhæðni og glettna frasa.“

Björn G. Björnsson minnist ferða sinna og Bós ásamt fjölskyldum til Ítalíu þar sem Björgvin sankaði að sér ítölskum popplögum sem hann svo breytti í jólalögin sem allir elska. Ógleymanlegt er þegar þeir rákust óvænt á goðsögnina Joe Cocker á hótelbar í Lyon í Frakklandi. 

Enn bætist í sarpinn, af óborganlegum sögum af tilsvörum Björgvins.vísir/vilhelm

„Björgvin var auðvitað snöggur að kynnast honum og úr varð partí. Þegar fjörið slúttaði vildi Joe sýna Björgvini „hvernig hinn helmingurinn lifir“ og monta sig af svítunni sinni. Björgvin sá svítuna en fór þá með Joe að sjá sína svítu. Björgvin hafði fengið flottara herbergi en Joe Cocker og goðsögnin fór gapandi aftur inn til sín.“

Pakkaði Wolfman Jack saman

Magnús E. Kristjánsson framkvæmdastjóri segir af kynnum þeirra tveggja nefnir að eitt sinn hafi þeir tveir ásamt þriðja manni verið á ferð niður Öskjuhlíðina í Chrysler Björgvins. Hann ók.

„Þá kom lag með Björgvini í útvarpinu og Björgvin hækkaði vel í því. Þá heyrðist í Wolfman Jack, sem sat í aftursætinu. „Hey, this is a great song. Who sings this?“ „This is me,“ sagði Björgvin. „No way,“ sagði Wolfman. Ég staðfesti að þetta væri Björgvin. Wolfman trúði þessu varla og hallaði sér aftur í sætinu. Það var þögn í Chryslernum í smástund. Björgvin leit á mig sem snöggvast og sagði: „Ég pakkaði honum.“ Enginn gat meitlað stundina með einlínungum eins og Björgvin. Þannig hefur hann skerpt á mörgu sem fyrir vikið eru skýrari og skemmtilegri minningar. Fyrir það er rétt að þakka,“ segir Magnús.

Sögurnar af Bó eru óteljandi. Fyrir þær, fyrir sönginn og allt annað þakkar Vísir. Blessuð sé minning Björgvins Halldórssonar.

#borinn #grafar #kóngurinn #til #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262875449d/bo-borinn-til-grafar-thegar-kongurinn-kallar-laetur-madur-sig-ekki-vanta-

