Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki og stuttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon.
„Menn þurfa bara að búa sig undir vatn á götum og bleytu á göllunum,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Hann segir lægð stefna að landinu úr suðvestri og seint í kvöld byrji að rigna. Búast megi við því að úrkoman verði samfelld í fyrramálið og fram eftir degi. Samhliða því verði suðvestanátt í miðborginni á bilinu sex til níu metrar á sekúndu.
„Þetta er ekki strekkingur bara svona léttur blástur. En sums staðar eru byggingar sem skýla eða magna vindinn enn meira,“ segir Einar.
Möguleiki sé á að stytti upp um miðjan dag á morgun. „Það er kannski frekar óskhyggja heldur en raunhyggja,“ segir Einar.
Síðdegis á morgun megi búast við að bætist í vind og hann geti orðið um og yfir tíu metrar á sekúndu „og slagveðursrigning í einhvern tíma.“
Gestir miðborgarinnar gætu þó átt von á að geta notið flugeldasýningunnar í þurru en um tíuleytið á að bæði lægja og stytta upp. Flugeldasýningin hefst að Tónaflóði loknu á Arnarhóli, klukkan tíu.