Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykja­víkur­flug­völl - Vísir

Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykja­víkur­flug­völl - Vísir

Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og   
Reykja­víkur­flug­völl - Vísir

Þannig hafa viðmiðunarkóðarnir ekki komið í veg fyrir að Boeing 757 og Boeing 737 max-þotur Icelandair nýti Reykjavíkurflugvöll. 757-þotan er með kóða 4D en er með sérstaka undanþágu til að nota flugvöllinn. 737 max-þotan er með tvær skilgreiningar eftir þyngd, 3C og 4C.

Fimm þotur Icelandair nýttu Reykjavíkurflugvöll sem varaflugvöll þann 26. febrúar síðastliðinn þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist skyndilega vegna hríðarbyls. Þetta voru fjórar Boeing 737 max og ein Boeing 757. Airbus A321-vélar Icelandair máttu ekki lenda á flugvellinum.Vilhelm

Samgöngustofa skýrir þann tíma, sem tekið hefur að afgreiða ósk um að Airbus-þotur Icelandair geti nýtt Reykjavíkurflugvöll, með því að tæknilegar upplýsingar og gögn, sem óskað hafi verið eftir frá Isavia innanlandsflugvöllum stuttu eftir að umsókn barst, hafi ekki enn borist. Því liggi ekki fyrir fullnægjandi grundvöllur til að staðfesta að notkun flugvélarinnar samræmist þeim rekstrar- og öryggisforsendum sem gilda fyrir flugvöllinn.

Í frétt Sýnar í síðustu viku kom fram í viðtali við Ásgeir Gunnar Stefánsson, aðstoðaryfirflugstjóra Icelandair, að félagið hafi í hartnær tvö ár verið í samtali við bæði Reykjavíkurflugvöll og Samgöngustofu um það að bæta Airbus A321 inn á starfsleyfi vallarins, eins og heyra má hér:

Í skriflegu svari Samgöngustofu til fréttastofu kemur fram hún hafi átt samtal við rekstraraðila flugvallarins, Isavia innanlandsflugvellli, vegna málsins. Stuttu eftir að umsókn barst hafi Samgöngustofa óskað eftir frekari gögnum og tæknilegum upplýsingum sem nauðsynlegar séu til að hægt sé að leggja fullnægjandi mat á málið.

Samgöngustofa segir að rekstraraðili flugvallarins beri ábyrgð á mati á burðargetu flugvallarmannvirkja, þar á meðal flugbrauta, akbrauta og flughlaða, ásamt því að skilgreina þau rekstrarskilyrði sem gildi á flugvellinum. Hlutverk Samgöngustofu sé eftirlitshlutverk og felist meðal annars í því að staðfesta að rekstur flugvallar og fyrirhugaðar breytingar séu í samræmi við gildandi reglur og öryggiskröfur.

„Þótt flugbrautir geti uppfyllt ákveðin skilyrði getur verið að önnur mannvirki, svo sem flughlöð eða akbrautir, krefjist frekara mats eða úrbóta áður en heimildir eru veittar,“ segir Samgöngustofa.

Airbus A321-þota WOW-air á Reykjavíkurflugvelli árið 2015.

Þegar fréttastofa spurði hvað það væri við Reykjavíkurflugvöll og Airbus A321 sem hamlaði því að flugvélinni væri bætt inn á starfsleyfi flugvallarins fékkst þetta svar frá Samgöngustofu:

„Helstu atriði sem þarf að leggja mat á í þessu samhengi eru meðal annars lengd flugbrautar, burðargeta og styrkur slitlaga, ásamt þeirri ICAO-kóðun sem framleiðandi loftfarsins skilgreinir fyrir viðkomandi loftfar.

Airbus A321 er af framleiðanda loftfarsins skilgreind sem ICAO reference code 4C loftfar. Sú flokkun byggir á stöðluðum alþjóðlegum forsendum um eiginleika loftfarsins, meðal annars vænghaf, stærð, uppbyggingu og álagsdreifingu hjólabúnaðar, auk þeirra rekstrarskilyrða sem þarf til öruggrar notkunar loftfarsins á flugvöllum.

