Í tilkynningu þess efnis frá Landspítalanum segir að Alma Möller heilbrigðisráðherra og Runólfur Pálsson, forstjóri spítalans, muni flytja ávörp og í kjölfarið verði flutt erindi um mælanlegan árangur á hinum ýmsu sviðum spítalans. Þá verði tilkynnt um heiðursvísindamann og ungan vísindamann Landspítala 2026 auk þess sem starfsfólk verði heiðrað.
Á fundinum verði einnig pallborðsumræður um nýtingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu.
Fundinn má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan: