Hreyfingin Áfram Ísland stendur fyrir fundi í Brekkubæjarskóla á Akranesi sem fram fer klukkan 17 í dag.
Hreyfingin beitir sér fyrir því að Ísland hefji ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer 29. ágúst.
Er þetta annar fundurinn sem hreyfingin stendur fyrir en sá fyrsti fór fram í síðustu viku í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.
Ræður frá heimamönnum
Fjölbreyttur hópur ræðumanna mun stíga á svið á fundinum.
Ræðumenn verða Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir, Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi og Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur.
Hér að neðan má fylgjast með fundinum í beinu streymi.