Almennt gildir að loftför eru rekin á flugvöllum sem eru hannaðir, samþykktir og birtir fyrir þann kóðaflokk sem viðkomandi loftfar fellur undir. Ef loftfar fellur undir hærri kóðun, en sá flugvöllur sem fyrirhugað er að nota, þarf sérstaklega að leggja mat á hvort mannvirki, öryggisfjarlægðir og rekstrarforsendur flugvallarins uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi. Í tilfelli Reykjavíkurflugvallar er kóðinn 3C, sem er þá lægri kóði en uppgefinn kóði frá framleiðanda Airbus A321,“ segir Samgöngustofa.

Airbus A321-þota Play í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli árið 2023.Egill Aðalsteinsson

Stofnunin segir að við matið sé meðal annars stuðst við kerfi þar sem tekið sé mið af áhrifum loftfars á flugbrautir, akbrautir og flughlað. Áhrif á slitlag ráðist ekki eingöngu af heildarþyngd loftfars heldur einnig af dreifingu álags, lendingarbúnaði og tíðni notkunar.

„Tilgangurinn með þessum reglum og flokkunarkerfum er að tryggja örugga og samræmda notkun loftfara. Við slíkt mat er því stuðst við formlegar tæknilegar forsendur og gögn frá framleiðanda loftfarsins, en ekki eingöngu það hvað einstakir flugmenn eða flugrekendur telja sig geta framkvæmt.

Samgöngustofa hefur óskað eftir frekari tæknilegum upplýsingum og gögnum frá Isavia innanlandsflugvöllum, rekstraraðila Reykjavíkurflugvallar, sem byggja á upplýsingum frá framleiðanda loftfarsins. Þau gögn hafa ekki enn borist og því liggur ekki fyrir fullnægjandi grundvöllur til að staðfesta að fyrirhuguð starfsemi samræmist þeim rekstrar- og öryggisforsendum sem gilda fyrir flugvöllinn,“ segir Samgöngustofa.

Ásgeir Gunnar Stefánsson er aðstoðaryfirflugstjóri Icelandair.Lýður Valberg

Ásgeir Gunnar hjá Icelandair segir viðmiðunarkóðann fyrst og fremst hönnunar- og flokkunarviðmið. Honum en sé ekki ætlað að vera sjálfstæð rekstrarkrafa eða rekstrartakmörkun fyrir loftför.

„Fljótt á litið mætti álykta að það væri feigðarflan að reyna að lenda flugvél með kóðanúmeri 4 á flugbraut með 3 skilgreiningu. Svo er alls ekki,“ segir aðstoðaryfirflugstjórinn.

Boeing 757-þota Icelandair í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli. Þær taka 184 farþega og eru af og til fengnar til að létta á álagstoppum í innanlandsfluginu.Vilhelm

Ásgeir segir öll flugfélög í umhverfi Flugöryggisstofnunar Evrópu þurfa að reikna út hvort flugvél geti lent á varaflugvelli eða áfangastað. Miða þurfi við áætlaða þyngd og veðurspá á ætluðum komutíma með því að nota aðeins sextíu prósent af lengd flugbrautar áður en flugvöllur er skráður varaflugvöllur á flugáætlun.

Þegar í loftið sé komið þurfi flugmenn að framkvæma annan útreikning miðað við raunaðstæður og raunþyngd með fimmtán prósenta öryggismörkum. Fyrri útreikningurinn sé því talsvert íhaldssamari en sá seinni.

Boeing 737 max eftir lendingu á Reykjavíkurflugvelli þann 26. febrúar þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist.Vilhelm

„Af því leiðir að oft væri hægt að nýta Reykjavík til lendingar þó svo að völlurinn hafi ekki verið skráður varaflugvöllur áður en flugið hófst. Þetta er mjög mikilvægur flugöryggispunktur ef eitthvað óvænt skyldi gerast sem lokar Keflavíkurflugvelli,“ segir Ásgeir Gunnar Stefánsson.

Hann segir rétt að Reykjavíkurflugvöllur sé með viðmiðunarkóða 3C. Airbus A321 sé með skilgreindan viðmiðunarkóða 4C en Airbus A320 er með skilgreindan viðmiðunarkóða 3C.