📰 Aðrar fréttir

Njósnarar enn í lög­sögunni - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Njósnarar enn í lög­sögunni - Vísir
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, staðfestir í samtali við Vísi að skipið sé enn í íslensku efnahagslögsögunni en greint v...
Hitinn náði yfir tuttugu stig - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Hitinn náði yfir tuttugu stig - Vísir
„Veðrið hefur verið svolítið tvískipt. Blíða hérna hjá okkur fyrir sunnan og vestanlands. Veðrið er almennt bjart og hlýtt, hitinn er búinn að ná yfir...
Stórslasaðist á­tján ára eftir ölvaðan öku­mann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Stórslasaðist á­tján ára eftir ölvaðan öku­mann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ - Vísir
Ryan Reynolds fór í viðtal í vikunni hjá tímaritinu GQ með samstarfsfélaga sínum og meðeiganda í Wrexham AFC, Rob McElhenney, þar sem þeir voru spurði...
Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“ - DV
Samfélagsrýnirinn Máni Pétursson segir hlaðvarpara á hægri vængnum meðvirka með Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að umbótum á starfsumhverfi einkarekin...
Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka - DV
Vegagerðin hefur hafnað beiðni Akureyrarbæjar um að draga til baka fækkun ferða Grímseyjarferjunnar Sæfara. Kemur raunar fram í minnisblaði Vegagerðar...
Myndaveisla: Veðrið leikur við í­búa höfuð­borgar­svæðisins - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Myndaveisla: Veðrið leikur við í­búa höfuð­borgar­svæðisins - Vísir
Það er bannað að gleyma sólarvörninni á svona dögum.Vísir/Vilhelm Þessi börn eiga framtíðina fyrir sér í sjósundi.Vísir/Vilhelm Það þarf ekki alltaf a...
DV gerir könnun um hvernig Íslendingar munu kjósa 29. ágúst - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
DV gerir könnun um hvernig Íslendingar munu kjósa 29. ágúst - DV
Laugardaginn 29. ágúst næstkomandi fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ ...
Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt - Vísir
Skýrslutaka yfir Ming Ting hófst upp úr klukkan 10 í morgun, eftir nokkra töf vegna tæknilegra örðugleika. Þegar þessi frétt er skrifuð hefur hún gefi...
„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“ - Vísir
Um þrjátíu Grindvíkingar auk nokkurra þingmanna Suðurkjördæmis mættu á mótmæli á Austurvelli í hádeginu sem boðuð höfðu verið með skömmum fyrirvara í ...
Fisherman dies after falling into sea in Gran Canaria
📅 12.06.2026 👁️ 0
Fisherman dies after falling into sea in Gran Canaria
A fisherman has died after falling into the sea while fishing from a remote cliffside area in the north of Gran Canaria this morning (Friday).The inci...
Horfa til hagræðingar í Ráðhúsinu
📅 12.06.2026 👁️ 1
Horfa til hagræðingar í Ráðhúsinu
Stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu lítur fyrst til Ráðhúss Reykjavíkur, til dæmis breytinga á skrifstofu borgarstjóra, í aðgerðum sínum. „Við ho...
Kemur harkalega niður á ferðaþjónustunni
📅 12.06.2026 👁️ 1
Kemur harkalega niður á ferðaþjónustunni
Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segist hafa fyrst heyrt af ákvörðun Vegagerðarinnar, um að taka ferjuna Baldur tímabundið úr áætlu...
Sagðist ekki geta útskýrt áverka á hálsi dóttur sinnar
📅 12.06.2026 👁️ 0
Sagðist ekki geta útskýrt áverka á hálsi dóttur sinnar
Athugði: Hér að neðan eru opinskáar lýsingar á ofbeldi sem gætu valdið óhug.Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hóteli...
Embættismaður í Hvíta húsinu: Íran samþykkir að hætta með kjarnorkuáætlun sína
📅 12.06.2026 👁️ 0
Embættismaður í Hvíta húsinu: Íran samþykkir að hætta með kjarnorkuáætlun sína
Ónafngreindur embættismaður í Hvíta húsinu hefur gefið helstu fjölmiðlum upplýsingar um innihald samnings Bandaríkjanna og Íran sem er í nokkru ósamræ...
Hittust átta sinnum til að úr­skurða um risaeðlubeinin - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Hittust átta sinnum til að úr­skurða um risaeðlubeinin - Vísir
Fyrr í dag var greint frá ákvörðun borgarráðs um að afþakka risaeðlubein, nánar tiltekið þríhyrnu (triceratops), sem samtökin Leap Lab vildu gefa borg...
Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“ - DV
Séra Guðni Már Harðarson hefur verið prestur í Lindakirkju í 18 ár og verið afar vinsæll í starfinu þar. Hann yfirgefur söfnuð sinn fljótlega, að minn...
Watch: Four UFO videos newly declassified by US
