Ráðstefnan Reykjavík Economic Conference hófst í Hörpu í dag en Seðlabanki Íslands stendur að ráðstefnunni ásamt fulltrúum frá Northwestern-háskóla í Illinois-ríki í Bandaríkjunum.
Ráðstefnan er nú haldin í þriðja sinn en ýmis stór nöfn í heimi hagfræðinnar munu taka þátt í dagskrá hennar næstu tvo dagana, ber þar að nefna Andrew Bailey, seðlabankastjóra Bretlands, og Sanjay Malhotra, seðlabankastjóra Indlands.
Hluti ráðstefnunnar er í beinu streymi en meðal þess sem streymt er í dag eru kynningar frá tveimur seðlabankastjórum í Bandaríkjunum; John C. Williams, seðlabankastjóra í New York-deild Seðlabanka Bandaríkjanna, og Alberto Musalem, Seðlabankastjóra í deild Seðlabanka Bandaríkjanna í St Louis-ríki.
Að loknum kynningum þeirra tveggja mun Claire Jones, einn af ritstjórum breska dagblaðsins Financial Times, taka við spurningum og beina þeim til seðlabankastjóranna.