„Boeing 737 Max er í raun með tvær skilgreiningar eftir þyngd 3C eða 4C. Í okkar tilfelli erum við ávallt langt undir 75 tonnum í flugtaki frá Reykjavík á Boeing 737 og því 3C,“ segir Ásgeir Gunnar.

Hér má sjá Boeing 737 max í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli:

#beðið #eftir #gögnum #nærri #tvö


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892277d/bedid-i-naerri-tvo-ar-eftir-gognum-um-airbus-og-reykjavikurflugvoll

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Andúð og ofstæki
📅 13.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Andúð og ofstæki
Mynd Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Tromp á hendi Trumps?
📅 13.09.2026 👁️ 0
Tromp á hendi Trumps?
Tromp á hendi Trumps? Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­...
Haustlitadýrð við Þingvallavatn
📅 13.09.2026 👁️ 0
Haustlitadýrð við Þingvallavatn
Náttúran skartaði sínu fegursta nærri Vinaskógi við Þingvallavatn í gær þegar myndatökumaður Ríkissjónvarpsins Arnór Fannar Rúnarsson var þar á ferð.H...
Nætur­frost norðaustantil - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Nætur­frost norðaustantil - Vísir
Þar segir að búist sé við austan og suðaustan kalda og rigningu í dag. Þá verði strekkingur með suðurströndinni. Hægari vindur verði á Norður- og Aust...
Sam­kvæminu slúttað vegna brots á lögum - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Sam­kvæminu slúttað vegna brots á lögum - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar koma engar frekari upplýsingar fram um málið, nema að það hafi átt sér stað í umdæmi ...
Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var hand­tekinn - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var hand­tekinn - Vísir
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum sem var kveðinn upp í lok júlímánaðar, en birtist á vef dómstólanna fyrir skömmu. Málið er...
Fjöldi Jemena á flótta undan stríðsátökum
📅 13.09.2026 👁️ 1
Fjöldi Jemena á flótta undan stríðsátökum
Um 1.400 flúðu frá Jemen til Djibútí á einum sólarhring vegna átaka milli stjórnarhersins í Jemen og uppreisnarsveita Húta. Efnahagsráðuneyti Djibútí ...
Jemenar á flótta undan stríðsátökum
📅 13.09.2026 👁️ 0
Jemenar á flótta undan stríðsátökum
Um 1.400 flúðu frá Jemen til Djibútí á einum sólarhring vegna átaka milli stjórnarhersins í Jemen og uppreisnarsveita Húta. Efnahagsráðuneyti Djibútí ...
Audi chooses Gran Canaria for major international event and vehicle testing
📅 13.09.2026 👁️ 1
Audi chooses Gran Canaria for major international event and vehicle testing
Gran Canaria has become an international showcase for one of the world's biggest car manufacturers, with Audi using the island for a major global conv...
Heat warnings activated across the Canary Islands today as temperatures climb and calima returns
📅 13.09.2026 👁️ 1
Heat warnings activated across the Canary Islands today as temperatures climb and calima returns
The Canary Islands are facing another hot and dusty day today, Sunday 13th September, as temperatures rise again and official health warnings for extr...
Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Ás­kell - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Ás­kell - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Scuba diver dies after getting into difficulty off Tenerife coast
📅 13.09.2026 👁️ 1
Scuba diver dies after getting into difficulty off Tenerife coast
A scuba diver has died after getting into difficulties in the sea off Radazul, in the Tenerife municipality of El Rosario, prompting a major response ...
15 ára dreng bjargað í Bergingshafi
📅 13.09.2026 👁️ 1
15 ára dreng bjargað í Bergingshafi