📅 12.06.2026 👁️ 1
Watch: Four UFO videos newly declassified by US
The eyewitness footage shows bright orbs in the sky over an undisclosed location in the northeastern US.
Facebook lá niðri
📅 12.06.2026 👁️ 2
Facebook lá niðri
Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri fyrr í dag. Miðlarnir, sem allir eru í eigu tæknirisans Meta, virðast þó vera komnir af...
Bólar ekkert á á­lyktun ungra mið­flokks­manna - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Bólar ekkert á á­lyktun ungra mið­flokks­manna - Vísir
Landsþing Ungra miðflokksmanna var haldið á Blönduósi 18.-19. apríl en þetta var fyrsta slíka þingið sem hreyfingin hefur staðið að. Í auglýsingu fyri...
Defence row exposes tensions over how to keep UK safe
📅 12.06.2026 👁️ 2
Defence row exposes tensions over how to keep UK safe
Defending the realm is supposed to be a prime minister's first priority. Yet Sir Keir Starmer is accused by two departing defence ministers of failing...
Kviknaði í raf­tæki - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Kviknaði í raf­tæki - Vísir
Töluverður viðbúnaður var í Elliðaárdalnum. Þrír eða fjórir slökkviliðsbílar og lögregla voru á vettvangi, að sögn fréttamanns á svæðinu. Inni í húsin...
Ís­lenskt brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Ís­lenskt brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara fr...
Brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara fr...
Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi - Vísir
Fréttir bárust af því í morgun að samkomulag hefði náðst milli þingflokkanna um þinglok og má því búast við að þingmál fari næstu daga að renna í gegn...
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO
📅 12.06.2026 👁️ 1
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO Fréttin12. júní 2026ErlentLeave a Comment Alexus G. Grynkewich, yfirmaður herafla NA...
„Símafrí í skólanum leysir ekki það sem gerist fyrir utan skólann“
📅 12.06.2026 👁️ 1
„Símafrí í skólanum leysir ekki það sem gerist fyrir utan skólann“
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Samkvæmt drögunum verður notkun...
Driver arrested after running from police in Lanzarote
📅 12.06.2026 👁️ 2
Driver arrested after running from police in Lanzarote
A 50-year-old man has been arrested in Arrecife after allegedly attempting to run from Local Police officers and resisting arrest during a routine sto...
Hákon krónprins boðar forföll á ríkisráðsfund vegna heilsu Mette-Marit
📅 12.06.2026 👁️ 2
Hákon krónprins boðar forföll á ríkisráðsfund vegna heilsu Mette-Marit
Hákon krónprins tók ekki þátt í ríkisráðsfundi í Noregi í dag vegna veikinda Mette-Marit eiginkonu sinnar. Vika er síðan tilkynnt var að krónprinsessa...
Stórstjarnan reif sig úr og reif hljóðnema blaðamanns í trylltri sigurvímu - DV
📅 12.06.2026 👁️ 2
Stórstjarnan reif sig úr og reif hljóðnema blaðamanns í trylltri sigurvímu - DV
Leikarinn Timothée Chalamet fagnaði stórkostlega eftir nauman 107-106 sigur New York Knicks á San Antonio Spurs í fjórða leik úrslitakeppninnar í NBA ...
Rannsóknir á mansalsmálum hafa margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
📅 12.06.2026 👁️ 2
Rannsóknir á mansalsmálum hafa margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskipt...
Rannsóknir á mansalsmálum margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
📅 12.06.2026 👁️ 1
Rannsóknir á mansalsmálum margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptama...
Listamaðurinn David Hockney látinn
📅 12.06.2026 👁️ 2
Listamaðurinn David Hockney látinn
Einn áhrifamesti listamaður samtímans, Bretinn David Hockney, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu 88 ára að aldri og skilur eftir sig maka sinn ...
Dregur um­deildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Dregur um­deildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka - Vísir
Í minnisblaði sem Gabbard sendi út í gær segir að höfundar skýrslnanna tveggja, sem eru frá mars 2023 og janúar 2025, hafi hunsað vísbendingar og sönn...
Trump segir birt samningsdrög ekki rétt
📅 12.06.2026 👁️ 1
Trump segir birt samningsdrög ekki rétt
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir að efnisatriði samkomulags við Íran sem voru birt í írönskum fjölmiðlum í morgun hafi ekkert að gera með þá s...
Viðhald brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum dregst á langinn
📅 12.06.2026 👁️ 1
