Beint flug til Portó - Vísir

Beint flug til Portó - Vísir

Beint flug til Portó - Vísir

„Við leggjum áherslu á að bjóða upp á spennandi áfangastaði og beint flug á dagsetningum sem henta Íslendingum vel,“ segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri Aventura. „Í nokkrum þessara ferða er m.a. flogið beint frá Egilsstöðum og Akureyri sem hefur fallið vel í kramið hjá þeim landsmönnum sem búa fjarri suðvesturhluta landsins.“

Október hefur um árabil verið vinsælasti mánuður Íslendinga þegar kemur að borgarferðum og í ár býður Aventura meðal annars upp á ferðir til Portó, Kraká og Búdapest. En það er ekki aðeins haustið sem er spennandi hjá ferðaskrifstofunni. Þegar horft er fram á næsta ár eru þegar komnar í sölu páskaferðir til Prag og Lissabon og sumarið 2027 verður meðal annars boðið upp á ferðir til Split í Króatíu.

„Við leggjum áherslu á að bjóða upp á spennandi áfangastaði og beint flug á dagsetningum sem henta Íslendingum vel,“ segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri Aventura.

„Svo vil ég hvetja sem flesta til að taka þátt í skemmtilegum leik á Facebook-síðu Bylgjunnar hjá Ívari Guðmunds þar sem heppnir hlustendur geta unnið flugferð til Portó, Búdapest eða Kraká.“

Gamli bærinn í Portó er einstaklega fallegur.

Portó býður upp á sögu, sjarma og púrtvín

Portó hefur á undanförnum árum orðið sífellt vinsælli áfangastaður meðal Íslendinga og það kemur Andra Má Ingólfssyni, forstjóra Aventura, ekki á óvart. Borgin á sér langa og merkilega sögu og mikilfenglegar byggingar bera þess glöggt merki hversu auðug og mikilvæg hún var fyrr á öldum.

„Portó tók á sínum tíma á móti miklum verðmætum frá nýlendum Portúgala og þar varð til gríðarlegt ríkidæmi og mikil menning. Þess vegna finnur maður arkitektúr í borginni sem maður sér eiginlega hvergi annars staðar. Þetta er einfaldlega ofboðslega falleg borg,“ segir Andri.

Douro-áin setur sterkan svip á Portó, með gömlu og litríku húsunum í Ribeira-hverfinu á öðrum bakkanum og Vila Nova de Gaia á hinum. Þar er jafnframt eitt helsta kennileiti borgarinnar, hin glæsilega Dom Luís I-brú. Púrtvínið er síðan órjúfanlegur hluti af sögu og menningu svæðisins.

Aventura býður upp á fjölbreyttar skoðunarferðir í Portó. Hægt er að fara í borgarferð með rútu eða tuk-tuk, heimsækja Aveiro, sem gjarnan er kölluð Feneyjar Portúgals, og strandbæinn Costa Nova. Vínáhugafólk getur meðal annars farið í vínsmökkun í Douro-dalnum eða heimsótt vínhúsin í Gaia, sem eru ómissandi viðkomustaður þeirra sem heimsækja Portó. Þar má einnig finna WOW Porto, sem er stórt menningar- og vínhverfi með fjölbreyttum söfnum og veitingastöðum.

„Portó hefur eiginlega allt; söguna, byggingarlistina, matarmenninguna og svo auðvitað eitt frægasta vínræktarsvæði Evrópu,“ segir Andri.

Aventura býður upp á tvær ferðir til Portó í október, 1.–5. og 22.–25. október. Íslensk fararstjórn er í höndum Þóru Katrínar Gunnarsdóttir, Önnu Katrínar Mendes og Telmu Rán Viggósdóttir, reynslumikilla fararstjóra sem hafa starfað lengi með Aventura.

Kraká er oft nefnd ein fallegasta borg Póllands.

Kraká hefur varðveitt svip liðinna tíma

Kraká er ein elsta og sögufrægasta borg Póllands og hefur um árabil verið einn vinsælasti áfangastaður Aventura. Að sögn Andra er ekki síst heillandi hversu vel borginni hefur tekist að varðveita sögulegan svip sinn. „Kraká er oft nefnd ein fallegasta borg Póllands. Hún slapp að miklu leyti við eyðileggingu í síðari heimsstyrjöldinni og er því enn að stórum hluta í upprunalegri mynd. Þar má líka finna skemmtilega menningu, öflugt listalíf, frábæra veitingastaði og söfn,“ segir Andri.