15 ára dreng var bjargað í Beringshafi úti fyrir ströndum St. Lawrence-eyju í síðustu viku eftir að hafa verið á reki á kili smábáts í tvo sólarhringa...
PM's top security adviser says Europe faces hard winter to keep pressure on Putin
📅 13.09.2026 👁️ 1
PM's top security adviser says Europe faces hard winter to keep pressure on Putin
In rare public remarks, Jonathan Powell said now was not the time for European nations to take their "foot off the gas".
One dead, 102 rescued from Indonesian ferry that went missing in Java Sea
📅 13.09.2026 👁️ 1
One dead, 102 rescued from Indonesian ferry that went missing in Java Sea
The nation's search and rescue team said it lost contact with the Virgo Transport 8 in the early hours of Sunday morning.
„Óþekkt kona“ hlaut Gullna ljónið
📅 13.09.2026 👁️ 2
„Óþekkt kona“ hlaut Gullna ljónið
Danska kvikmyndin Óþekkt kona (d. Kvinde ukendt) hlaut Gullna ljónið, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, sem veitt voru í gær. Aðalleikkon...
'She's back': Fans dance, sing and cry after Céline Dion's comeback concert in Paris
📅 13.09.2026 👁️ 2
'She's back': Fans dance, sing and cry after Céline Dion's comeback concert in Paris
Thousands turned out to witness Céline Dion perform in Paris on Saturday, her first show after a six year illness-induced hiatus.
Lengsta borðhald í heimi í Búkarest
📅 13.09.2026 👁️ 3
Lengsta borðhald í heimi í Búkarest
Yfir 20.000 gestir mættu á óvenjulegt borðhald í Búkarest í Rúmeníu í gær. Gestirnir sátu við borð sem var 5,055 metra langt og náði frá Unirii-breiðg...
AI staff 'genuinely frightened' for humanity's future, ex-Anthropic researcher tells BBC
📅 13.09.2026 👁️ 2
AI staff 'genuinely frightened' for humanity's future, ex-Anthropic researcher tells BBC
Jacob Coxon tells the BBC that there's a strong chance AI could end humanity if the rate of development is not reined in.
Critics celebrate Céline Dion's 'risky' comeback show in Paris
📅 13.09.2026 👁️ 3
Critics celebrate Céline Dion's 'risky' comeback show in Paris
The iconic Canadian singer kicked off her long-awaited comeback show in Paris on Saturday, after a six-year hiatus due to health issues.
They lost their jobs after posting about Charlie Kirk, but some have no regrets
📅 13.09.2026 👁️ 3
They lost their jobs after posting about Charlie Kirk, but some have no regrets
Some people fired in the wake of Kirk's assassination have won big settlements from employers, others have had to start over from scratch.
Celine Dion með langþráða endurkomu
📅 13.09.2026 👁️ 3
Celine Dion með langþráða endurkomu
Kanadíska söngdívan Celine Dion hélt sína fyrstu tónleika í sex ár í Plenitude Arena í Nanterre, úthverfi Parísar í Frakklandi í kvöld.Hún hóf tónleik...
For­stjórar gervi­greindar­fyrir­tækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun - Vísir
📅 12.09.2026 👁️ 2
For­stjórar gervi­greindar­fyrir­tækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun - Vísir
Dario Amodei, forstjóri og meðstofnandi Anthropic, segir að þróunin sé í dag það hröð að ekki sé hægt að tryggja öryggi á sama tíma. Þetta kemur fram ...
Drag Race co-creator Fenton Bailey speaks out after BBC axe
📅 12.09.2026 👁️ 2
Drag Race co-creator Fenton Bailey speaks out after BBC axe
The BBC is cutting the show because of financial pressures, sparking discussion about LGBTQ+ representation on TV.
Some dentists say more young people are grinding their teeth - are you one of them?
📅 12.09.2026 👁️ 2
Some dentists say more young people are grinding their teeth - are you one of them?
Millions of us do it, though few of us realise we do - but getting the right treatment can be life-changing.
Tom Felton: I'm so excited to see Rupert Grint play Ron Weasley again
📅 12.09.2026 👁️ 0
Tom Felton: I'm so excited to see Rupert Grint play Ron Weasley again