Viðhald brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum dregst á langinn
Viðhald og málningarvinna við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur tekið lengri tíma en til stóð. Verkið hófst 26. maí og átti að ljúka 16. júní. Mikil ...
Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar - DV
„Hér er verið að stíga eðlilegt og nauðsynlegt skref til að tryggja lög og reglu í íslensku samfélagi,“ segir Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður í ...
Stað­festa synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Stað­festa synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ - Vísir
Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans og var vísað til þess að...
Facebook liggur niðri - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Facebook liggur niðri - Vísir
Þar kemur fram að fólk eigi í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Þá virðist fólk eiga í erfiðleikum með að skrá s...
Facebook lá niðri - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Facebook lá niðri - Vísir
Þar kom fram að fólk ætti í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Fólk átti í erfiðleikum með að skrá sig inn í forr...
Eldur kviknaði í raftæki í Toppstöðinni
📅 12.06.2026 👁️ 1
Eldur kviknaði í raftæki í Toppstöðinni
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölda bíla í útkall í Elliðaárdal upp úr klukkan eitt í dag. Tilkynning hafði borist um reyk við Toppstöðina. L...
Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum - Vísir
Skipin tvö bera heitin MSC Virtuosa og Norwegian Star. Virtuosa er stærsta skip sem hefur komið til Ísafjarðar en það kom í sína fyrstu heimsókn til Í...
Netið logar: Hvað voru allir að ræða þessa vikuna?
📅 12.06.2026 👁️ 1
Netið logar: Hvað voru allir að ræða þessa vikuna?
Í Netið logar tökum við saman stærstu umræðurnar sem fóru eins og eldur um netið. Hér eru málin sem vöktu mesta athygli, sterkustu viðbrögðin og heitu...
Slaufaði Spánarfríi og söng óvænt dúett með Ed Sheeran - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Slaufaði Spánarfríi og söng óvænt dúett með Ed Sheeran - DV
Tónlistarkennari sem flaug snemma heim úr fríi sínu til að koma fram á óvæntum tónleikum segist ekki hafa vitað hún myndi syngja dúett með Ed Sheeran ...
Stærstu rauðu flöggin á stefnu­móta­forritum - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Stærstu rauðu flöggin á stefnu­móta­forritum - Vísir
Davíð var gestur Margrétar Bjarkar Jónsdóttur og Örnu Þorsteinsdóttur í nýjasta þætti hlaðvarpsins Vörumerki. Þar fór hann yfir rauðu og grænu flöggin...
Ný­sam­þykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Ný­sam­þykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp - Vísir
Á fundi borgarráðs 16. apríl 2026 var samþykkt að gerður yrði samningur fyrir hönd Samtaka hjólabúa, félags sem hafði þá ekki verið stofnað. Samningur...
Eldur í Toppstöðinni - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Eldur í Toppstöðinni - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs eru viðbragðsaðilar nýmættir á vettvang um klukkan 13.15 í dag.  Hann segir við Vísi að líklegast sé um lítinn eld að r...
Eldur kviknaði í Toppstöðinni - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Eldur kviknaði í Toppstöðinni - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs kom upp eldur í hitaskáp og reykur barst víða.  „Þeir eru bara að klára að reykræsta á vettvangi,“ sagði varðstjóri slö...
Israeli tech firm accused of targeting First Minister John Swinney
📅 12.06.2026 👁️ 2
Israeli tech firm accused of targeting First Minister John Swinney
Scotland's first minister was targeted by an Israeli firm spreading online disinformation before the Holyrood election, a French government agency has...
„Við getum al­veg full­yrt það að sumarið sé komið“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
„Við getum al­veg full­yrt það að sumarið sé komið“ - Vísir
Fínasta veður er víðast hvar á landinu núna og helgarspáin góð. „Það er sums staðar dálítill strekkingur og það hefur nú orðið hvað hlýjast í morgun á...
Fatima Bio: Council takes possession of property linked to politician
📅 12.06.2026 👁️ 1
Fatima Bio: Council takes possession of property linked to politician
Southwark Council has confirmed that it has taken possession of a council property linked to Sierra Leone's First Lady, Fatima Bio, following a year-l...