Blóð, sviti og tár skemmti­legra en að prumpa út lögum - Vísir

Blóð, sviti og tár skemmti­legra en að prumpa út lögum - Vísir

Blóð, sviti og tár skemmti­legra en að prumpa út lögum - Vísir

Verkefnið Dóra & döðlurnar varð upphaflega til í tónlistarskólanum Miðstöðinni fyrir átta árum síðan. Í dag eru hljómsveitarmeðlimir sex talsins, Bára Katrín Jóhannsdóttir, Guðrún Ýr Guðmundsdóttir, Auður Árnadóttir, Hekla Sif Sævaldsdóttir, Helga Sigríður E Kolbeins og Sara Lind Pálmadóttir.

Blaðamaður ræddi við Báru Katrínu Jóhannsdóttur og Guðrúnu Ýr Guðmundsdóttur sem eru báðar söngkonur og gítarleikarar sveitarinnar.

Fyrsta gigg í eigin fermingu

Bára Katrín er tvítug og Guðrún er 23 ára og eru meðlimir flestar á því aldursbili.

„Haustið 2018 myndum við hljómsveitina sem hluta af verkefni í tónlistarskólanum. Við vorum með stífar æfingar allan veturinn og fyrsta giggið var í fermingunni minni,“ segir Bára kímin en hún hefur verið hluti af hljómsveitinni frá upphafi.

Dóra & Döðlurnar eftir gott gigg.Viktor Freyr

Fermingargiggið kom óvart upp að hennar sögn.

„Ég bað tónlistarkennarann okkar um að fá hátalara í láni fyrir veisluna en hann misskildi mig og hélt ég væri að bóka okkur á gigg. Við kýldum bara á það og það gekk ótrúlega vel.“

Frá þessu fyrsta giggi hefur mikið vatn runnið til sjávar hjá sveitinni. Sumir meðlimir hafa farið í aðra átt og yfirgefið í góðu og nýir hafa í staðinn bæst við.

„Hægt og rólega fórum við að taka þessu af meiri alvöru og eftir standa þær sem vilja gera þetta af fullum krafti, segja stelpurnar.“

Dórulausar döðlur

 Nafnið Dóra & döðlurnar er grípandi en það er þó skondið að Dóra sjálf er ekki lengur hluti af hljómsveitinni.

„Gamli bassaleikarinn okkar heitir Dóra og hún var ekkert alltof mikið fyrir sviðsljósið. Okkur hefur alltaf þótt mikilvægt að allar stelpurnar syngi saman í bakröddunum en hún vildi það alls ekki, þannig við spurðum hana hvort við mættum frekar skíra sveitina þá eftir henni sem hún samþykkti,“ segja stelpurnar brosandi.

„Það er alltof oft þannig að fólk veit bara hverjir aðalsöngvarar eru í hljómsveitum. Bassinn er grunnurinn að allri tónlistinni.“

Dóra yfirgaf sveitina svo í mjög góðu og er að sögn stelpnanna að brillera í dag í lífinu sem öflugur sviðsmaður í leikhúsunum.

„Nafnið er bara svo grípandi að við gátum ekki breytt því.“

Þær segjast stöðugt vera að þróast í tónlist og óhræddar við að taka áhættu.

„Við erum alltaf að taka þessu af meiri og meiri alvöru og erum að gera okkar allra besta við að komast inn í senuna. Við reynum að spila sem mest, erum að gefa út eigin tónlist og erum mjög stoltar af því sem við erum að gera.“

Skvísurnar með áritaðan Dóru & Döðlurnar bol. Viktor Freyr

Þá hafa þær séð skýra þróun á listsköpun sinni undanfarin ár.

„Við fórum frá því að vera allar í menntaskóla og mjög týndar í lífinu yfir í það að átta okkur á því að þetta er draumurinn okkar, þetta er það sem við viljum eyða okkar tíma í. 

Við viljum leggja blóð, svita og tár í þetta og fáum að hittast tvisvar í viku á skipulögðum æfingum. Það eru svo mikil forréttindi. Hér er mögnuð kvenorka og mikill kraftur og þetta er það sem ég er hvað þakklátust fyrir í lífinu,“ segir Bára Katrín og Guðrún Ýr tekur undir.

Enginn mættur klukkan ellefu um morgun

Talið berst þá að fjölbreyttum og skemmtilegum giggum sem stelpurnar hafa tekið.

„Við reynum að segja já við öllu sem býðst og afla okkur reynslu, sama hvert giggið er og stundum hafa þau verið ansi fyndin en eiginlega alltaf skemmtileg. Þótt við komumst ekki allar þá finnum við út úr því og segjum já. 

Eitt skemmtilegasta gigg sem við höfum tekið var síðasta sumar þegar við fengum styrk frá Reykjavíkurborg til að spila á Óðinstorgi og það gekk sjúklega vel. Sólin skein og fullt af fólki mætti.“

Morguninn eftir var hljómsveitin bókuð á vegan matarhátíð í Hafnarfirði.