The Harry Potter actor talks about taking on Broadway and his friendship with former co-stars
Árásir á almenna borgara í Úkraínu
📅 12.09.2026 👁️ 3
Árásir á almenna borgara í Úkraínu
Að minnsta kosti níu voru drepnir og sextíu eru særðir eftir árásir Rússa í Úkraínu í dag. Þar af særðust 37 í árás á fjölbýlishús í Odessu og tveggja...
Student loan terms to be made clearer in England
📅 12.09.2026 👁️ 4
Student loan terms to be made clearer in England
Changes will spell out that governments can change rules and that career choices affect repayments.
Will the Thirlwall report change the debate about Lucy Letby?
📅 12.09.2026 👁️ 3
Will the Thirlwall report change the debate about Lucy Letby?
The inquiry into the former nurse is expected to find failures by her hospital to ensure patient safety.
Diljit Dosanjh: Punjabi singer makes history under the famous Wembley arch
📅 12.09.2026 👁️ 3
Diljit Dosanjh: Punjabi singer makes history under the famous Wembley arch
Wembley Stadium billed Diljit Dosanjh as the first Punjabi singer to headline the iconic music venue.
Óttast að fjár­magn til náms­gagna rati ekki rétta leið - Vísir
📅 12.09.2026 👁️ 2
Óttast að fjár­magn til náms­gagna rati ekki rétta leið - Vísir
Samkvæmt því sem hefur komið fram á meirihluti fjármagnsins að fara í ný námsgögn á grunnskólastigi með áherslu á STEAM-greinar en einnig hefur verið ...
US Open 2026 results: Elena Rybakina beats Aryna Sabalenka to win New York title
📅 12.09.2026 👁️ 2
US Open 2026 results: Elena Rybakina beats Aryna Sabalenka to win New York title
Elena Rybakina demonstrates why she is the best women's player in the world by beating Aryna Sabalenka to win her first US Open title.
Framhjáhaldið spennandi þar til mágkonan varpaði fram sprengju
📅 12.09.2026 👁️ 2
Framhjáhaldið spennandi þar til mágkonan varpaði fram sprengju
„Það var spennandi að halda framhjá með systur eiginkonu minnar, þar til hún varð ólétt.“Svona hefst bréf 37 ára karlmanns til kynlífs- og sambandsráð...
Meena and Minal: Best friends for decades - until a DNA test revealed they were sisters
📅 12.09.2026 👁️ 3
Meena and Minal: Best friends for decades - until a DNA test revealed they were sisters
Meena Geltink and Minal Tijssen were adopted from orphanages in Mumbai in the 1980s and grew up in the Netherlands.
Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég af­sökunar“ - Vísir
📅 12.09.2026 👁️ 1
Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég af­sökunar“ - Vísir
Hann hafnar því ekki að hafa beitt sömu aðferð í öðrum háskólum en kveðst ekki ætla að afla sér upplýsinga með þessum hætti aftur. Búið sé að eyða umr...
Mikil aukning í sjúkraflugi – lífsspursmál að halda flugvöllum um landið í lagi
📅 12.09.2026 👁️ 3
Mikil aukning í sjúkraflugi – lífsspursmál að halda flugvöllum um landið í lagi
Sjúkraflug jókst um ríflega 40% í júlí samanborið við í fyrra. Ef fram fer sem horfir verður flogið yfir þúsund sinnum á árinu í sjúkraflugi. Sérhæfin...
Trump: US president's comments on a united Ireland may have targeted an audience across the Atlantic
📅 12.09.2026 👁️ 3
Trump: US president's comments on a united Ireland may have targeted an audience across the Atlantic
Nobody could have predicted that today's main global headline would be Trump's desire to see a unified Ireland.
Sólveig Anna svarar hörðu viðbrögðunum fullum hálsi - „Ég hefði enn ekkert fengið greitt fyrir ósiðlega hegðun mína“
📅 12.09.2026 👁️ 2
Sólveig Anna svarar hörðu viðbrögðunum fullum hálsi - „Ég hefði enn ekkert fengið greitt fyrir ósiðlega hegðun mína“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sér ekkert eftir orðum sínum um þingmanninn Dag B. Eggertsson og bróður hans Gauta B. Eggertssyni hagfræðipr...
