Samtök blaða- og fréttamanna í Venesúela hafa andæft hversu takmarkaðan aðgang fjölmiðlar hafa að fundahöldum stjórnar og stjórnarandstöðu um lýðræðisumbætur í landinu.
Aðeins ljósmyndurum er heimilt að vera viðstaddir og heldur litlar upplýsingar hafa verið veittar um gang viðræðnanna. Samtökin krefjast gagnsæis og frjáls aðgengis að samninganefndunum.
Dinorah Figuera leiðir samninganefnd stjórnarandstöðunnar en hún flúði til Spánar vegna ofsókna og hótana leyniþjónustunnar. Nóbelsverðlaunahafinn Maria Corina Machado fékk ekki boð um þátttöku.
AFP-fréttaveitan segir samtökin hafa kvartað við fulltrúa stjórnarandstöðunnar eftir að öryggisverðir gerðu búnað blaðamannsins Deisy Martinez upptækan, ýjuðu að handtöku hennar uns þeir slepptu henni eftir að hafa eytt ljósmyndum sem hún tók.
Sjö mánuðir eru síðan bandarískir hermenn námu forsetann Nicolas Maduro á brott og síðan hefur bráðabirgðastjórn Delcy Rodriguez setið að völdum.
Jorge Rodriguez, bróðir forsetans, fer fyrir samninganefnd ríkisstjórnarinnar. Búist er við að viðræðurnar standi til 12. ágúst og verði til þess að endurreisa lýðræðislegar stofnanir á borð við Hæstarétt, skipa trúverðugt kjörstjórnarráð og undirbúa frjálsar forsetakosningar.