Andstæðingar Evrópusambandsins hafa löngum átt heimili í Heimssýn, þverpólitískum samtökum Evrópuandstæðinga. Með árunum hefur Heimssýn orðið að sérviskulegum sértrúarsöfnuði, yfirbragðið gamaldags. Andstæðingum Evrópusambandsins finnst oft eins og að einhver erlendur aðili sé að taka eitthvað frá þeim, eða að þeim sé ógnað með einhverjum hætti. Tilfinningar af þessu tagi kalla fram neikvæða umræðu, samsæriskenningar eiga sér frjóan jarðveg. Andlitslyfting Evrópuandstöðunnar var því nauðsynleg þó boðskapurinn væri sá sami og fyrr.
Birgir Hermannsson skrifar: Ísland best í heimi