Milligöngumenn Bandaríkjanna segja skref hafa verið stigin í átt að samkomulagi um framhald vopnahlés á fundi sendimanna Ísraels og Líbanons í Washington í gær. Vopnahléinu lýkur að öllu óbreyttu á sunnudag.
„Að baki er heill dagur með árangursríkum og jákvæðum samræðum,“ segir ónafngreindur embættismaður innan bandaríska utanríkisráðuneytisins við AFP-fréttaveituna. Hann kveðst vona að frekari tíðindi berist eftir viðræðurnar í dag. Líbanar vilja að ákvæði vopnahlésins verði tryggð svo dauða og tortímingu linni í landinu.
Einnig þurfi að finna leiðir til að afvopna Hezbollah-hreyfinguna og tryggja brotthvarf Ísraelshers úr suðurhluta landsins. Leiðtogar Hezbollah, sem ekki eiga aðild að viðræðunum, hafa gagnrýnt ríkisstjórn Líbanons harðlega fyrir að ræða beint við Ísraela.
Frá því vopnahléið komst á um miðjan mars hafa liðsmenn Hezbollah og Ísraelshers barist á jörðu niðri og gert loftárásir á báða bóga.
Ísraelar réðust einnig inn í Suður-Líbanon þar sem hátt í þrjú þúsund hafa verið drepin, samkvæmt upplýsingum frá líbönskum yfirvöldum. Hezbollah segja mannfall liðsmanna hreyfingarinnar innan þeirrar tölu.
Um leið og Trump tilkynnti framlengingu vopnahlésins 23. apríl boðaði hann sögulegan leiðtogafund Josephs Aoun Líbanonsforseta og Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Af þeim fundi hefur ekki orðið enda hefur Aoun krafist öryggistrygginga og að atlögum Ísraels linni áður.