Veðurstofa Íslands segir að vestlægari áttir verða ríkjandi í dag vegna lægðar norðvestur af landinu á norðaustur leið. Seinnipart dags dýpkar hún sig örlítið og mun því bæta í vind á norðaustan- og austanverðu landinu á laugardag.
Dregur aftur úr vindi á laugardagskvöld og aðfaranótt sunnudags þegar lægðin heldur í átt að vesturströnd Noregs.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðvestan 8-15 m/s um landið norðaustanvert, annars hægari vindur. Skýjað með köflum og stöku skúrir á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu sunnan- og vestantil. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á sunnudag:
Hæg norðlæg átt, léttskýjað og stöku skúrir, einkum norðanlands, en heldur hvassara norðaustanlands um tíma. Sums staðar þokuloft við norðurströndina. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast suðvestantil.
Á mánudag:
Hæg suðaustlæg eða breytileg átt og þykknar upp með stöku skúrum, einkum síðdegis. Vaxandi austanátt suðvestantil undir kvöld. Hiti 10 til 15 stig.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt 8-15 og rigning, hvassast suðvestantil, en þurrt norðaustanlands fram yfir hádegi. Dregur úr úrkomu og styttir víða upp undir kvöld. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu eða skúrum, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austanlands.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu, en bjartviðri og úrkomulítið norðaustanlands. Áfram milt.