„Við tvær vorum þær einu sem komust og giggið var klukkan ellefu um morgun, þannig það var bókstaflega enginn kominn og við spiluðum bara fyrir starfsfólk. 

Þegar við vorum að klára settið var fólk farið að mæta og stemning að færast í hópinn þannig við báðum skipuleggjendur um að fá að spila aftur, sem þau blessunarlega samþykktu. Þetta var æðislegt,“ segir Bára glöð í bragði.

Elliheimilin best

„Við spilum líka oft á elliheimilum sem er rosalega gaman,“ bætir Guðrún Ýr við.

„Það er rosalega gefandi og eitthvað besta crowd sem þú getur fundið. Þau hlusta af mikilli einlægni og þakka alltaf rosalega mikið fyrir sig en þakklætið er svo gagnkvæmt.“

Ástríða stelpnanna liggur án efa í því að koma fram.

„Það er svo drífandi að segja já við giggum og fá að upplifa alls konar. Það er meiriháttar batterí fyrir okkur að rigga öllu upp enda sex stelpna sveit. 

Í fyrra vorum við að spila á Heima hátíðinni í Hafnarfirði á heimilum fólks og á einum stað var svið fyrir eins og einn trúbador en við létum það algjörlega ganga og komumst allar fyrir. Það er ekkert sem við getum ekki leyst saman,“ segir Guðrún Ýr. 

Erfitt að prumpa út endalausu efni

Þær segja vissulega erfitt að koma sér á framfæri í mjög hröðum bransa.

„Maður á að prumpa út endalausu efni og það á að gerast svo hratt. Í staðinn fyrir að einblína bara á listina þurfum við að hugsa: Hvernig get ég lifað á þessu? Við erum líka lengi að vinna því lögin okkar eru með lifandi hljóðfæraleik og verðum að gefa okkur mikinn tíma í tónlistina okkar. 

Ég upplifi stundum eins og við séum bara fyrir þegar fólk fær okkur á gigg því við erum með allt okkar hafurtask og þurfum að rigga öllu upp. En um leið og við byrjum að spila þá er þetta allt svo miklu meira en bara þess virði,“ segir Bára en hún semur flest lög sveitarinnar.

Guðrún Ýr og Bára í góðum fíling.Viktor Freyr

„Ég er mikil áhugamanneskja um textaskrif og hef gaman að því að velta þessu vel fyrir mér. Ég sem til að komast yfir hluti og vinna í mínum málum en ég get ekki samið um eitthvað þegar ég er í miðjum aðstæðum, það verður alltaf að vera svolítil fjarlægt. 

Svo fannst mér líka erfitt að finna lög þar sem mér finnst röddin mín fá að njóta sín. Það var í raun það sem ýtti mér fyrst út í það að byrja að semja.“

Ögrar óöryggi í gegnum tónlistina

Hún segir textasmíðina góða leið til að sjá hluti í samhengi.

„Á komandi plötu erum við með lag sem heitir Annað en ég og fjallar í raun um að vera ung kona í dag í tónlistarbransanum þar sem er stöðugt verið að ýta undir samkeppni á milli kvenna. 

Ég man eftir að hafa einhvern tíma heyrt viðtal við tónlistarkonu þar sem hún talaði um að það væru alltaf stólar við borðið fyrir strákana en aldrei bætt við stólum fyrir fleiri stelpur. 

Það sat lengi í mér og ég áttaði mig á því að ég væri að horfa á aðrar tónlistarkonur sem samkeppni. Auðvitað eigum við að vera allar saman í liði. Þannig tónlistin fær mann til að átta sig á eigin óöryggi og ögra því.“

Hringferð og plata

Dóra & döðlurnar stefna langt, þær eru að vinna í nýrri plötu, voru að gefa út lagið Gríptu mig og ætla að senda frá sér plötu vonandi í kringum áramótin næstu.

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan: 

Klippa: Gríptu mig - Dóra & Döðlurnar

„Við stefnum bara enn lengra og að við komumst inn í meginstrauminn hérlendis. Við viljum að fólk sjái okkur og heyri tónistina okkar, helst að það sé ekki hægt að halda gott ball án þess að fá Dóru og döðlurnar á svæðið,“ segja stelpurnar brosandi.

„Við tökum öllum giggum, erum endalaust að koma okkur áfram og ætlum að skella okkur í tónleikaferðalag um landið í júní. Það er mikið af ævintýrum fram undan og við ætlum að halda áfram að dreifa góðri orku og gleðinni.“

Hér má hlusta á Dóru & Döðlurnar á streymisveitunni Spotify. 

#blóð #prumpa #skemmtilegra #sviti #tár


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262886145d/blod-sviti-og-tar-skemmti-legra-en-ad-prumpa-ut-logum

📰 Aðrar fréttir

Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 0
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 0
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 0
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 0
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 0
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 0
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 2
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán man...
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sp...
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum m...
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
📅 07.10.2026 👁️ 4
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís...
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
📅 07.10.2026 👁️ 2
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
Officials were recorded by undercover journalists discussing a potential way to secure foreign donations to the party.