Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum en þar kemur fram að kvikmyndaverin Amazon MGM Studios og Sony Pictures Television hafi hafið viðræður við Bautista skömmu eftir að ákveðið var að endurráða í hlutverkið í júlí.
Bandaríski leikarinn Ryan Hurst, þekktastur fyrir mótorklíkuþættina Sons of Anarchy (2008-14), var upphaflega ráðinn í hlutverkið en reif tvíhöfða við tökur á áhættuatriði seint í júnímánuði, þegar fjórir mánuðir voru liðnir af tökum.
Dave Bautista, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Guardians of the Galaxy (2014) og Blade Runner 2049 (2017), tekur við rullunni af samlanda sínum og mun væntanlega setja sitt mark á karakterinn með sínum mikla vöðvamassa og áralöngu reynslu úr fjölbragðaglímu.
Undirbúningur fyrir tökurnar hefst í þessum mánuði og hefjast þær svo um miðjan október í Vancouver í Kanada. Byrja þær tökurnar algjörlega að nýju þar sem ekkert gamalt myndefni verður notað. Bautista fær því ekki mikinn tíma til að undirbúa sig en er í góðu líkamlegu standi eftir að hafa tekið upp kvikmyndina Highlander fyrr á árinu.
Sjónvarpsþættirnir God of War byggja á samnefndri tölvuleikjaseríu sem hefur notið mikilla vinsælda á síðustu leikjatölvum Playstation frá 2005 til ársins í ár. Serían byggir aðallega á grískri og norrænni goðafræði en einnig koma við sögu guðir úr egypskri, babýlónskri og japanskri goðafræði.
Þættirnir fjallaa um feðgana Kratos (Bautista) og Atreus (Callum Vinson) sem halda í ferðalag til að dreifa ösku Faye, konu Kratosar og móður Atreusar, og lenda þar í ýmsum hremmingum og ævintýrum. Til stendur að taka upp tvær seríur sem munu svo koma út á Amazon Prime.