Gamli bærinn er hjarta Kraká, með steinlögðum strætum, sögulegum byggingum og hinu glæsilega Rynek Główny-torgi. Konungsleiðin liggur um gamla bæinn að Wawel-kastala og þar er hægt að ganga í fótspor pólskra konunga fyrri alda. Kazimierz, gamla gyðingahverfið, er einnig ómissandi hluti heimsóknarinnar en þar hefur orðið til líflegt hverfi kaffihúsa, veitingastaða, brugghúsa og gallería. „Það er margt skemmtilegt að skoða í Kraká, verðlagið er frábært og hótelin góð. Þetta er einfaldlega borg sem hefur mjög margt fram að færa,“ segir Andri.

Aventura býður upp á ýmsar skoðunarferðir, meðal annars gönguferð um gamla bæinn og útsýnissiglingu á Vistula-fljótinu. Þá er hægt að heimsækja Wawel-kastala og fara í einkaskoðunarferð um borgina í golfbíl. Ein þekktasta kynnisferðin frá Kraká er síðan heimsókn til Auschwitz.

Ferðin til Kraká er 24.–27. september. Íslensk fararstjórn er í ferðinni.

Október er góður tími til að heimsækja Búdapest og verðlagið er eitt það besta sem gerist í evrópskum stórborgum.

Glæsileg borg þar sem þú færð mikið fyrir peninginn

Búdapest hefur lengi verið vinsæll áfangastaður Íslendinga og Andri segir október sérlega góðan tíma til að heimsækja ungversku höfuðborgina. Þá sé veðrið alla jafna gott, mikið líf í borginni og fjölbreytt afþreying í boði. „Búdapest er sérstaklega vinsæl meðal hópa enda býður borgin upp á ótrúlega margt. Þar eru fræg baðhús, góður og ódýr matur og drykkur og verðlagið er eitt það besta sem gerist í evrópskum stórborgum,“ segir Andri.

Búdapest sameinar sögu og stórbrotinn arkitektúr við líflega veitinga- og kaffihúsamenningu. Meðal þekktustu kennileita eru hið glæsilega ungverska þinghús, Búdakastali og Keðjubrúin yfir Dóná. Þá eru hin sögufrægu baðhús eitt helsta sérkenni borgarinnar. Þar á meðal eru Széchenyi-böðin, með fjölmörgum inni- og útilaugum, gufuböðum og nuddmeðferðum. „Þetta er borg sem hentar mjög breiðum hópi fólks. Þú getur sökkt þér í söguna og menninguna en líka farið út að borða, verslað og einfaldlega notið borgarlífsins án þess að það kosti of mikið.“

Aventura býður upp á þrjár spennandi skoðunarferðir. Í gönguferð um miðborgina eru helstu kennileitin skoðuð. Þá er einnig boðið upp á ferð til listamannabæjarins Szentendre. Þriðji kosturinn er sigling og kvöldverður á Dóná þar sem upplýst kennileiti Búdapest blasa við af ánni.

Ferðin er 22.–25. október. Íslensk fararstjórn er í ferðinni.

Skelltu þér í draumaferð um páskana

Páskarnir eru fullkominn tími til að skella sér í borgarferð og dagana 25.–30. mars 2027 býður Aventura upp á tvær glæsilegar páskaferðir, annars vegar til Prag og hins vegar til Lissabon. Þótt báðar borgirnar búi yfir ríkri sögu, frábærri matarmenningu og lifandi mannlífi eiga þær hvor sinn einstaka karakter. Í báðum ferðunum verður boðið upp á íslenska fararstjórn sem leiðir hópinn um helstu perlur borganna.

Prag er ein fegursta borga Evrópu og hefur lengi verið vinsæl meðal Íslendinga.

Prag er ævintýraleg miðaldaborg við Moldá

Prag er ein þeirra borga sem virðist hafa staðið kyrr í tíma. Hún slapp að mestu við eyðileggingu síðari heimsstyrjaldarinnar og hefur varðveitt þann miðaldasjarma sem gerir hana að einni fegurstu borg Evrópu. „Þarna eru steinlagðar götur, gylltir kirkjuturnar, hallir og söguleg torg og það er eiginlega sama hvert maður lítur, alls staðar blasir sagan við. En um leið er Prag mjög lifandi og nútímaleg borg,“ segir Andri.

