Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður fjölskyldu manns sem lést af völdum plastbarkaígræðslu, segir að heilbrigðisyfirvöld hljóti að velta því fyrir sér hvort Tómas Guðbjartsson geti starfað áfram sem læknir.
RÚV greinir frá.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið bótaskylt gagnvart fjölskyldu hins látna, Erítreumannsins Andemariam Beyene. Hann var sjúklingur skurðlæknisins Tómasar Guðbjartssonar á Landspítalanum. Var Andemariam, sem lést árið 2014, fyrsti sjúklingurinn sem sendur var í plastbarkaígræðslu í Stokkhólmi, sem framkvæmd var af ítalska skurðlækninum Paolo Macchiarini. Síðar kom í ljós að enginn vísindalegur grundvöllur var fyrir ígræðslunum og létust allir sjúklingar sem undirgengust þær.
Í dómi héraðsdóms er framganga Tómasar harðlega gagnrýnd og meðal annars sagt að hann hafi sett eigin metnað ofar velferð Andemariam og hafi brotið lög og logið.
Sjá einnig: Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálin
Lögmaður fjölskyldunnar, Sigurður G. Guðjónsson, segir að það sé ekki hans að meta hvort Tómasi sér stætt á að starfa áfram sem læknir. Síðan segir hann:
„En heilbrigðisyfirvöld hljóta að velta því fyrir sér hvort það sé rétt að maður sem fær svona dóm sinni læknisstörfum eða kennslu.“
Tómas, sem auk þess að sinna lækningum, hefur starfað sem kennari við læknadeild HÍ, er núna í veikindaleyfi, bæði frá háskólanum og Landspítalanum.