Hæð suðaustur af landinu veldur suðvestlægum áttum. Búast má við vætusömu og svölu veðri í flestum landshlutum en björtu og hlýju veðri fyrir austan. Þar verður hiti að 20 stigum í dag, og allt að 25 stigum á sunnudag, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Öflug hæð er frekar stöðug suðaustur af landinu næstu daga. Hæðin veldur suðvestlægum áttum sem þýðir að búast má við vætusömu og svölu veðri í flestum landshlutum, en björtu og hlýju veðri fyrir austan.
Í dag verður suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Dálítil væta af og til, en bjart að mestu austanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir austan. Bætir í rigningu vestantil í kvöld. Á morgun verður suðvestan 5-13 m/s og skúrir, en léttskýjað á Austurlandi. Hiti breytist lítið.
Á föstudag gera spár ráð fyrir vestlægri átt, 5-13 m/s og skúrum í flestum landshlutum, en lengst af þurrt austast á landinu. Hiti 10 til 18 stig. Á laugardag er útlit fyrir suðvestanátt. Dálítil væta vestantil, en bjart austanlands. Hiti 10 til 20 stig. Hlýjast aftur fyrir austan.
Á sunnudag er útlit fyrir vætu vestantil og 10 til 15 stig, en bjart austanlands við hita allt að 25 stigum.