Karlsbrúin er eitt helsta kennileiti borgarinnar og tengir gamla bæinn við kastalahæðina, þar sem Vítusarkirkjan gnæfir yfir borginni. Frá Stjörnuúrinu á Gamla bæjartorginu til þröngra gatna gyðingahverfisins er alltaf eitthvað nýtt að uppgötva. „Prag býr yfir mjög öflugu menningarlíf þar sem m.a. lifandi tónlist og leikhús fá að njóta sín. Þar má finna fullt af góðum veitingastöðum og kaffihúsum og svo má auðvitað ekki gleyma hinni sterku tékknesku bjórhefð.“

Í páskaferð Aventura er meðal annars boðið upp á gönguferð um Prag þar sem helstu kennileiti borgarinnar eru skoðuð. Einnig er hægt að fara í dagsferð til UNESCO-bæjarins Kutná Hora og heimsækja hina sérstöku Beinakirkju. „Svo bjóðum við upp á siglingu á Moldá með hádegisverði. Það er mjög skemmtileg leið til að sjá borgina frá allt öðru sjónarhorni og njóta fallegustu bygginga hennar frá ánni,“ segir Andri.

Ferðin er 25.–30. mars 2027 og boðið verður upp á íslenska fararstjórn.

Gott loftslag, líflegt mannlíf, rík saga og hagstætt verðlag gera Lissabon að spennandi kosti fyrir páskaferð.

Lífleg borg þar sem gott er að njóta lífsins

Lissabon er ein skemmtilegasta höfuðborg Evrópu að mati Andra. Þar fara saman gott loftslag, líflegt mannlíf, rík saga og hagstætt verðlag sem gerir borgina að spennandi kosti fyrir páskaferð. „Lissabon hefur eiginlega allt sem maður vill fá út úr góðri borgarferð. Þar eru frábærir veitingastaðir, margt skemmtilegt að skoða, úrval verslana og verðlagið í Portúgal er með því lægsta í Evrópu,“ segir Andri.

Borgin er þekkt fyrir hæðirnar, þröngar götur og gömlu sporvagnana sem liðast um litrík hverfin. Í Alfama, gamla bænum, má upplifa eina sterkustu hefð borgarinnar, fado-tónlistina, en hún skipar sérstakan sess í portúgalskri menningu. Baixa-hverfið nær höfninni iðar hins vegar af mannlífi, verslunum og veitingastöðum. „Það er mjög gott að gista annaðhvort nálægt Avenida da Liberdade, þar sem eru frábærar verslanir og veitingastaðir, eða í Baixa þar sem maður er kominn nær höfninni og beint inn í lífið í borginni.“

Aventura býður upp á fjölbreyttar skoðunarferðir. Hægt verður að kynnast helstu kennileitum Lissabon í gönguferð um borgina og njóta kvöldverðar með lifandi fado-tónlist. Þá verður boðið upp á ferð til Sintra, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og þekkt fyrir ævintýralegar hallir og einstakt menningarlandslag. „Sintra er frábær viðbót við Lissabon. Þar fær fólk allt aðra upplifun og sér enn eina hliðina á Portúgal,“ segir Andri.

Páskaferðirnar eru 25.–30. mars 2027 og boðið verður upp á íslenska fararstjórn.

Split er önnur stærsta borg Króatíu. Gamli borgarhlutinn einkennist af steinlögðum strætum, sögulegum byggingum og fornum rústum.

Heillandi náttúrufegurð og strandlíf við Adríahafið – beint flug næsta sumar

Króatía verður einn af stóru áfangastöðum Aventura sumarið 2027 en boðið verður upp á beint flug til Split ásamt íslenskri fararstjórn. Andri Már Ingólfsson segir viðtökurnar þegar hafa verið mjög góðar. „Þetta er stóri smellurinn hjá okkur næsta sumar. Við erum strax farin að fá mikið af bókunum og það kemur kannski ekki á óvart. Fólk hefur hrifist af náttúrufegurðinni, matargerðinni og mjög góðum hótelum,“ segir Andri.

