Betur fór en á horfðist þegar bíll fór út af veginum á Bolafjalli við Bolungarvík og valt um 200 metra niður. Ökumaður slapp með minni háttar áverka en bíllinn er að öllum líkindum ónýtur.
Þetta staðfestir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði. „Viðkomandi gat meira að segja gengið,“ segir Hlynur.
Lögreglunni á Vestfjörðum var tilkynnt að bíll hefði oltið á Bolafjalli á þriðja tímanum. Lögregla og tveir sjúkrabílar fóru á vettvang og björgunarsveit og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út.
Allt viðbragð var afturkallað þegar þeir fyrstu komu á vettvang. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar.
Tildrög slyssins eru ókunn.
Fréttin var uppfærð.