Minntust Hönnuh Jane í Áskirkju
📅 12.09.2026 👁️ 4
Minntust Hönnuh Jane í Áskirkju
Minningarstund var haldin til minningar um Hönnuh Jane Large í Áskirkju í Reykjavík í dag. Hún var ein þriggja ungmenna sem létust í bílslysi á Krýsuv...
SS slátrar um 100 þúsund fjár í sláturhúsi sínu á Selfossi
📅 12.09.2026 👁️ 4
SS slátrar um 100 þúsund fjár í sláturhúsi sínu á Selfossi
Dagarnir eru oft langir hjá starfsmönnum sláturhússins þegar haustslátrun stendur yfir. Lömbin eru falleg og koma væn af fjalli.„Nú er mikil skemmtun ...
Furða sig á að erlend bók um íkorna og akörn sé notuð til að kenna íslenskum börnum fjármálalæsi
📅 12.09.2026 👁️ 3
Furða sig á að erlend bók um íkorna og akörn sé notuð til að kenna íslenskum börnum fjármálalæsi
Margrét Tryggvadóttir rithöfundur, formaður Rithöfundasambands Íslands og fyrrum alþingismaður spyr í Facebook-pistli, sem hefur vakið þó nokkra umræð...
Úrslit kosninga í Svíþjóð gætu orðið söguleg
📅 12.09.2026 👁️ 3
Úrslit kosninga í Svíþjóð gætu orðið söguleg
Úrslit þingkosninga í Svíþjóð á morgun gætu orðið söguleg. Allar líkur eru taldar á að mjótt verði á munum milli fylkinga.Svíar ganga að kjörborðinu á...
Forstjóri Anthropic vill hægja á þróun gervigreindar
📅 12.09.2026 👁️ 3
Forstjóri Anthropic vill hægja á þróun gervigreindar
Dario Amodei, forstjóri fyrirtækisins Anthropic sem rekur gervigreindarforritið Claude, segir áhættuna sem fylgi gervigreind alvarlega.Í pistli sem ha...
Hann missti föður sinn 11. september - Hvetur til þess að árásirnar verði ekki nýttar til útbreiðslu haturs
📅 12.09.2026 👁️ 4
Hann missti föður sinn 11. september - Hvetur til þess að árásirnar verði ekki nýttar til útbreiðslu haturs
Í gær var þess minnst að þá voru 25 ár liðin frá banvænustu hryðjuverkaárás sögunnar þegar þremur breiðþotum var flogið á The World Trade Center í New...
Þyrla gæslunnar kölluð út vegna skyndilegra veikinda göngumanns
📅 12.09.2026 👁️ 3
Þyrla gæslunnar kölluð út vegna skyndilegra veikinda göngumanns
Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út í hæsta forgangi laust eftir klukkan fjögur í dag vegna bráðra veikinda göngumanns á Snæfellsnesi. Þyr...
Staðgöngumóðir vísar forræðisdeilu við foreldra barns til Hæstaréttar Bandaríkjanna
📅 12.09.2026 👁️ 4
Staðgöngumóðir vísar forræðisdeilu við foreldra barns til Hæstaréttar Bandaríkjanna
Bandaríska staðgöngumóðirin McKenna West hefur staðið í hörðum deilum við Omar Ahmed og Nausheen Gilkar sem hún gekk með barn fyrir.Ahmed og Gilkar er...
'Skimpflation' warning as tinned mackerel alternative hits more supermarket shelves
📅 12.09.2026 👁️ 2
'Skimpflation' warning as tinned mackerel alternative hits more supermarket shelves
Consumer group Which? has called the sale of jack mackerel, a cheaper, less nutritious species of fish, an example of "skimpflation".
Þrengir að olíuflutningum í Mið-Austurlöndum
📅 12.09.2026 👁️ 4
Þrengir að olíuflutningum í Mið-Austurlöndum
Sádi-Arabía hefur skrúfað fyrir mikilvæga olíuleiðslu eftir drónaárás frá Írak.Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabía og um 4-5% af olíu heims...
„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu á uppboð í desember
📅 12.09.2026 👁️ 2
„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu á uppboð í desember
„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu verður boðinn upp í desember. Hann er metinn á hátt í 40 milljónir íslenskra króna. Hún klæddist kjólnum sama dag og fy...
Einstaklega sjarmerandi eign í hjarta Þingholtanna á sölu
📅 12.09.2026 👁️ 4
Einstaklega sjarmerandi eign í hjarta Þingholtanna á sölu
Einstaklega sjarmerandi íbúð á tveimur hæðum í þríbýlishúsi í hjarta Þingholtanna er til sölu. Eignin stendur við Grundarstíg í miðbæ Reykjavíkur og e...