Split er önnur stærsta borg Króatíu og gamli borgarhlutinn einkennist af steinlögðum strætum, sögulegum byggingum og fornum rústum. En ferðin snýst ekki eingöngu um Split því hægt verður að velja um ólíka áfangastaði meðfram hinni fögru Dalmatíuströnd. „Sumir vilja vera nálægt gömlu borginni og njóta sögunnar og mannlífsins en aðrir kjósa frekar strandbæ þar sem stutt er í sjóinn, veitingastaði og alla aðstöðu til að njóta lífsins.“

Í nágrenni Split er fjölmargt að sjá og gera. Meðal áhugaverðra áfangastaða er miðaldaborgin Šibenik, þar sem finna má þröngar steingötur og dómkirkju sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þá er hægt að heimsækja Krka-fossana og Dalmatian Ethno Village, þar sem gestir kynnast hefðbundinni menningu og matargerð Dalmatíu. Fyrir fjölskyldur er Amadria Park einnig spennandi kostur, með fjölskylduvænum hótelum, ströndum og stórum vatnagarði. „Svo eru frábærar kynnisferðir í boði og siglingar út í eyjarnar, meðal annars til Hvar og Korčula. Náttúran þarna er alveg dásamleg,“ segir Andri.

Ferðir Aventura til Króatíu sumarið 2027 verða með íslenskri fararstjórn

#beint #flug #portó #til #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262928949d/beint-flug-til-porto

📰 Aðrar fréttir

Bréfið var ekki frá sprengjuvörgunum
📅 17.10.2026 👁️ 0
Bréfið var ekki frá sprengjuvörgunum
Menn sem útskrifuðust úr menntaskóla vorið 1960 sendu nafnlaust bréf á fjölmiðla þar sem þeir lýstu sprengingu Hafmeyjunnar í Tjörninni sér á hendur. ...
Katrín Oddsdóttir: Íslenskar stofnanir undirseldar norskum fjárfestum með freka lögmenn á sínum snærum
📅 17.10.2026 👁️ 0
Katrín Oddsdóttir: Íslenskar stofnanir undirseldar norskum fjárfestum með freka lögmenn á sínum snærum
Þegar kemur að leyfisveitingum í sjókvíaeldi virðist sem enginn í kerfinu beri neina ábyrgð nema bara á sínum afmarkaða hluta og því er enginn með alm...
Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxus­lífi og slags­málum - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxus­lífi og slags­málum - Vísir
Combs var dæmdur í fjögurra ára og tveggja mánaða fangelsi eftir að hann var sakfelldur 2. júlí 2025 fyrir brot tengd vændi. Brotin vörðuðu flutning f...
Jón Gnarr opnar boxið
📅 17.10.2026 👁️ 0
Jón Gnarr opnar boxið
Jón Gnarr opnar boxið Fréttin17. október 2026Björn Bjarnason, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Jón Gnarr. Björn Bjarnason skrifar: Ég tel að kosninga...
Vikulokin – Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans
📅 17.10.2026 👁️ 0
Vikulokin – Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans
Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þi...
Minna á út­gáfu nafnskírteina vegna rann­sóknar lög­reglu - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Minna á út­gáfu nafnskírteina vegna rann­sóknar lög­reglu - Vísir
Lögreglan sendi í vikunni út viðvörun til foreldra og forráðamanna barna og ungmenna vegna VPN-stillingar í smáforritinu sem gerir óviðkomandi kleift ...
„Rússar vilja skilja milljónir okkar eftir án rafmagns og hita“
📅 17.10.2026 👁️ 0
„Rússar vilja skilja milljónir okkar eftir án rafmagns og hita“
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, harmar ákvörðun Bandaríkjaforseta um að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Rússar gerðu í gær eina stærs...
Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 0
Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Vegagerðarinnar en gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag vegna hvassviðris með talsver...
Martröðin að eignast heimili
📅 17.10.2026 👁️ 1
Martröðin að eignast heimili
Martröðin að eignast heimili Þor­valdur S. Helgason skrifar um Fast­eigna­martröð­ina eftir Gabrielė Labanauskaitė, sem sýnd er í Sam­komu­hús­inu. Þa...
Margrét segir lögreglukonu hafa haft meiri áhyggjur af dreifingu typpamyndanna – „Victim blaming“
📅 17.10.2026 👁️ 1
Margrét segir lögreglukonu hafa haft meiri áhyggjur af dreifingu typpamyndanna – „Victim blaming“
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, segist hafa fengið ítrekaðar typpamyndir frá starfsmanni opinberrar stofnunar. Þegar hún tilkynnti mál...
Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði
📅 17.10.2026 👁️ 1
Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði
Jón styður Þorbjörgu gegn Þorgerði Fréttin17. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Samsett mynd: Jón Gnarr og Þorbjörg Sig...
Cage og Banderas  í næstu seríu True Detective - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Cage og Banderas  í næstu seríu True Detective - Vísir
Báðir tveir, hinn bandaríski Cage og hinn spænski Banderas, hafa mátað sig við hlutverk í þáttunum síðasta árið eða svo og hafði Cage nánast greint fr...
Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Ef þú finn­ur fyr­ir ein­kenn­um, hlust­aðu á lík­am­ann - Vísir
„Þetta byrjaði þannig að ég var með slitinn liðþófa,“ segir Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir, sem greindist með æxli á stærð við golfkúlu í hnénu í aðdragand...
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
📅 17.10.2026 👁️ 1
Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir var kærasta þegar hún steig upp í flugvél á leið til Barcelona en unnusta þegar hún steig...
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
📅 17.10.2026 👁️ 1
Flúði af vettvangi, skildi bílinn eftir en fjarlægði númerin
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að eiga við að minnsta kosti þrjá bílstjóra sem lögðu á flótta í nótt.Einn ökumaður flúði af vettvangi eftir að ...
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
📅 17.10.2026 👁️ 1
Drógu logandi vinnuvél úr álverinu í Straumsvík
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti flóknu verkefni í álverinu í Straumsvík í nótt þegar kviknaði í vinnuvél inni í álverinu. Draga þurfti vélina ú...
Stormasamt veður og viðvaranir víða
📅 17.10.2026 👁️ 1
Stormasamt veður og viðvaranir víða
Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins í dag, sérstaklega á vestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi...
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slösuð eftir skot­á­rás í í­þrótta­húsi - Vísir
Konan, sem er á þrítugsaldri, var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með áverka sem lögreglan lýsti sem „mjög alvarlegum“. Á laugardagsmorgun var ástand ...
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
📅 17.10.2026 👁️ 1
Canary Islands to extend breast cancer screening to more women from 2027
More women living in the Canary Islands will be offered routine breast screening from next year, as the regional health service begins widening the pr...
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi - Vísir
Trump undirritaði sjálfur lögin í síðasta mánuði en ákvörðun hans nú kom aðeins tveimur dögum áður en frestur til að hrinda þeim í framkvæmd rann út s...
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
📅 17.10.2026 👁️ 1
Boy and man die in light air craft crash near Loch Lomond
Emergency services were called at about 16:45 on Friday, and pronounced both dead at the scene.
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir handteknir vegna skotárásar í Stokkhólmi
Tveir ungir menn hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um skotárás við íþróttahöll í Stokkhólmi í gærkvöldi. 25 ára kona liggur þungt haldin á sjúk...
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík - Vísir
Samkvæmt tilkynningu fóru tveir dælubílar á vettvang en það tók um tvo tíma að klára verkefnið vegna þess hve snúið það var. Ekki má nota vatn inni í ...
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag - Vísir
Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð sunnan roki og mjög snörpum vindhviðum, en slíkir vindar geta valdið foktjóni. Því hefur verið gefin út appelsínugu...
Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Sveitadraumurinn breyttist í mar­tröð - Vísir
Það var í apríl árið 2022 sem hún vaknaði upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjöls...
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tveir reyndu að flýja lög­reglu á fótum eftir eftir­för - Vísir
Einn ungur ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Suðurlandsvegi eftir að hafa verið mældur á 151 kílómetra hraða en hámarkshraði þar sem hann var stöðv...
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
📅 17.10.2026 👁️ 1
„Margt sem ég hef séð situr í mér“
„Margt sem ég hef séð situr í mér“ Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að kon...
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
📅 17.10.2026 👁️ 1
Trump dregur enn frekar úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir forsetatilskipun í gær sem felldi úr gildi viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi.Þær beindust ...
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Drukku brjósta­mjólk á brúð­kaups­daginn - Vísir
Hjónin kynntust í Verzló árið 2016, þegar Kolbrún var busi og Arnór á þriðja ári. Þau eru miklir stuðboltar sem eru umkringt fjörugu fólki en Arnór ræ...
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
📅 17.10.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað
Mynd Víða í Íslendingasögum er sagt frá örlagaríkum ferðum í
Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm
📅 17.10.2026 👁️ 1
Tímamótakosningar í Serbíu: Stúdentar skora forsetann á hólm
„Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis“, segir Mladen Zivanovic, viðmælandi Heimskviða, um komandi þingkosnin...
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
📅 17.10.2026 👁️ 1
Greiningum barna fjölgaði um 58% í Reykjavík – umönnunargreiðslur tvöfölduðust hjá TR
Börnum sem fóru í greiningu hjá skólaþjónustu Reykjavíkur fjölgaði um 58% frá 2013 til 2024, meðan börnum í borginni fjölgaði aðeins um 4%. Á landsvís...
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
📅 17.10.2026 👁️ 1
24-year-old man seriously injured in buggy accident in southern Gran Canaria
A 24-year-old man was airlifted to hospital with serious injuries after falling from a buggy in southern Gran Canaria yesterday afternoon (Friday).The...
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
📅 17.10.2026 👁️ 1
SATURDAY WEATHER: Sunny spells as temperatures ease across the Canary Islands
The Canary Islands will have a mix of sunshine and cloud this Saturday, 17th October, with temperatures dropping towards the average for this time of ...
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Frétta­tía vikunnar: Mis­tök, of­læti og vél­menni - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
📅 17.10.2026 👁️ 2
Kínverskir bílar tóku myndbönd af æfingum norska hersins
Norski herinn hefur komist að því að bílar frá Kína hafi safnað viðkvæmum upplýsingum um starfsemi hans.Meðal þess sem bílarnir skráðu og geymdu voru ...
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
📅 17.10.2026 👁️ 2
Glæsihýsi brenna í gróðureldum við Los Angeles
Glæsihýsi sem metin eru á milljónir bandaríkjadala urðu gróðureldum að bráð sunnan við Los Angeles í gær.Eldarnir hafa sviðið tæpa 190 hektara á skömm...
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
📅 17.10.2026 👁️ 2
Expansion of Heathrow Airport would drive growth, chancellor Healey says
It comes after the prime minister refused to say whether he backed expansion.
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
📅 17.10.2026 👁️ 2
Óvíst hvað varð um 85 milljarða sem ráðstafa átti til viðbragðs við ebólufaraldri
Sóttvarnarstofnun Afríku segir óvíst hvert fé sem ráðstafa átti til viðbragða við ebólufaraldrinum hafa ratað. Upphæðin hleypur á 700 milljónum dala, ...
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
📅 17.10.2026 👁️ 2
Three men jailed for 158 years each for murdering Australian brothers and US friend in Mexico
Brothers Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were killed on a surfing trip in an apparent botched robbery.
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
📅 17.10.2026 👁️ 2
Eyðing Amazon-frumskógarins í Brasilíu ekki minni í 40 ár
Skýrsla var gefin út í gær sem sýnir fram á að eyðing regnskógarins í Brasilíu hefur ekki verið minni í fjóra áratugi.Niðurstöður skýrslunnar þykja já...
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
📅 17.10.2026 👁️ 2
Trump waives several Russian sanctions as new US law takes effect
Trump says parts of a new law that aims to punish Moscow for its war against Ukraine are against US national interests.
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
📅 17.10.2026 👁️ 1
Trump waives several Russia sanctions as row with Zelensky intensifies
The US president temporarily ends many restrictions on Moscow recently passed by Congress over "national security" concerns.
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
📅 17.10.2026 👁️ 6
Faisal Islam: What I learned from a week with the world's top finance leaders
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
📅 17.10.2026 👁️ 1
Faisal Islam: Why China and AI are worrying global finance bosses
At the IMF meeting in Bangkok this week finance and business leaders grappled with uncertainty.
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
📅 17.10.2026 👁️ 6
25 ára kona alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Stokkhólmi
25 ára gömul kona er alvarlega særð eftir að skotum var hleypt af í íþróttahöll í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi um níuleytið að staðartíma í gærkvöldi.Íþr...
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
📅 17.10.2026 👁️ 6
Miranda's tears, joy and dance moves steal show as celebrities battle deadly boredom on The Traitors
Miranda Hart became emotional and spoke about her health problems as more action unfolded on Friday.
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
📅 17.10.2026 👁️ 6
Börn með sérþarfir voru fórnarlömb skotárásar í Silver Rail-skólanum
Fórnarlömb árásarmannsins sem hóf skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Oregon í gær voru börn með sérþarfir. Árásarmaðurinn var sextán ára drengur o...
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 6
Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn - Vísir
Hin fimm ára Rhoam Summer og hin 25 ára Meghan Lambert, kennari við skólann, létust í árásinni sem átti sér stað í gær, fimmtudaginn 15. október, í Si...
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
📅 16.10.2026 👁️ 2
Trump 'completely wrong' to restrict support for Ukraine, Italian minister tells BBC
Defence Minister Guido Crosetto tells the BBC the US risks prolonging Russia's full-scale invasion rather than helping to end it.